Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Síða 28
Uppskrift fyrir einn bolla af sinnepi
6 msk sinnepsfræ, u.þ.b. 50 g
½ bolli sinnepsduft (mustard powder), u.þ.b. 50 g
½ bolli vatn eða bjór
3 msk edik að eigin vali, t.d. hvítvíns- eða sérríedik
2 tsk salt
Til að bragðbæta sinnepið bætið við einhverju af
eftirfarandi kryddi:
1 tsk túrmerik, (gerir sinnepið
mjög gult á litinn)
2 msk hunang, smakkið til
og bætið
meir ef þurfa þykir
1/4 bolli ferskar kryddjurtir
að eigin vali
SINNEP FRÁBÆRT Í MATARGERÐ
Vinsælasta
krydd
í heimi
SINNEP PASSAR VEL MEÐ KJÖTI, FISKI OG
GRÆNMETI OG ER ÓSPART NOTAÐ VÍÐA UM HEIM.
GOTT ER AÐ PRÓFA SIG ÁFRAM MEÐ ÞETTA
VINSÆLA KRYDD ÞVÍ ÞAÐ ER EKKI BARA GOTT
Á HAMBORGANN, SAMLOKUNA EÐA PYLSUNA.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Mörgum finnst sinnep ómissandi og nota það óspart enþað er gjarnan notað með kjöti eða osti og er vin-sælt í samlokur, salöt, hamborgara og með pyslum.Sinnep er líka notað sem hráefni í dressingar, gljáa,
sósur, súpur og maríneringar.
Sem þykkni og korn er sinnep notað víða í Indlandi, Mið-
jarðarhafslöndum, Norður-Evrópu og Suðaustur-Evrópu, Asíu,
Ameríku og Afríku, sem þýðir að það er eitt vinsælasta krydd í
heimi.
Sinnepskornum blandað við vökva
Sinnep eins og við þekkjum er búið til úr kornum sinnepsplönt-
unnar og kemur í mörgum útgáfum eftir því hverju er blandað
saman við fræin. Saman við kornin er blandað vatni, salti,
sítrónusafa eða öðrum vökva, og stundum ýmsum bragðefnum
og verður þá til þykkni sem getur verið gult eða brúnt á litinn.
Mismunandi meðhöndlun kornanna gefur mismunandi áferð og
bragð, en þau má annaðhvort nota heil, möluð, sprungin eða
marin. Edik er gjarnan notað en einnig vín, bjór eða ávaxtasafi.
Til að fá sætt sinnep er hunangi blandað saman við og fæst þá
hið ameríska hunangssinnep.
Passar vel við ýmis hráefni
Sinnep sem krydd er notað með alls kyns hráefnum og virðist
það passa vel með kjöti, fiski og grænmeti. Hér á síðunni má
finna girnilegar uppskriftir sem allar innihalda sinnep. Þær eru
misflóknar og ættu allir að geta prófað eitthvað. Njótið!
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
Matur og drykkir
Þitt eigið sinnep!
Malið sinnepsfræin í nokkrar sekúndur í kaffibaunakvörn
eða myljið í mortéli. Þú vilt hafa þau að mestu heil því þú
notar einnig sinnepsduftið. Helltu þessu í skál, bættu út í
salti og sinnepsdufti og einhverju af hinu kryddinu sem er
á listanum að eigin vali.
Helltu vatni eða bjór saman við og hrærðu vandlega.
Láttu þetta svo bíða í ca. 10 mínútur. Helltu þá edikinu
saman við.
Helltu þessu í krukku og settu inn í ísskáp. Þetta er
frekar þunnt til að byrja með en þykknar yfir nótt. Bíddu
a.m.k. í 12 tíma áður en þú notar það.
Geymist í kæli í eitt ár.