Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Page 21
Getty Images/Pixland
Field Trip er app frá Google sem sníðir ferða-
lagið algjörlega að þínum áhugamálum en vinn-
ur án þess að þú þurfir að spá mikið í það.
Þannig merkir þú við í upphafi ferðalagsins
hverju þú hefur áhuga á og appið sendir meld-
ingar í hvert skipti sem þú ert í námunda við
stað, safn, garð, verslun eða hvað sem er sem
tengist áhugamálinu. Appið sendir þá mynd á
skjá símans og gefur upp nákvæma staðsetn-
ingu og upplýsingar um viðkomandi stað.
Ef þú ert í bíl og ert með Bluetooth-
tengingu gefur appið frá sér hljóð í hljómflutn-
ingstækjunum í bílnum. Appið er aðgengilegt
fyrir iOS- og Android-stýrikerfin.
ÁHUGAVERÐU STAÐIRNIR
17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Það er ekki hægt að gera grein um ferðasmáforrit án
þess að minnast á eitt það allra vinsælasta, hérlendis sem
úti; Tripadvisor. Hægt er að finna hótel, flug, veitingastaði
og bílaleigubíl í gegnum forritið en ekki síst er þetta frá-
bær upplýsingagjöf fyrir þá sem vilja vita hvernig umsagn-
ir viðkomandi fyrirtæki og þjónustuaðilar eru að fá frá
fyrri viðskiptavinum. Það má fullyrða að þær lýsingar eru
hreinskilnar og hægt að fá nákvæma útlistum af hverju
fólk var ánægt eða óánægt. Búið er að safna þeim um-
sögnum saman í gagnabanka og hægt að sjá lista yfir það í
hvaða sæti hótel og veitingastaðir eru miðað við önnur í
viðkomandi borg eða svæði.
ÞAÐ VINSÆLASTA
Af rúmlega 1.200 afþreyingarmöguleikum sem Tripadvi-
sor gefur einkunn er British Museum í fyrsta sæti.
Packing Pro er eitt það besta sem smáforritunarheimurinn býður upp á
en appið kennir alls kyns pökkunartækni fyrir smærri og stærri ferða-
lög. Þeir sem síðan segja að það séu lítil vísinda að henda ofan í ferða-
tösku munu aldrei endurtaka slíkt aftur eftir að hafa nýtt sér appið.
Auk þess að kenna hvernig best er að brjóta fötin saman er hægt að
skrifa í appið hvert ferðinni er heitið og hvað þú ætlar að dvelja lengi og
appið segir þér hvað er algjörleg nauðsyn að hafa með í ferðalagið,
hverju má sleppa og líka hvað þarf alltaf að passa að hafa í öll ferðalög.
Þá er hægt að slá inn hversu margir eru að fara í ferðalagið og á hvaða
aldri þeir eru og appið hefur svör á reiðum höndum hvað einn fimm
ára og önnur 10 ára þurfa að hafa með sér. Appið er fyrir iOS en fyrir
Android-síma má benda á annað ágætt app sem heitir Packing List.
LÁTTU APPIÐ PAKKA
Packing Pro fær frábæra dóma á öllum helstu ferðasíðum heims.
Getty Images/iStockphoto
Triposo er nauðsynlegt forrit ef þú ert hræddur um að missa
netsamband, slíkt getur gerst í djúpum fjalladölum og víðar.
Triposo býður upp á að þú getir fyrirfram hlaðið niður kort-
um af þeim stöðum sem þú ert á og svo geturðu haldið af
stað og kallað fram þessi kort hvenær sem er án þess að
tengjast. Appið lætur þig líka vita hversu mikið pláss kortin
taka á símanum. Aðgengilegt fyrir Android og iOS.
KORT ÁN NETTENGINGAR
Það er vont
að eyða löngum
tíma í að vera
tíndur og
Triposo kemur
í veg fyrir að
slíkt gerist.
Þau eru þónokkur öppin sem finna bestu veitinga-
staðina á þeim stöðum sem ferðast er til en smáfor-
ritið Foodspotting gerir það og meira til. Ef þú finnur
fyrir ákafri þörf fyrir að fá eitthvað ákveðið; getur
ekki hætt að hugsa um paellu, eggjaköku, osta-
samloku, risarækjur á spjóti eða hvað sem er, getur
forritið fundið staði sem bjóða upp á þá rétti sem þig
langar svona ógurlega í og sagt þér hvernig fyrri við-
skiptavinum hefur líkað maturinn. Aðgengilegt fyrir
iOS og Android.
ÞEGAR ÞÚ VERÐUR AÐ
FÁ PAELLU
Ferðamenn á Spáni geta nottið appið Foodspotting
til að finna hina fullkomnu Paellu.
HearPlanet er praktískt app sem þeir, sem leiðist að rýna í
kort og ferðabækur, munu kunna að meta. Appið les fyrir
þig upplýsingar um þá staði sem þig vantar upplýsingar um
og því hægt að ganga um strætin með heyrnartól í eyr-
unum og hlusta á upplýsingar sem eru til dæmis lesnar upp
af Wikipediu og einnig úr eigin gagnagrunni forritsins.
Þetta hentar kannski betur þeim sem ferðast einir eða að
minnsta kosti án barna. Þetta er svolítið eins og leiðsögn
sem hægt er að kaupa á söfnum og hlusta á í gegnum
heyrnartól. Appið er aðgengilegt fyrir Android og iOS.
UPPLÝSINGARNAR
BEINT Í EYRAÐ
Appið HearPlanet gerir fólki kleift að skoða um-
hverfið og fræðast um leið án lesturs.