Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Side 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Side 31
17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31 Leikhópurinn Lotta býður Dórotheu úr Galdrakarlin- um í Oz í heimsókn á Kex hostel þar sem hún mun segja frá ævintýrum sínum og syngja lög úr leikritinu. Dagskráin hefst klukkan 13 sunnudaginn 17. janúar. Heimsókn frá Dóróteu*Mistök eru hluti af lífinu. Það eru við-brögðin við mistökum sem skipta máli. Nikki Giovanni Sigríður Halldórsdóttir svarar spurningum um eftirlæti fjölskyld- unnar þessa vikuna. Fjölskyldumeðlimir eru: Sigríður Halldórsdóttir, dag- skrárgerðarmaður á RÚV, Jón Ragnar Ragnarsson, kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð, Urð- ur Ása Jónsdóttir, 5 ára, og annað barn á leiðinni á allra næstu dögum. Þátturinn sem allir geta horft á? Rætur á RÚV! Allir vitlausir í þann þátt á þessu heimili. Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öll- um? Allt sem ég elda. Það kemst enginn upp með neitt múður! Skemmtilegast að gera saman? Okkur finnst mjög gaman að fara í sund saman, þótt það sé nú ósköp hvers- dagslegt. En þá er líka algjört skilyrði að fara í úti- klefann og skjálfa inn að beini! Það er svo hressandi. Borðið þið morgunmat saman? Já, það er mikilvæg stund í okkar fjölskyldu. Þar förum við yfir heppilegt magn rúsína í meðalstórum Cheerios-skálum, Urður krefur okkur um svör við því hvers vegna hún fái (næstum því) aldrei jarðarber út á Cheeriosið eins og á myndinni á pakkanum. Heldur bara rúsínur, eða í besta falli banana. Og svo færum við rök fyrir mis- munandi skoðunum okkar á æskilegri þykkt hafragrauts. Við erum óðum að þokast í átt að samkomulagi. Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Tölum og spilum og stöndum á haus. Svo erum við öll sannir áhuga- menn um Legó. Það kann að vera að við foreldrarnir höfum stundum keypt nýjan og spennandi Legó-kassa meira fyrir okkur sjálf en dóttur- ina. Það gæti hafa gerst. Án þess að ég fullyrði neitt. Svo er í miklu uppáhaldi að skrifa vel valin orð á ísskápinn með segla- stöfum. Það þjónar ekki bara tilgangi við það að kenna frumburðinum að lesa og skrifa, heldur er það líka frábær leið til þess að koma aulabrönd- urum á framfæri (sjá mynd). EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Aulabrandarar með seglastöfum Ný bresk vefsíða, BuyMeOnce.com, hefur það markmið að benda fólki á gæðahluti sem endast. Tilgangurinn er að minnka neysluhyggju og rusl á heimilum. Ennfremur er skorað á framleiðendur að leita leiða til að framleiða hluti sem endast. Vörurnar eru valdar með því að spyrja eftirfarandi spurninga: Á hluturinn eftir að endast lengur en sambærilegar vörur? Er fram- leiðslan siðræn og, ef mögulegt er, sjálfbær? Er auðveldlega hægt að laga hlutinn? Fylgir trygging? Eru góð kaup í hlutnum? Er hann fal- legur? Ef svarið er jafnan já þá á varan erindi á þessari síðu. Mælt er með hlutum í átta flokk- um sem eru: Föt, skór, eldhús, hús- gögn, leikföng, fylgihlutir, verkfæri og fegurð. Tara Button rekur vefsíðuna sem var opnuð í upphafi árs. Hún fékk hugmyndina frá Le Creuset- pottunum sínum. „Ég hugsaði með mér dag einn þegar