Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Framkvæmdastjórn Samfylkingar-
innar samþykkti einróma á fundi
sínum um kvöldmatarleytið í gær að
flýta landsfundi flokksins til 4. júní í
sumar. Samhliða landsfundinum
verður haldin allsherjaratkvæða-
greiðsla um embætti formanns, sem
allir flokksmenn hafa kost á að taka
þátt í, komi fram sú ósk frá 150 fé-
lagsmönnum hið minnsta fyrir
landsfund.
Sema Erla Serdar, formaður
framkvæmdastjórnarinnar, segir að
stjórnin vilji kalla í þann kraft sem
býr í 16 þúsund félagsmönnum
flokksins. „Við viljum kalla hópinn
saman til þess að veita forystu
flokksins skýrt
umboð. Auk þess
viljum við nota
fundinn til að
skerpa á mál-
efnavinnu flokks-
ins, ræða saman
um kosningaá-
herslur og leggja
línurnar fyrir
næstu alþingis-
kosningar.“
Sema Erla var spurð hvort und-
irliggjandi óánægja meðal flokks-
manna með formann flokksins væri
ekki ástæða þess að landsfundinum
hefði verið flýtt. „Það kom fram
ákall á meðal félagsmanna, alþing-
ismanna, landshreyfinga og aðild-
arfélaga og við tökum tillit til þess
ákalls í þessari ákvörðun, en ég vil
meina að þetta snúist um það að sú
forysta sem leiðir flokkinn í næstu
kosningum hafi skýrt umboð allra
félagsmanna,“ segir Sema Erla, en
einungis fengu landsfundargestir að
kjósa í síðustu formannskosningum
Samfylkingarinnar fyrir ári, þegar
Árni Páll Árnason var endurkjörinn
formaður með 241 atkvæði, aðeins
einu atkvæði fleiri en Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir sem bauð sig fram
á móti honum.
Árni Páll gaf ekki skýr svör
Árni Páll vildi í fréttum Stöðvar 2
í gærkvöldi ekki svara því hvort
hann hygðist gefa aftur kost á sér
til formennsku í Samfylkingunni.
Það kæmi í ljós fljótlega.
Samfylkingin flýtir
formannskjöri til sumars
Sema Erla
Serdar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, segir að
bregðast þurfi við mikilli fjölgun
bílaleigubíla í bænum. Víða í bænum
sé ástandið að nálgast þolmörk.
Er þetta eitt af mörgum dæmum
um hvernig væntanleg fjölgun er-
lendra ferðamanna um nokkur
hundruð þúsund í ár mun reyna á
innviði landsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
göngustofu eru skráðar 32 bílaleigur
í Reykjanesbæ, ein í Sandgerði, 15 í
Hafnarfirði og fjórar í Garðabæ. Alls
eru þetta 52 bílaleigur í Reykjanes-
bæ og nálægum sveitarfélögum.
Hefur Egill Jóhannsson, forstjóri
Brimborgar, áætlað að um 18 þús-
und bílaleigubílar verði í umferð í ár.
Vilja vera nærri flugstöðinni
Kjartan Már segir að leysa þurfi
bílastæðavanda bílaleiganna.
„Það eru bílaleigur úti um allt.
Einhverjar eru með geymsluaðstöðu
í Helguvík. Þeir aðilar sem hafa rætt
við okkur vilja vera sem næst flug-
stöðinni og Reykjanesbrautinni,
þannig að vörumerkið sjáist frá
Reykjanesbraut. Það eru alls konar
óskir og þarfir. Við höfum ekki náð
að sinna þessu alveg nógu vel, en
þetta mál er klárlega eitt af því sem
þarf að fara að taka á dagskrá. Við
tökum eftir því að bílar eru hér
geymdir á stæðum sem eru jafnvel
ætluð undir annað, sérstaklega yfir
vetrarmánuðina. Bílaleigur sækja í
lóðir hér í bænum. Ég veit að fulltrú-
ar margra þeirra hafa einnig rætt
við hin sveitarfélögin, það er að
segja Garð og Sandgerði.
