Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 43
17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 „Við kunnum að lifa með þessu í dag. Sem betur fer erum við Alisdair afslöppuð að upplagi og heimilið rólegt. Við búum langt frá þjóðveginum og umhverfið er eins og best verður á kosið fyrir hana. Hún er á Waldorf-leikskóla í jafnrólegu umhverfi og hér heima þar sem öll leikföng eru úr nátt- úrulegum efnum, lífrænn matur og ekkert óþarfa áreiti. Ég held stundum að okkur hafi verið plantað hingað í sveitina áður en Ara- bella kom í heiminn því London hefði ekki alveg verið málið fyrir okkur fjölskylduna undanfarin ár.“ Semur mikið fyrir aðra í Bretlandi Það er þó ljóst að aðlaga þarf tónlistarfer- ilinn að því að Arabellu líði sem best og tón- leikaferðalög og útihátíðir eru ekki á dag- skrá strax. En væri ekki auðveldara upp á ferilinn að búa úti? „Jú, spurðu bara umboðsmanninn minn! Líka af því að ég menntaði mig úti og allt mitt tengslanet er þar. Ég er enn svolítill út- lendingur hérna eftir að hafa búið svona lengi úti. En lífið fer með mann í áttir sem maður sér ekki alltaf fyrir. Tónlistin er mér mikilvæg en hún er samt sem áður vinnan mín og þetta er lífið mitt.“ Er ekki sjaldgæft þegar tónlistarmenn ganga í gegnum tíma þar sem þeir eiga erf- itt með að sinna tónlist sinni að þeir nái að halda samningi sínum ytra? „Jú, líklega, en ég passaði mig að reyna að semja fyrir aðra þegar ég gat. Þegar Ara- bella átti góða klukkutíma gerði ég það og hélt þannig höfundarréttarsamningi mínum við Bucks Music Publishing. Slíkir samn- ingar snúast um fyrirframgreiðslur fyrir tón- listina sem þú semur.“ Þess má geta að mað- urinn sem hálf heimsbyggðin syrgir, David Bowie, var með sinn höfundarréttarsamning á sama stað og Hafdís Huld. „Ef maður semur ekki neitt endurnýja þeir ekki samninginn við þig. Til að halda slíkum samningi dugar oft að semja fyrir sjálfan sig en þar sem ég var ekki að gera það að ráði hjálpaði það mikið að semja lög fyrir aðra. Meðal verkefna sem ég hef unnið fyrir Bucks er útsetning og flutningur á titillagi jóla- myndar BBC með Stephen Fry í aðalhlut- verki, tónlist fyrir alþjóðlegar sjónvarps- auglýsingar og popplög fyrir aðra listamenn.“ Fer hægt og rólega að betri heilsu Hafdís Huld hefur, eftir að hún flutti heim, gefið út tvær barnaplötur. Vögguvísur var sú fyrri sem hún gerði á meðgöngu sinni og kom út rétt áður en Arabella fæddist og Barnavísur kom út fyrir síðustu jól. Arabellu fannst foreldrar sínir að sjálfsögðu loksins vera farin að gera eitthvað af viti þegar þau fóru að syngja um lonníetturnar sem þú lést á nefið. Hafdís Huld er að vinna að því að ná heilsu en segir það hálfskrítið að hafa allt í einu tíma fyrir sjálfa sig og vinnuna eftir að Arabella byrjaði á leikskóla í haust. „Ég hef þurft að byrja þetta rólega þar sem þrekið er lítið. Ég fór í létta leikfimi í sundi á Reykjalundi þar sem ég verð fljótt þreytt. Það eru mikil viðbrigði eftir að hafa alltaf verið algjör orkubolti. Ég er svo að sanka að mér sögum fyrir næstu plötu og það gerist alls staðar. Ég eignaðist til dæmis góðan vin í leikfiminni, hann er líkleganær afa mínum í aldri en mér, en hann sagði mér forvitnilega sögu af sér á sínum yngri árum. Við vorum rétt svo að lyfta höndunum og hreyfa þær rólega í hringi með- an sögustundin var,“ segir Hafdís og hlær. „Þegar hann sagði mér undan og ofan af sínu lífi fór lag að hljóma í hausnum á mér og ætli lagið verði ekki á næstu plötu. Svona hefur tónlistin mín alltaf þróast – fyrst koma sögurnar. Svo lögin. Og það er yfirleitt fólk í kringum mig sem segir mér sögur sem rúlla þessu öllu af stað.