Víkurfréttir - 22.12.1992, Blaðsíða 14
14
JOLABLAÐ II
Vogabær stækkar húsnæði
Vikurfréttir
22. desember 1992
Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraðs
Starfskraftur óskast til starfa í
eldhúsi Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraös.
Umsóknarfrestur er til
3. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir
matráöskona í síma 14000.
Framkvæmdastjóri
Vogadýfur með 85%
af innanlandsmarkaði
& i
Óskurn Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla ogfarsældar á
nýju ári meðþökkfyrir við-
skiptin á árinu sem er að líða.
Ólafur Þorsteinsson og Co. hf.
• Guömundur Sigurðsson sýnir Magnúsi Ágústssvni, hreppstjóra
Vatnsleysustrandarhrepps, vélina sem býr til plastbrúsana. Ljósm.: hbb
• Úr vinnslusal Vogabæjar. Þarna eru mjög fullkomnar vélar til sósu-
gerðar og vinnuplássið orðið gott.
Fyrirtækið Vogabær í Vogum
á Vatnsleysuströnd hefur vaxið
og dafnað á undanfömum árum.
Fyrirtækið er sérhæft í sósu-
framleiðslu og framleiðir m.a
hinar þekktu Vogaídýfur og
einnig E. Finnsson sósur. Guð-
mundur Sigurðsson, sem rekur
fyrirtækið ásamt fjölskyldu
sinni, sagði í samtali við blaðið
að í dag hefði fyrirtækið um
85% af innanlandsmarkaði.
Reksturinn er orðinn um-
fangsmikill og þarfnaðist meira
pláss. Því var ráðist í stækkun á
húsnæði fyrirtækisins í Vogum.
Vinnslusalur var stækkaður, auk
þess sem umbúðalager stækkaði
og skrifstofa og kaffistofa
starfsfólks var byggð ofan á
bílskúr. Nú fer framleiðslan því
fram á rúmum 300 fermetrum.
Fyrirtækið er einnig komið út
í umbúðaframleiðslu, því
Vogabær hefur yfir að ráða vél
sem steypir plastbrúsa og er
framleiðslan fjórir brúsar á
mínútu. í tilefni af stækkun fyr-
irtækisins var boðið í hóf á
föstudag og gestum og gangandi
var boðið að skoða fyrirtækið sl.
laugardag og bragða á fram-
leiðslunni.
Félagar í
. . Verkalýds- og
sjómannafélagi Keflavíkur
oq náqrennis!
öára
Munid afmælisfagnaðinn í Félagsbíói
28. desember kl. 20.00.
A dagskránui vcrda m.a.
>
❖ Avörp
❖ Viðurkemiiiigar
Magnús og Jóhann
Leikfélag Keílat íkur
❖ Karlakór Keflavíkur
❖ Veitingar í hátíðarlok.
❖
0.2 des. /jp
♦