Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Qupperneq 29
Getty Images/iStockphoto 17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Appelsínugljáðar grísakótilettur með sinnepi og rósmaríni Fyrir 4 5 grísakótilettur með beini safi úr tveimur stórum appelsínum (u.þ.b. 2 dl) 2 msk appelsínumarmelaði 2 msk grófkorna sinnep 1 hvítlauksrif, smátt saxað eða rifið á rifjárni 3-4 ferskar rósmaríngreinar eða 2 tsk þurrkað rós- marín salt og pipar Hitið ofn í 180°C. Pískið saman í skál appelsínusafa, marmelaði, sinnep og hvítlauk og kryddið með smá salti og pipar og 1 tsk af söxuðu rósmaríni. Kryddið kjötið með salti og pipar og steikið á vel heitri pönnu þar til vel brúnað. Færið kjötið yfir á disk. Hafið pönnuna á meðalháum hita og hellið vökvanum á. Hleypið suðunni upp og leyfið að sjóða í fimm mínútur eða þar til sósan hefur aðeins þykknað. Leggið kjötið þá aftur á pönnuna og velt- ið vel upp úr sósunni. Leggið rósmaríngreinar ofan á og bakið í ofni í 8-10 mínútur eða þar til kjötið er eldað í gegn. Berið fram með fersku salati. Uppskrift frá eldhusperlur.com. Fyrir 2 4 stykki lax (ca 300-400 g) ½ tsk gróft salt (má setja meir eftir smekk) ½ tsk túrmerik ½ tsk cayennepipar 1 msk sinnepsduft (mustard powder) 2 msk ólífuolía 1⁄4 tsk brún sinnepsfræ (brown mustard seeds) 1⁄4 tsk kummínfræ (cumin seeds) 1⁄4 tsk fennelfræ 2 serrano-chili, skorin í helminga eftir endilöngu Nuddaðu fiskinn á alla kanta úr helmingnum af salti, túrmeriki og cayennepipar og settu til hliðar. Hrærðu afganginn saman við sinnepsduftið og ½ bolla af vatni, hrærðu og geymdu á kantinum. Hitaðu olíu á pönnu á miðlungshita, settu út í sinnepsfræin og eldaðu í 1-2 mínútur. Bættu við fennelfræjum og kummíni og eldaðu í þrjár sek- úndur, settu það þá út í blönduna ásamt chilipipar. Settu laxinn á pönnuna og með skeið þekurðu fiskinn vel með blöndunni og steikir þar til tilbúinn eða í 10-12 mínútur. Berðu fram með basmatihrísgrjónum og gufusoðnu grænmeti eða góðu salati. Lax í Bengali- sinnepssósu 4 kjúklingabringur ½ bolli (100 ml) dijonsinnep 1⁄4 bolli hlynsíróp 1 msk rauðvínsedik salt og pipar rósmarín, ferskt eða þurrkað Stillið ofninn á 220°C. Blandið saman sinnepi, sírópi og ediki, smakkið til. Ef ykkur finnst of mikið sinnepsbragð bætið þá meira af sír- ópi saman við. Setjið kjúklinginn í eldfast mót og hellið blöndunni yfir hann. Saltið og piprið. Látið inn í ofn- inn í 30-40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Stráið yfir söxuðu rósmaríni. Gott að bera kjúklinginn fram með hrísgrjónum og góðu salati. Niðurstaðan er mjúkur, safaríkur og ótrúlega bragðgóður kjúklingur með sætu sinnepsbragði. Hentar vel bæði hversdags sem og um helgar. Frábær máltíð með stóru F-i! Frá gulur, rauður, grænn og salt. grgs.is Heimsins besti kjúklingur ¼ bolli majónes 1 msk sterkt sinnep 1 msk hunang ½ msk sítrónusafi Blandið öllu saman í skál og látið standa í kæli áður en sett út á salat. Hunangs- sinneps- salatsósa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.