Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 32
Einu sinni var maður alltaf með fartölvu á ferðalögum,mikinn hlunk í mikilli tösku sem dragnast þurfti með áflugvöllum og mátti aldrei skilja við sig. Þegar fartölvur
urðu fistölvur varð lífið aðeins bærilegra og svo líka þegar
öll gögn fluttu í skýið – þá var ekki lengur þörf á að vera
með utanáliggjandi harðan disk og CD brennara / lesara. Já,
og svo komu spjaldtölvurnar, en þær voru eiginlega bara
sýndarhagræði, það var ekki hægt
að vinna á þeim af neinu viti og
því var fartölva og spjaldtölva í
fartölvutöskunni.
Þó ekki sé hægt að bera saman
örgjörva í farsíma og borðtölvu er
óhætt að segja að nýlegur farsími
samsvari smávaxinni tölvu og svo
komið að margt það sem hægt er
að gera á far- eða borðtölvu er
hægt að gera á farsíma og á far-
síma er hægt að gera nánast allt sem hægt er að gera á
spjaldtölvu (aukinheldur sem farsíma með 5,7" skjá mætti
svo sem kalla spjaldtölvu). Ég geri líka ráð fyrir að margir
* Í stað músar erhægt að nota símann
sjálfan sem músarflöt ef
vill, til að mynda til að
spara USB-tengi. Tvö
skjátengi eru á kvínni,
DisplayPort og HDMI, en
síminn er tendur í
HDMI-tengið. Síðan eru
tvö x USB 2.0 tengi og
eitt USB 2.0 með meiri
spennu. Varla þarf að
taka það fram að USB-C-
tengið hleður símann á
meðan hann er tengdur
og því hægt að nota
straum USB-tengið í að
hlaða annað tæki.
* Krafan um USB-C-tengi gerir að verkum að
einu símarnir sem ganga
við kvína sem stendur
eru Lumia 950 og 950XL,
zem báðir eru frábærir
farsímar, en verða fleiri
eftir því sem USB-C-
símum fjölgar. Microsoft
Display Dock kostar
19.990 kr. í vefverslun
Opinna kerfa, okbeint.is.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
séu hættir að
vera með spjald-
tölvu með sér, en þeir
sitji enn uppi með fartölvuna
því það getur verið snúið að vinna á
farsíma – maður getur reddað sér en ekki gert
flókna hluti nema með harmkvælum.
Nýtt apparat frá Microsoft, sem fyrirtækið kallar einfald-
lega Microsoft Display Dock, boðar nýja tíma í þessu efni,
því það apparat er beinlínis ætlað til þess að nýa aflið sem
felst í farsímanum, breyta honum í tölvu, án þess hann hætti
þó að vera farsími. Nú geri ég ráð fyrir að allmargir þekki
það þegar menn tengja farsíma við tölvuskjá þá birtist speg-
ilmynd af farsímaskjánum, bara miklu stærri. Með þessari
nýju tengikví frá Microsoft og viðeigandi hugbúnaði verður
tölvuskjárinn aftur á móti viðbót við símaskjáinn og þá hægt
að keyra ýmislegan hugbúnað á símanum, til að mynda Of-
fice-pakkann. Þá er ekkert eftir nema tengja mús og lykla-
borð við alla saman, ýmist
með snúru í kvína eða
með Bluetooth. Lyk-
ilatriði í þessu er að
síminn er enn sími,
því hægt er að hringja
símtöl og svara, senda
SMS og álíka án þess að
það trufli það sem sést á
skjánum.
