Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 26
Fersk salatblöð að eigin vali, má
blanda tegundum
sítrónusafi
ólífuolía
pastaafgangar
parmesan
Setjið salatblönduna í skál, hellið smá
ólífuolíu yfir. Kreistið 1⁄4 af sítrónu yfir sal-
atið, saltið og piprið. Setjið grænmet-
ispasta í örbylgjuna og hitið þar til volgt.
Setjið yfir salatbeðið og hellið yfir pínu
olífuolíu. Rífið parmesan yfir og berið
fram með heitu brauði.
Einfalt pastasalat
3 tómatar
½ laukur
10 teningar fetaostur eða annar ostur skorinn
í teninga
ólífuolía
pastaafgangar
Skerið tómatana í ½ cm sneiðar og raðið á diskinn.
Stráið ólífuolíu yfir ásamt salti og nýmuldum pipar.
Hitið afgang af grænmetis-pastaréttinum aðeins í ör-
bylgjuofni þannig að hann verði volgur. Setjið ofan á
tómatana og afskurðinn af tómötunum og ostatening-
unum er stráð yfir. Hentar vel með fiski, kjúklingi eða
sem aðalréttur með heitu brauði.
Matarmikið tómatsalat
Matur
og drykkir
Getty Images/iStockphoto
*Í mörgum uppskriftum af sósum og pott-réttum er glas eða dass af hvítvíni eðarauðvíni. Oft er ekki opin flaska við hend-ina eða ekki til vín á heimilinu og þá erugóð ráð dýr. Næst þegar þú ert með vínmeð mat og eftir verða leifar af víni íflösku, skaltu hella því í ísmolabox og
frysta. Þegar þig vantar smá lögg út í sós-
una áttu vínkubba tilbúna í frystinum.
Hvað á að gera við afgangs vín?
A
ð þessu sinni sýnir Ósk-
ar okkur á mbl.is
hvernig elda á dásam-
legan pastarétt þar sem
grænmeti, rjómi og hvítlaukur fá
að njóta sín. Réttinn má elda á
korteri og því tilvalin kvöldmatur
þegar tíminn er af skornum
skammti. Eftir að gulrætur og
brokkólí hefur verið grófskorið og
soðið í nokkrar mínútur er eft-
irleikurinn auðveldur. Á heitri
pönnu er paprika og laukur létt-
steikt með hvítlauk og rjómanum
svo hellt út á. Pastakoddar þurfa
aðeins nokkurra mínútna suðu og
svo er öllu blandað saman ásamt
ríflega af parmesan osti. Þegar
rétturinn er kominn á diskinn er
gott að strá yfir meira parmesan
og svörtum pipar. Ekki henda af-
göngunum því tilvalið er að nota
þá í salatrétti daginn eftir. Óskar
gefur okkur hér tvær ólíkar hug-
myndir að salatréttum.
Ostafylltir pastakoddar í rjómagrænmetis-
sósu er réttur vikunnar í þættinum Korter
í kvöldmat sem finna má á mbl.is/matur.
Rétturinn er bæði fljótlegur og góður.
Tveir ólíkir
salatréttir
PASTAKODDAR FYLLTIR MEÐ OSTI OG
GRÆNMETI Í HVÍTLAUKSRJÓMASÓSU ERU Í
AÐALHLUTVERKI Í ÞÆTTINUM KORTER Í
KVÖLDMAT SEM FINNA MÁ Á MBL.IS.
ÓSKAR FINNSSON MÆLIR MEÐ AÐ NOTA
AFGANGANA Í LJÚFFENG SALÖT.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Óskar Finnsson er snöggur að elda
ljúffenga rétti sem allir elska.
2 pakkar af fersku fylltu ravíólí með osti
3 stórar gulrætur
1 haus brokkólí
1 rauð paprika
1 laukur
3 hvítlauksgeirar
1 peli rjómi
allt að ½ tsk af pipar
½ tsk rósmarín
ólífuolía
salt eftir smekk
parmesanostur
Hitið vatn í potti. Flysjið gulrætur og skerið í grófa bita og sjóð-
ið þær í 3-4 mín. Skerið brokkólí í grófa bita og setjið út í vatnið
með gulrótum. Saxið lauk og papriku. Hitið olíu á pönnu og
léttsteikið papriku og lauk og bætið hvítlauk við. Takið brokkólí
og gulrætur upp úr vatninu og athugið að við notum sama vatn
til að sjóða pastað. Setjið pastað í pottinn og sjóðið skv. leið-
beiningum á pakkningu.
Hellið rjóma yfir lauk og papriku á pönnunni og kryddið með
salti og pipar, stráið vel af parmesan yfir eða 1-2 matskeiðum.
Sjóðið í 2-3 mín. Bætið grænmetinu á pönnuna og pastakoddum
og blandið varlega saman með sleikju. Þegar rétturinn er kom-
inn á diskinn er gott að strá parmesan og svörtum pipar yfir.
Grænmetispasta
ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ ÚTBÚA ÚR AFGÖNGUNUM