Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Qupperneq 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016 Heilsa og hreyfing Í boði eru yfir 200 ferðir og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi að sögn Páls Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra hjá Ferðafélagi Íslands. „Þarna eru bæði sígildar og sívinsælar ferðir og eins nýjar ferðir inn á ný svæði. Það sem er að gerast núna í upphafi árs er að það eru að fara af stað fjögur fjallaverkefni, eitt fjall á viku, eitt fjall á mánuði, tvö fjöll á mánuði og verkefni sem heitir „alla leið“. Eftir ákveðinn tíma eru þessi verkefni lokuð og sami hópurinn sem heldur saman jafnvel út 6 mánuði eða allt árið,“ segir Páll. Byrjendur taka fyrsta skrefið Nýjung á þessu ári er verkefni sem nefnist „fyrsta skrefið“ og er fyrir byrjendur í fjalla- mennsku. „Lögð er áhersla á að fara mjög hægt og rólega á þægileg fjöll. Það er stór hópur sem vill fara af stað og þetta hentar vel fyrir þau,“ segir hann. Páll segir að enn sé opið fyrir skráningu en að það séu 3-400 manns í áskrift. „Það er gríðarlega mikil þátttaka og yfir árið eru þetta á tólfta þúsund þátttakendur ef við teljum alla saman sem eru að ganga á þessi fjöll,“ segir hann. Einnig er boðið upp á dagsferðir og helgar- ferðir sem hægt er að skrá sig í en fjallaverkefnin eru viðbót við þær. Fyrir feita, flotta og frábæra Í fyrra byrjaði Ferðafélagið með nýtt lýðheilsuverkefni sem einnig er í boði á þessu ári. „Þetta heitir Big- gest Winner og er fyrir feita, flotta og frábæra sem við köllum, eða fólk í yfirvigt. Þar byrjum við mjög ró- lega. Göngum stuttar vegalengdir á jafnsléttu. Þetta er alveg gríðarlega þakklátur hópur og þessir þátttak- endur hafa sýnt sig vera mestu sig- urvegararnir í okkar starfi. Þarna er fólk sem kannski yfir 150-160 kíló sem átti erfitt með að fara 100 metra en hefur endað með því að fara að stunda fjallgöngur,“ segir Páll en í hópnum í fyrra voru milli 50 og 60 manns og 20-30 manns eru að klára annað árið. „Fólk er að grenna sig þó það sé ekki beinlínis markmið en fólk er að missa mörg kíló og jafnvel tugi kílóa en mark- miðið er að styrkja sig og efla þol og þrek og bæta líðan,“ segir hann. „Við höfum nálgast þetta á mjög já- kvæðan hátt en þetta er mikið lang- hlaup.“ Hópurinn hittist 2-4 sinnum í viku og myndast hefur góður andi í hópnum. Fjallamennskan fyrir alla Á milli 60 og 70 fararstjórar starfa í Ferðafélaginu og eru flestir sjálf- boðliðar með brennandi áhuga á fjallamennsku. Í lengri verkefnum eru launaðir fararstjórar en þeir skuldbinda sig í vinnu allt árið. Ferðafélagið er áhugamannna- félag og þarf fólk að vera félagi í því til að stunda ferðir á þess vegum. Páll segir þau því ekki í neinni sam- keppni við fyrirtæki í ferðamanna- geiranum enda er félagið eingöngu fyrir íslenska ríkisborgara. „Þetta er fyrir alla, og þetta er í raun og veru allra meina bót. Þeir sem byrja að stunda fjallaferðir og útiveru, þeir spyrja sig allir, af hverju byrjaði ég ekki fyrr? Því að þarna ertu að kynnast náttúrunni, að vera úti, fá fjallaloft í lungun, vera í góðum fé- lagsskap og fá holla og góða hreyf- ingu. Hún fer vel með þig, ganga er manninum eðlislæg. Þetta er líka fyrir alla að því leytinu að þú byrjar hægt og rólega út frá þinni getu. Menn eru ótrúlega fljótir að byggja upp þol og bara með því að fara í 3-4 gönguferðir í röð, finnur fólk mun á sér. Þetta er mjög fljótt að koma,“ segir Páll. Félagslegur kraftur á fjöllum Við fjallamennsku þarf að hafa í huga að vera aldrei einn á ferð, hafa búnað í lagi, kynna sér veðurspá, láta vita af ferðum sínum og vera með hlaðin farsíma að sögn Páls. „Það er enginn einn hjá okkur og stundum mjög stórir hópar. Það hef- ur skapast mikill félagslegur kraft- ur, það er einhver orka sem mynd- ast af sjálfu sér í hópnum. Fólk er að eignast þarna vini og félaga og það fer að taka upp á því að gera eitthvað saman. Það er mjög gott að vera einn, eða tveir í náttúrunni en í stórum hópi er annars konar upp- lifun,“ segir hann en konur eru í miklum meirihluta, eða um það bil 65% af þátttakendum. „Sem betur fer eru líka margir karlmenn og þeim er líka að fjölga.