Annað lykilatriði er viðbót í Windows
10 sem kallast Continuum og sú viðbót breytir símanum í
tölvu, ef svo má segja, stýrir viðbótar skjáborði þegar síminn
er tengdur við annan skjá. Viðbótin sér síðan um það að
birta símaútgáfuna af Excel, svo dæmi sé tekið, sem borð-
eða fartölvuútgáfu með stuðning við mús og lyklaborð, en
hún vinnur með öllum forritum sem keyra jafnt í öllum af-
brigðum af Windows 10, farsímaútgáfu, borðtölvuútgáfu og
leikjatölvuútgáfu svo dæmi séu tekin, en slík forrit flokkar
Microsoft sem Universal-smáforrit. Það eru ekki öll forrit en
fer fjölgandi að sögn Microsoft-manna, þó sum vanti. Þannig
eru til eða rétt ókomin Universal-smáforrit fyrir Facebook,
Facebook Messenger, Instagram, Box, Shazam,
Netflix, Twitter og Audible svo dæmi séu
tekin, en ekkert bólar aftur á móti á Skype,
SnapChat, WhatsApp, Spotify, YouTube eða
Tinder.
Það gefur svo augaleið að ekki er hægt að
nota aðra síma við a tarna nema þá sem
keyra Windows fyrir síma, Windows 10 nán-
ar tiltekið, sem er nú verið að dreifa í síma
um heim allan smám saman (allir Lumia
símar sem eru með Windows 8 eða 8.1 fá fría
uppfærslu í Windows 10).
Kvíin sjálf er ekki ýkja flókið fyrirbæri að
sjá, lítill og þungur kubbur sem er náttúrlega
hið besta mál, enda kostur að hafa hann stöð-
ugan á borðinu. Ekki skortir tengir á hann,
eins og rakið er hér til hliðar, en rétt að taka
fram að hann notar nýja gerð USB-tengja,
USB-C, og þá átt við það tengi sem er úr síma
í kvína. USB-C-tengi hafa áður verið rædd á
þessum stað og óhætt að spá því að þau eigi eftir
að leggja undir sig heiminn, enda býður USB-C upp á 40
gígabita á sekúndu í gagnastreymi, hægt er að keyra tvo 4K
skjái samtímis og streyma 100 W af straumi í hleðslu svo
fátt eitt sé talið.
Smsé: þetta er snilldarlausn og gefur forvitnilega
möguleika á ferðinni, svo ekki sé meira sagt, enda er alls
staðar að finna skjái með HDMI-tengi, til mynda sjónvarps-
tæki …
NÝ TÆKNI ER OFT SÝND VEIÐI, EN EKKI
GEFIN – ÞAÐ SEM HÆGT ER AÐ GERA ER
STUNDUM SVO MIKIÐ VESEN EÐA SVO
LÉLEGT ÞEGAR Á REYNIR AÐ ÞAÐ TEKUR
ÞVÍ EKKI AÐ FÁST VIÐ ÞAÐ. GOTT DÆMI
UM ÞAÐ ER DRAUMURINN UM AÐ NOTA
SNJALLSÍMA SEM FAR- EÐA BORÐTÖLVU,
EN NÝ TENGIKVÍ FRÁ MICROSOFT OG
VIÐBÓT Í WINDOWS 10 BREYTIR ÖLLU.
SÍMI SEM
TÖLVA
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
Græjur og tækni
Ný tegund vekjaraklukku hefur slegið í gegn á
Kickstarter en hún heitir Ruggie og er í formi
mottu. Það listilega við þessa klukku er að nauð-
synlegt er að stíga fram úr rúminu og standa á
mottunni í þrjár sekúndur til þess að hún hætti
að hringja. Það dugar sumsé ekki að tylla tánni
niður. Til viðbótar er enginn „snús“-takki svo
það er ekki hægt að fresta því að fara fram úr.
Vekjaraklukka sem virkar
Umboðsaðili: Yd heildverslun, s. 587 9393, yd@yd.is, YdBolighus
* Eins og getið er hér til hliðar þá erkubburinn ansi þungur miðað við stærð, 230
g, en þó ekki nema 64,1 x 64,1 x 26,5 mm
að stærð. Undir honum er stamt gúmmíkennt
efni sem minnkar enn líkur á því að hann
renni til. Kvíin styður allt að 1080p upplausn,
1920 x 1080. Með henni fylgir spennubreytir.