“ Við erum búin að fara yfir víðan völl og lífshlaup Hafdísar Huldar er talsvert ólíkt því sem blaðamaður hafði ímyndað sér þeg- ar hann arkaði snjóinn upp að bleika húsinu hennar Við Suðurá í Mosfellssveit. Reyndar þurfti að leggja bílnum aðeins frá húsinu þar sem það var ófært síðasta spölinn en svo tók við sveitin, með hænum í garðinum, hundi og nokkurra vikna gömlum kettlingi. En eftir að hafa verið 20 ár í bransanum mátti búast við að Hafdís Huld hefði frá nægu að segja. Hafdís hefur lítið talað um hvernig við- brögð hún fékk þegar hún steig fram í Kast- ljósinu og sagði frá neteineltinu. „Ég upplifði stuðning og fékk skilaboð sem mér þótti ákaflega vænt um frá fullt af fólki sem ég þekkti ekki neitt og þá líka fólki sem hafði upplifað eitthvað svipað. Ég viðurkenni samt að ég var skíthrædd við að gera þetta, ég vildi bara leita til lögregl- unnar og svo búið. Ég hálfpartinn treysti mér ekki í svona hringiðu og vildi ekki fara í viðtal þar sem fólk héldi jafnvel að ég væri að plögga plötuna mína eða eitthvað álíka. En þegar það fóru að koma við- urkenningar frá Stígamótum og UN Wo- men handa konunni sem hafði átt upptökin að þessu öllu var réttlætiskennd minni mis- boðið, mér fannst að þetta yrði að vera uppi á borði.“ Dolly Parton aðdáandi Hafdísar Huldar Ef þú gætir sagt eitthvað við þitt yngra sjálf – þegar þú varst að hefja feril þinn – hvað myndirðu segja? „Ég myndi hvetja mig til að velja mín eig- in leið fyrr. Og að láta ekki hvernig öllu lauk með GusGus hafa svona mikil áhrif á mig og skemma fyrir mér í mörg ár. Það leið of langur tími þar til ég fékk kjarkinn til þess að gera mína eigin tónlist. Draugarnir voru þarna enn til staðar þegar ég byrjaði í nám- inu. Þrátt fyrir að ég hefði gert helling af hlutum á þessum fyrstu árum ytra.“ Blaðamaður rekur augun í mynd af Dolly Parton uppi á vegg hjá Hafdísi Huld á leið- inni út. Hún er árituð af söngkonunni til Hafdísar. Hafdís segist alltaf hafa dáðst að frú Parton. „Hún er frábær lagahöfundur, algjörlega alltaf í þessu á eigin forsendum og lætur ekki tal um útlit sitt hafa áhrif. Ég átti að spila á sömu hátíð og hún í Texas fyrir nokkrum árum en Dolly Parton var þá veik og komst ekki. Uppi á sviði sagði ég að ég tryði þessu ekki, ég hafði hlakkað svo til að syngja á sama sviði og hún. Einhver í áhorf- endaskaranum tók þetta upp og sendi um- boðsmanneskju söngkonunnar. Þegar Hafdís Huld var komin aftur heim í Mosfellsdalinn nokkrum vikun seinna fékk hún stórt brúnt umslag í pósti og með fylgdi bréf sem á stóð: „Hæ, Hafdís. Ég er umboðsmaður Dolly Parton og hún bað mig að segja þér að hún veit alveg hver þú ert og veit að þú hefur vitnað í hana í viðtölum. Hún fílar tónlistina þína og óskar þér alls hins besta.“ Á myndinni stendur: Good luck, Hafdís.“ Höfum það lokaorðin. Hafdís Huld á Hulstfred festival í Svíþjóð. Árið áður en hún eignaðist Arabellu spilaði hún á 150 tónleikum en ári síðar voru þeir fernir og Hafdís gat lítið sinnt tónleikahaldi í 2 og ½ ár. Í New York borg árið 2011 þegar Hafdís Huld var að kynna Synchronised Swimmers.Hafdís Huld í live upptöku fyrir bandarísku stöðina KEXP á Airwaves. Hafdís Huld við tökur á auglýsingu á Spáni fyrir Mercedes Benz en hún var beðin um að lita ljóst sitt nær hvítt fyrir tökuna. Söngkonan var mynduð fyrir plötuumslag annarrar breiðskífu sinnar stuttu seinna og héldu margir að hún hefði farið í útpældar útlitsbreytingar fyrir plötuna. GusGus vakti fljótt athygli erlendis og birtist á forsíðum nokkurra tímarita.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.