ég var að vaska upp: ég á eftir að eiga þetta alla tíð. Væri ekki frábært að fleira í eldhús- inu mínu væri eins? Eitthvað sem þyrfti aðeins að kaupa einu sinni og aldrei aftur,“ sagði hún í viðtali við Telegraph. VEFSÍÐAN BUYMEONCE.COM Pottarnir frá Le Creuset eru oft nefndir sem dæmi um hluti sem endast lengi. Leiðarvísir um gæðahluti Leikskólum sem taka við börnum utan hefðbundins dagvinnutíma og jafnvel allan sólarhringinn fer fjölg- andi í Bretlandi til að mæta þörfum foreldra sem vinna vaktavinnu. Breska blaðið Daily Mail ræðir við foreldra sem þurfa að notfæra sér þessa þjónustu vegnu vinnu sinnar. Wajhi Abdullah, 32 ára, er læknir á bráðamóttöku en tveggja ára dóttir hennar er á leikskóla frá sjö á morgnana til átta á kvöldin. Hún segist ekki eiga annarra kosta völ þar sem hún eigi ekki kost á níu til fimm starfi á þessum tímapunkti á ferli sínum. Maður hennar vinnur sem öryggisvörður frá 7-19. Börn sem sækja Bay Tree House-leikskólann í suðausturhluta London geta sofið þar. Leikskólinn býður upp á þetta fyrir fólk sem vinnur næturvaktir. Blaðið segir frá Naomi sem mætti klukkan fjög- ur síðdegis í leikskólann og dvelur þar í sextán tíma þar til hún er sótt klukkan átta morguninn eftir. Bretland hefur hæsta hlutfall næturvinnufólks í Evrópusamband- inu og til viðbótar hefur ráðning- arsamningum fjölgað þar sem fólk þarf að mæta til vinnu með skömmum fyrirvara á öllum tímum sólarhringsins. „Það búa mjög margir í þessum hluta borgarinnar sem hafa ekki fjölskyldu í kringum sig til að hjálpa sér,“ segir Janet Hogman, eigandi Bay Tree House-leikskól- ans. Leikskólinn lengdi fyrst þann tíma sem opið er árið 2012 og er núna opinn allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Foreldrar geta komið með börnin frá sex á morgn- ana og börn sem er ekki búið að sækja á miðnætti eyða nóttinni í leikskólanum. Íslensk börn búa ekki við þennan veruleika en til viðmiðunar eru leikskólar Reykjavíkurborgar opnir frá kl. 7.30 til 17 og börn geta verið í leikskólanum í 4-9,5 klukkustund- ir á dag. Dýrustu klukkutímarnir eru þegar komið er fram yfir átta tíma. Gjald fyrir átta tíma á dag kostar fyrir hjón 25.275 kr. á með- an níu og hálfur tími kostar 44.805 kr. Í fyrra var styttur sá tími sem opið er á leikskólunum styttur frá 17.30 til 17 í sparnaðarskyni en að- eins þrjú af sex þúsund leik- skólabörnum nýttu þennan auka hálftíma að fullu. BÖRNIN GISTA Á STAÐNUM Leikskólar fyrir næturvinnufólk Bretland hefur hæsta hlutfall næturvinnufólks í Evrópusambandinu. Getty Images Í BRETLANDI ERU BARNAHEIMILI EKKI AÐEINS DAGVISTANIR HELDUR LÍKA NÆTURVIST- ANIR EN LEIKSKÓLUM SEM TAKA VIÐ BÖRNUM ALLAN SÓLARHRINGINN FER FJÖLGANDI TIL AÐ MÆTA ÞÖRFUM FORELDRA SEM VINNA Á ÖLLUM TÍMUM SÓLARHRINGSINS. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is –– Meira fyrir lesendur Þorrinn SÉRBLAÐ Eitt og annað sem tengist þorranum verður til umfjöllunar í blaðinu s.s: Matur, menning, hefðir, söngur, bjór, sögur og viðtöl. Þann 22. janúar gefur Morgunblaðið út sérblað tileinkað þorranum PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 18. janúar. Nánari upplýsingar gefur: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.