Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Side 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Side 47
Ég dáist að sjálfsögðu að tónlist hansenda þótt ég sé ekki nógu mikill sér-fræðingur til að leggja mat á gæðihennar. Skilaboð hans til minnar kyn- slóðar, sem fæddist skömmu eftir lok seinna stríðs, voru á hinn bóginn mjög mikilvæg. Þau voru einföld: Verið nógu sterk til að vera þið sjálf. Það voru skýr skilaboð sem skiptu sköpum fyrir mína kynslóð.“ Þessi orð koma líklega úr óvæntri átt en það er til marks um samfélagsleg áhrif Dav- ids Bowies að fyrsta spurningin sem Arsène Wenger, knattspyrnustjóri enska úrvals- deildarfélagsins Arsenal, fékk á blaða- mannafundi í vikunni var um söngv- arann sáluga. Allir þekktu Bowie, allir höfðu skoðun á honum og svo virðist sem allir hafi borið virðingu fyrir honum, burtséð frá því hvort þeir „fíluðu“ tón- sköpun hans eður ei. Bowie lést sem kunnugt er um liðna helgi, nýorðinn 69 ára, eftir glímu við krabba- mein. Hann sló alla tíð skjald- borg um einkalíf sitt og hafði tekist að fela veikindi sín vel fyrir umheiminum. Þess vegna kom fráfall hans flestum í opna skjöldu en aðeins tveimur dög- um áður, á 69 ára afmælinu, hafði Bowie sent frá sér svanasönginn, Blackstar. Reyndist það réttnefndur óður til dauðans. Utan alfaraleiðar Bowie hélt tónleika á Íslandi fyrir tveimur áratug- um. Af því tilefni ræddi Sindri Freysson, blaða- maður Morgunblaðsins, við hann. Fróðlegt er að grípa niður í vangaveltur söngvarans um listina. „Ég býst við að af þeim sökum semji ég tónlist og máli, því ef ég væri meiri völundur með orð gæti ég sett hugðarefni mín fram á bókmennta- lega vísu með meiri skýrleika en ella. En þetta snýst meira um samsetningu og tilfinningu og þau svið tilveru okkar sem valda óróleika vekja ein- lægan áhuga minn. Þetta tengist hugmyndinni um hið einsleita, meðalveginn, því þegar alþýðumenn- ingin nær inn á miðjuna missi ég áhugann á henni, hún verður bragðlítil, auðmelt og svo aðgengileg að allt það sem var hnýsilegt í henni gufar upp. Til að eitthvað sé móttækilegt fyrir fjöldann verður að dauðhreinsa það svo aðeins léttvægu eðlisþættirnir sitji eftir. Maður sér hins vegar það sem er í aðsigi utan alfaraleiðar, því menning okkar hefur tilhneigingu til að byggjast upp á því sem þrífst utan garðs. Og ef maður hristir saman nokkrar eigindir sem svo er háttað um, er hægt að öðlast ágæta mynd af því sem djarfar fyrir í framtíð okkar. Óhjá- kvæmilega gengur þetta þannig fyrir sig að hlut- irnir, eða hvaða athöfn sem vera skal á útjaðr- inum, stefnir alltaf að miðju. Hversu öfuguggalegir eða furðulegir sem þeir virðast á þeim tíma, verður búið að gerilsneyða þá um það leyti sem þeir ná miðju. Fyrirbærin fara einfaldlega í gegnum einhvers konar hreinsi- ferli eða sigti á leiðinni þangað, en inntak fram- tíðar okkar er í meginatriðum á röngunni. Allar rannsóknir mínar, hvort sem er í lífinu eða listum, og smekkur minn á myndlist, bók- menntum og tónlist, hallast þannig að því sem þræðir fáfarna stigu. Ég er náungi af því tagi sem kaupir nýju Scott Walker-plötuna meðan allir hinir biðja um Elastica.“ Bowie bregður á leik í ræðu sem hann hélt í Berklee-háskólanum í Boston 1999. Hann ræddi þar um vináttu sína við John Lennon. Reuters AFP Bowie dularfullur og sultuslakur á tónleikum í La Courneuve sumarið 1987. AFP Hópur aðdáenda hefur í vikunni lagt leið sína á Haupt- strasse 155 í Berlín, þar sem Bowie var um tíma til húsa, til að votta goðinu virðingu sína. AFP Fólk kemur saman til að dást að veggmynd af Bowie eftir ástralska götulistamanninn James Cochran, eða Jimmy C, í Brixton-hverfinu í suðurhluta Lundúnaborgar. AFP Bowie í Laugardalshöllinni 20. júní 1996. Honum var fagnað vel og lengi af íslenskum aðdáendum sínum. Morgunblaðið/Golli Aðdáendur Bowies voru snöggir að bregðast við og strax á mánudaginn voru komin blóm, kerti og ljósmyndir fyrir utan íbúð þeirra hjóna í New York AFP Reuters Maður margra andlita. Forsíður bresku blaðanna voru að vonum helgaðar Bowie daginn eftir að tilkynnt var um andlát hans. 17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.