“ Páll segir að fólk þurfi ekki að fjárfesta í dýrum búnaði en nauð- synlegt er að eiga góða skó og al- mennan hlífðarfatnað. „Byrja smátt, bara byrja að eiga góða skó með góðum stuðningi og góðum sóla. Svo smám saman bætir fólk við bún- aðinn,“ segir hann. FJÖLBREYTT DAGSKRÁ HJÁ FERÐAFÉLAGI ÍSLANDS Fjallgöngur eru allra meina bót Að ganga á fjöll er holl og góð hreyfing sem flestir geta stundað. Skemmtilegt er að njóta ferska fjallaloftsins í hópi skemmtilegra göngugarpa. Morgunblaðið/Eyþór FJALLAMENNSKA ER FYRIR ALLA SEM VILJA SAMEINA ÚTI- VERU OG HREYFINGU OG KYNNAST BETUR ÍSLENSKRI NÁTTÚRU. MARGIR FÁ BAKTERÍUNA OG KOMA ÁR EFTIR ÁR OG VINASAMBÖND MYNDAST GJARNAN. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Páll Guðmundsson Ef halda á af stað í fjallgöngu þarf að huga vel að fatnaði. Undir góðum hlífðarfatnaði er gott að vera í hlýjum nær- og undirfötum sem ekki eru rakadræg; dry-fit eða ull er langbest. Bómull hentar ekki vel því hún blotnar af svita við áreynslu og setur þá að manni kuldahroll í pásum. Ullarfatnaður bregst ekki í dagsferðum því ullin heldur á manni hita þótt hún blotni. Ullin best á fjöllum „Við byrjaðum af krafti að stunda fjallgöngur í verkefninu 52 fjöll árið 2012,“ segir Haukur en þau höfðu ekki stundað fjall- göngur að neinu ráði í áratugi eða síðan þau voru milli tvítugs og þrítugs. Haukur segir að það hafi verið kjörið tækifæri að taka aftur upp þráðinn þegar boðið var upp á verkefnið 52 fjöll hjá Ferðafélagi Íslands. „Við létum slag standa og klifum flest 52 fjöllin. Þetta var gríðarlega góður grunnur. Við kynntumst nýjum toppum og nýjum gönguleiðum og fengum ákveðið uppeldi í fjallamennsku og góð ráð. Smám saman glæddist áhuginn. Svo kynntist maður prýðisgóðu fólki sem var í hópnum,“ segir Hauk- ur. Framhaldslíf í hópnum Að ári loknu hélt sami hópur áfram og hét þá Framhaldslíf og var farið í færri ferðir en erfið- ari. „Þessi tvö ár voru ákveðin uppeldisár að læra gönguleiðir, kynnast aðferðum, meta veður og klæða sig eftir því og margt fleira. Þetta er eins konar skóli sem ég er ævarandi þakklátur Ferðafélaginu fyrir,“ segir hann. Þegar Framhaldslífsárinu lauk stofnuðu þau og félagar þeirra sjálfstæðan fjallgönguhóp sem ber nafnið Sófistar. Sófistar bralla margt Nafnið vísar ekki til þess að sitja heima í sófa heldur stendur fyrir Samtök óháðra fjallamanna, með skírskotun til fornu grísku spek- inganna, en hópurinn telur um 40 virka meðlimi og hittast þeir reglulega. „Við förum í eina langa ferð í mánuði og vikulega er farið í borgargöngur eða styttri göngur utan bæjarmarka auk annarra ferða sem meðlimir hópsins stinga upp á og standa fyrir. Á sumrin er farið í lengri ferðir og svo bröllum við ým- islegt saman, t.d. er hefð komin á aðventuboð,“ segir Haukur. „Í kvöld erum við að fara á göngu- skíðanámskeið í Bláfjöllum sem einn úr hópnum stendur fyrir og svona rúllar boltinn áfram.“ Hreyfing og félagsskapur Haukur segir að fjallamennskan sé bæði góð fyrir líkama og sál. „Ég var ekki í nógu góðu formi í byrjun og þetta styrkir mann og svo eflir þetta með manni þá hugsun að þurfa að hreyfa sig enn frekar, til að vera í nógu góðu formi fyrir fjallgöngurnar,“ segir Haukur. „Hreyfingin, nátt- úran og hinn frábæri félags- skapur hefur gríðarlega mikið að segja,“ segir Haukur. „Ég hef kynnst stórum og góðum hópi fólks sem eru góðir vinir og kunningjar mínir í dag,“ segir hann og mælir með að byrja í fjallamennsku hjá Ferðafélaginu. „Ég hvet alla eindregið til að taka þátt í verkefnum á borð við 52 fjöll. Maður þarf að finna sér hóp og verkefni við líkamlegt hæfi og eftir því hvað maður hef- ur mikinn tíma,“ segir hann. „En þegar áhuginn vex fer maður að gefa sér meiri tíma í þetta.“ Hjónin Haukur Hjaltason og Þóra Steingrímsdóttir byrjuðu að stunda fjall- göngur árið 2012 og hafa verið óstöðvandi síðan. Með fjallabakteríuna HAUKUR HJALTASON LÆKNIR FÉKK FJALLABAKTERÍUNA FYRIR NOKKRUM ÁRUM EN VIÐ HENNI ER ENGIN LÆKNING. HANN SEGIR FJALLGÖNGUR GÓÐAR FYRIR LÍKAMA OG SÁL OG RÁÐLEGGUR FÓLKI AÐ FINNA SÉR HÓP OG VERKEFNI VIÐ HÆFI. HAUKUR OG EIGINKONA HANS, ÞÓRA STEINGRÍMSDÓTTIR, BYRJUÐU HJÁ FERÐA- FÉLAGINU EN TILHEYRA NÚ SJÁLFSTÆÐA FJALLAHÓPNUM SÓFISTUM.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.