Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016
Eftir margra ára rannsóknir hafa
sérfræðingar skorið úr um að lítið
málverk á viðarplötu, sem hefur
lungann af síðustu öld verið í
geymslu í litlu listasafni í Kansas í
Bandaríkjunum, sé eftir hollenska
endurreisnarmeistarann Hierony-
mus Bosch (1450-1516) en ekki ein-
hvern nemanda hans eins og áður
var talið. Bætist málverkið þar við
lista þekktra verka Bosch en á hon-
um eru einungis um 25 málverk og
nokkrir tugir teikninga.
Málverkið sýnir hvar heilags Ant-
óníusar er freistað og var líklega
upphaflega hluti af þrískiptri alt-
aristöflu. Talið er að það hafi verið
málað á árunum 1500 til 1510.
Bosch er frægur fyrir súrreal-
ískar lýsingar á himnaríki, helvíti og
hreinsunareldinum á jörðinni þar á
milli. Í þessum heimi eru allskyns
dríslar og kynjaskepnur og á þessu
litla málverki getur meðal annars að
líta fljúgandi mataráhöld sem sjást
einnig í öðrum verka hans.
Málverkið hafði áður verið eignað
vinnustofu eða áhanganda Bosch og
fyrir vikið ekki verið haldið fram í
safninu í Kansas en það eignaðist
málverkið á fjórða áratug síðustu
aldar. Þessi nýja greining, að verkið
sé í raun eftir meistarann, byggist á
rannsóknum á lögum málverksins,
samanburði á myndefnum og ýms-
um smáatriðum verksins, þar á með-
al pensilstrokum í verkum sem vitað
er að séu án efa eftir hann. Rann-
sóknin tók nokkur ár og kostaði um-
talsvert fjármagn, samkvæmt New
York Times, en sérstök rannsókn-
arnefnd var sett í það að skoða öll
verk eftir Bosch og fylgismenn og
átti verkinu að ljúka í ár, fimm
hundruð árum eftir dauða hans.
Kostaði heildarrannsóknin rúmlega
fjögur hundruð milljónir króna.
Málverkið, „Freisting heilags
Antóníusar“, verður á sýningu sem
verður opnuð í heimabæ Bosch í
Hollandi, s-Hertogenbosch, 13. febr-
úar næstkomandi. Þar verða sýnd 20
af hinum 25 einstöku málverkum
hans auk 19 teikninga.
Verkið í geymslunni eftir Bosch
AFP
Verðmætt Málverk Bosch frá því um 1500 í höndum safnstjóra Nelson-
Atkins Museum of Art í Kansas þar sem það hefur verið í geymslu í áratugi.
Reykjavik
Swing Syndi-
cate kemur
fram á tón-
leikum Jazz-
klúbbsins Múl-
ans í kvöld,
miðvikudags-
kvöld. Tónleik-
arnir hefjast
klukkan 21 á
Björtuloftum,
5. hæð Hörpu.
Reykjavik Swing Syndicate leikur
tónlist frá bannárum síðustu aldar.
Tónlist sem meðal annarra Lester
Young og Django Reinhardt gerðu
góð skil, sinn hvorum megin við At-
landshafið. Meðlimir sveitarinnar
eru Haukur Gröndal á saxófónn og
klarínett, Gunnar Hilmarsson og Jó-
hann Guðmundsson sem leika á gít-
ara og bassaleikarinn Leifur Gunn-
arsson.
Múlinn er nú á sínu 19. starfsári
en hann er samstarfsverkefni Félags
íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og
Jazzvakningar. Klúbburinn er
nefndur eftir Jóni Múla Árnasyni
sem jafnframt var heiðursfélagi og
verndari Múlans. Múlinn er styrktur
af Reykjavíkurborg og Tónlist-
arsjóðnum og er í samstarfi við
Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Haukur Gröndal
Swing Syndicate
verður á Múla
Hin vinsæla dægurlagasöngkona
Adele hefur mótmælt því að hinn
umdeildi frambjóðandi í forvali
Repúblikanaflokksins í Bandaríkj-
unum, Donald Trump, skyldi leika
eitt laga hennar á framboðsfundum.
„Adele hefur ekki gefið leyfi fyrir
því að nein laga hennar séu leikin í
pólitískri baráttu,“ segir í yfirlýs-
ingu. En hún er ekki fyrsti tónlist-
armaðurinn sem er óánægður með
val Trumps á tónlist þeirra. Lög-
menn söngvara Aerosmith, Stevens
Tylers, mótmæltu því í fyrra að
Trump léki lag með sveitinni á fund-
um. Trump svaraði að með flutn-
ingnum hefði Tyler fengið meiri at-
hygli en undanfarin tíu ár.
Neil Young hafði áður bannað
Trump að leika lag sitt „Rockin’ in
the Free World“, og lýsti yfir stuðn-
ingi við demókratann Bernie Sand-
ers. Þá var lag með hljómsveitinni
REM leikið í staðinn. Michael Stipe,
söngvari sveitarinnar, reiddist og
bannaði í harðorðri yfirlýsingu
Trump að láta lög þeirra eða rödd
sína heyrast í „þessari fáránlegu
svokölluðu kosningaherferð“.
AFP
Mótmælir Adele er ekki sátt við að
Trump noti lögin sín í pólitískum tilgangi.
Adele mótmælir
lagavali Trumps
KJARNA SULTUR
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA FRÁ 1984