Víkurfréttir - 22.12.1992, Blaðsíða 18
18
JÓLABLAÐ II
Pílukast:
Guðjón meistnri í annað sinn
íslandsbikarinn í pílukasti fór í
immta skipti til Grindavíkur um
síðustu helgi þegar Guðjón Hauks-
son varð meistari í annað sinn, hann
vann einnig 1990. 1 úrslitaleiknum
sigraði Guðjón, Friðrik Jakobsson
Innri-Njarðvíking, í leik aldarinnar
í pílu á íslandi. Þessi leikur var tví-
mælalaust sá besti sem sést hefur
hér á landi, en sem dæmi má nefna
að Guðjón notaði 19, 13 pílur að
meðaltali í leggjunum sjö í úr-
slitaleiknum. I leiknum um bronsið
sigraði Jón Ingi Ægisson úr Vog-
um, Ola Sigurðsson úr Keflavík í
spennandi leik, 4-2, en Jón þessi
skaust upp á stjömuhimininn á
mótinu, sínu fyrsta opinberlega. Öll
verðlaun enduðu í hillum Suð-
urnesjamanna, því Guðjón fékk
verðlaun fyrir „fæstar pílur" 14, og
Friðrik fyrir „hæstan útgang" 140.
Þó við Suðurnesjamenn séum
öflugir í pílunni megum við ekki
láta deigan síga og mun PFS á nýju
ári fara í gang með stórtæka kynn-
ingu á íþróttinni, en eitt af mörgu
jákvæðu við þessa íþrótt er m.a. hin
mikla þjálfun sem menn ná í
>hugarreikningi<!! En með allri
tölvunotkun nútíðarinnar hefur
kunnáttu rnanna á þessu sviði mjög
svo hrakað! Islandbikarinn fór fram
í félagsheimili PFS, Grófinni 8,
Keflavík, en þar geta áhugamenn
um pílu mætt alla daga vikunnar frá
kl. 17-23 til æfinga ellegar til að
kynna sér málin.
yyGtJ-DAMA/ííf^
u *
ORUGGAR VORUR - ORUGGT STARFSFOLK
SOLUSTAÐIR
Söluskúr við
Samkaup
Söluskúr við Fíabúð
Hús Hjálparsveitar
Skáta í Njarðvík
GOTT URVAL!
Tívolítertur
Blys
Tertuúrval
Fjölskyldupakkar
Opnum
mánudaginn
27. desember.
YKKAR STUÐNINGUR - VÖRN GEGN VÁ!
Gormurinn
ú flugi!!
Skagagormurinn Terry Acox flýgur hér yfir sjö manns og
treöur boltanum í körfuna. Hann lék listir sínar fyrir áhorf-
cndur í hálfleik á leik NIKK liðsins og Islandsmeistara ÍBK sl.
sunnudag, við ntikinn fögnuð. Ljósm.: Hulda
Reynismenn í frí
á toppnum
Reynismenn ættu að fara
brosandi í jólafríið, en þeir eru
á toppnum í A-riðli fyrstu
deildar. Síðasti leikur þeirra
fyrir jól fór fram í Sandgerði
fyrir skömmu, þegar þeir léku
við UF Akureyrar. Strax í byrj-
un leiksins sást hvert stefndi.
því Reynismenn sýndu góða
vörn og voru með góða
skotnýtingu, og tryggðu sér
þannig stórsigur. I hálfleik var
staðan 52-35 fyrir Reyni. en
lokatölururðu svo 116-78. Allir
leikmenn fengu að spreyta sig
og stóðu sig mjög vel. Stigin:
Toomer40, Jón G. 15, Sigurþór
14, Sveinn 10, Víðir 9, Tony 9,
Gestur 7, Hemmi 6, Gummi 4
og Aggi 2.
Snóker/Þ-mót:
Gunnarmeð
49 stiga forystu
- þegar eitt mót er eftir
Fimmtánda og jafnframt
næstsíðasta Þ-mótið fór fram á
Knattborðsstofu Suðurnesja sl.
þriðjudag. Spilað var í tveimur
riðlum og fóru fjórir úr hvorum
riðli í átta manna úrslitin. í
undanúrslitunum spiluðu þeir
Adolf Sveinsson og Guð-
mundur Stefánsson, og vann
Adolf 3:0. I hinum leiknum
sigraði Kristján Kristjánsson,
Ragnar Ómarsson, 3:2. Adolf
sigraði svo Kristján í úr-
slitaleiknum, 3:2. Þriðja sætið
hlaut Ragnar eftir 3:2 sigur á
Guðmundi.
Staða efstu manna fyrir síð-
asta mótið sem haldið verður í
kvöld er þessi:
Gunnar Gunnarsson 94
Adolf Sveinsson 45
Ragnar Ómarsson 40
Geir Sigurðsson 37
Allir eru velkomnir á loka-
mótið í kvöld sem fer fram, að
venju, á Knattborðsstofu Suð-
umesja í Grófinni, Keflavík.