Þegar að er gáð er þetta
sameiginlegt úrlausnarefni, hygg ég,
af því að flugvöllurinn er í landi
Sandgerðis, en það þarf að aka í
gegnum Reykjanesbæ og Garð til
þess að komast þangað. Þetta teng-
ist allt. Það vilja allir vera nálægt
flugvellinum. Við vitum að erlendis
eru bílaleigur með afgreiðslu á flug-
völlum, þótt þær séu ekki á besta
stað. Þetta þarf að ræða við Isavia
og skipulagsyfirvöld á flugvellinum.“
Spurður hvort til greina komi að
stækka bílastæðin nærri Keflavíkur-
flugvelli segir Kjartan Már að menn
„séu að horfa á miklu verðmætari
starfsemi á því svæði en malbikuð
plön“. Hann vísar svo til áætlunar
Isavia um uppbyggingu á flugvell-
inum 2015-2040. Þar sé gert ráð fyr-
ir milljarða uppbyggingu á hverju
ári, með vöruhúsum, hótelum, skrif-
stofurými og fjölda bygginga.
Mikil fjölgun gistirýma
Kjartan Már segir mikla fjölgun á
gististöðum í Reykjanesbæ einnig til
umræðu í bænum. Á vefnum Airbnb
séu yfir 300 valmöguleikar þegar
leitað er að gistingu í bænum.
„Rætt er um hvort leyfa eigi öllum
að opna gistiheimili af því að viðkom-
andi á eitt herbergi eða tvö laus í
húsinu sínu. Hvað þýðir það fyrir
íbúa í næstu húsum ef það koma litl-
ar rútur? Það þarf að hugsa þessi
mál,“ segir Kjartan Már.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sýslumanninum á Suðurnesjum eru
66 rekstrarleyfi vegna gististaða í
gildi í bæjarfélaginu. Þau skiptast
þannig að 44 rekstrarleyfi eru í
Reykjanesbæ, 9 leyfi eru í Grinda-
vík, 8 leyfi eru í Vogum, 3 leyfi eru í
Garði og 2 leyfi eru í Sandgerði.
Leitarvél Airbnb bendir til að
gististaðirnir séu í raun mun fleiri.
Bílamergðin við þolmörkin
Morgunblaðið/Baldur Arnarson
Keflavíkurflugvöllur Breiður af bílaleigubílum voru við völlinn sl. sumar.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að bregðast þurfi við fjölgun bílaleigubíla
Banaslys varð í Reynisfjöru í gær
þegar alda hrifsaði til sín erlendan
ferðamann eftir að hann missti fót-
anna. Um var að ræða karlmann
sem var á ferð með eiginkonu sinni.
Haft er eftir Bryndísi Fanneyju
Sveinsdóttur, sem er í svæðisstjórn
Landsbjargar og í björgunarsveit-
inni Víkverja í Vík í Mýrdal, á mbl.is
að maðurinn hafi staðið á stuðla-
bergi í fjörunni og virt fyrir sér nátt-
úruna. Skyndilega skall alda á berg-
inu með þeim afleiðingum að mað-
urinn féll í sjóinn. Aðstæður voru
góðar; lygn sjór, bjart og nokkuð
stillt veður.
Í kjölfar atburðarins í gær ákváðu
innanríkisráðherra og iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, í samráði við lög-
regluna á Suðurlandi, í ljósi endur-
tekinna atburða í Reynisfjöru og
banaslyssins í gær að frá og með
deginum í dag verði þar lögreglu-
vakt um óákveðinn tíma.
larahalla@mbl.is
Banaslys
í Reynis-
fjöru
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Reynisfjara Erlendur karlmaður drukknaði í sjónum við Reynisfjöru í gær. Aðstæður voru góðar þegar skyndileg alda hrifsaði manninn til sín.
Reykjavík Ex-
cursions í sam-
vinnu við Rauða
krossinn gaf í
gær ferðamönn-
um á vegum fyr-
irtækisins ösku-
poka í tilefni
öskudags. ,,Með
þessu verki vilj-
um við bæði
vekja athygli á og
endurvekja þessa skemmtilegu og
séríslensku hefð,“ segir í tilkynningu
frá Reykjavík Escursions. Þá segir
jafnframt að uppátækið hafi vakið
lukku. Sérstaklega á meðal íslenskra
viðskiptavina. „Um tíma tóku allir
þátt í þessu athæfi þó að seinna meir
hafi börn á öllum aldri tekið yfir
hefðina. Sums staðar á landinu var
sá siður tíðkaður að stelpur settu
ösku í sína poka til að hengja á
stráka, á meðan strákar settu smá-
steina í sína poka til að hengja á
stelpur. Síðustu ár hafa pokarnir þó
verið tómir, enda erfitt fyrir flesta
krakka að komast í ösku, og þótti
skemmtilegast að ná að krækja þeim
í fullorðna.“
Fengu
öskupoka
að gjöf
Öskupoki Vilja
endurvekja hefð.