Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Pavel Manásek
23. - 30. apríl
Gullborgin Prag
Vor 4
Á vorin skartar Prag í Tékklandi sínu allra fegursta. Borgin
er afar skemmtileg þar sem andi miðalda ræður ríkjum
í bland við blómstrandi listalíf. Í þessari ferð skoðum við
t.d. Karlsbrúna og Hradcanykastalann í Prag, en stöldrum
einnig við í Pilsen, heilsubænum Karlovy Vary og Nürnberg
í Þýskalandi. Ferð sem kemur skemmtilega á óvart!
Verð: 186.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Fundur fer fram hjá utanríkismála-
nefnd Alþingis í dag þar sem rætt
verður um viðbúnað Bandaríkjanna á
Keflavíkurflugvelli. Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra mætir á
fundinn og svarar spurningum nefnd-
armanna um málið.
Fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs í utanríkismálanefnd,
Steinunn Þóra Árnadóttir, óskaði í
gærmorgun eftir fundi í nefndinni um
málið og sagði Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, formaður nefndarinnar, í sam-
tali við mbl.is að sjálfsagt hefði verið
að verða við því. Greint var frá því á
þriðjudaginn að til stæði að fara í
framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli af
hálfu Bandaríkjanna og spunnust þá
umræður um það hvort til stæði að
auka viðveru bandarískra herflugvéla
hér á landi.
Ekki aukin viðvera hersins
Bandaríski sjóherinn hefur beðið
um fjárveitingu upp á 2,7 milljarða ís-
lenskra króna á fjárlögum 2017 til
þess að taka í gegn flugskýli á Kefla-
víkurflugvelli. Pamela Rawe, talsmað-
ur varnarmálaráðuneytis Bandaríkj-
anna, segir að ekki standi annað til en
að gera lagfæringar á aðstöðunni á
Keflavíkurflugvelli til þess að hægt
verði að þjónusta P-8A eftirlitsflugvél-
ar í framtíðinni í stað P-3 Orion flug-
véla líkt og gert hafi verið til þessa.
Hvorki stæði til aukin viðvera banda-
rískra herflugvéla hér á landi né var-
anleg.
Nýjar flugvélar inn fyrir eldri
Rawe segir að P-8A eftirlitsflugvél-
arnar muni þannig sinna sama eftirliti
og P-3 Orion vélarnar hafi gert til
þessa. Þessar breytingar hér á landi
séu aðeins hluti af langtímaáætlunum
bandarískra hermálayfirvalda á
heimsvísu sem byggist á því að P-3
flugvélarnar séu smám saman á útleið
en þær voru fyrst teknar í notkun árið
1962. P-8A vélarnar voru hins vegar
teknar í notkun árið 2013 en þær eru
uppfærð útgáfa af Boeing 737-
800ERX farþegaþotunni.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu
varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna
er ætlunin að P-8A eftirlitsflugvélarn-
ar geti sinnt stuttum eftirlitsferðum.
Fyrir utan breytingar á dyrum flug-
skýlisins þurfi að koma rafmagnsmál-
um þannig fyrir að hægt sé að þjón-
usta flugvélarnar og mála línur á
flugvöllinn. Einnig þurfi að styrkja
gólfið í flugskýlinu vegna þyngdar
P-8A vélanna. Þá þurfi að koma upp
viðeigandi hreinsiaðstöðu fyrir flug-
vélarnar í kjölfar eftirlitsflugs.
Segir tortryggnina eðlilega
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, segir tortryggnina í
garð Bandaríkjahers eðlilega og verð-
skuldaða. „Miðað við það sem ég les í
Stars and Stripes, þaðan sem þessar
fréttir virðast allar koma, þá eru
Bandaríkjamenn aðeins að hugsa um
að auka eftirlit með kafbátaferðum
sem í fljótu bragði virðist mjög sak-
laust. Hins vegar verður að segjast
eins og er að sú tortryggni sem skap-
ast þegar svona fréttir berast er mjög
eðlileg og verðskulduð,“ segir Helgi.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs, telur aukin hernaðarumsvif
ekki til þess fallin að draga úr spennu
á milli ríkja. „Mér líst náttúrlega ekki
á þetta. Bæði líst mér illa á aukna við-
veru herliðs hér á landi og síðan vekur
þetta áhyggjur af stöðu alþjóðamála.
Ég var nú að vonast til þess að þegar
herinn fór á sínum tíma væri hann
endanlega farinn,“ segir hún
„Ég hef talað fyrir því opinberlega
að það sé mjög mikilvægt, ekki síst
núna þegar við horfum upp á mjög
ófriðlegt ástand víða í heiminum, að
lögð sé mikil áhersla á að eiga pólitísk
samtöl og reyna að finna pólitískar
lausnir til að mynda í samskiptum við
Rússa svo dæmi sé tekið,“ sagði Katr-
ín.
Utanríkismálanefnd Alþingis fundar í dag um viðbúnað Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna
segir að viðvera hersins aukist ekki
Morgunblaðið/Arnaldur
Herinn Fyrirhugaðar framkvæmdir Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli
kosta 2,7 milljarða króna. Breyta þarf flugskýli hersins á vellinum.
Mosfellsbæ var óheimilt að krefja ríkið um rúmlega 100
milljónir í gatnagerðargjöld vegna byggingar Fram-
haldsskólans í Mosfellsbæ og í kjölfarið skuldajafna þá
kröfu við innheimtu ríkisins á byggingarkostnaði, sam-
kvæmt dómi héraðsdóms. Haraldur Sverrisson bæjar-
stjóri segir niðurstöðuna vonbrigði en bærinn þarf að
endurgreiða upphæðina. „Þetta verður tekið fyrir í bæj-
arráði í fyrramálið og ég geri ráð fyrir að dómnum verði
áfrýjað til Hæstaréttar. Okkur fannst málstaður Mos-
fellsbæjar sterkur í þessu máli: Að lögin kvæðu á um það
að greiða skyldi lögbundna skatta af svona húsi sem og
annarra, sem ríkið sjálft ákveður,“ segir Haraldur.
Mosfellsbæ gert að endurgreiða ríkinu um
100 milljónir króna í héraðsdómi
Bæjarstjóri Har-
aldur Sverrisson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Gistipláss í uppblásinni kúlu inni í
skógi í Biskupstungum er uppselt
fram á vor. Róbert Sveinn Róberts-
son, frumkvöðull hjá Ferðamönnum
Íslands, setti kúluna upp í desember
sl. og viðbrögðin létu ekki á sér
standa. Hann er með vefsíðuna
buubble.com þar sem yfirskriftin er
Fimm milljón stjarna hótelið. Hún
vísar til þess að í kúlunni er óskert
sýn til himinhvolfsins. Gestirnir
bóka gistingu í gegnum síðuna.
„Það hefur verið stanslaus um-
fjöllun um þetta erlendis. Ég keyri
aðallega á veturinn, norðurljósin og
stjörnurnar,“ sagði Róbert. „Þetta
hefur gengið framar vonum og er
orðið fullbókað. Einu fyrirspurnirn-
ar sem ég fæ núna eru um hvort fólk
komist á biðlista ef einhver dettur
út.“ Gestirnir hafa verið blanda af
Bandaríkjamönnum, Bretum og
Asíubúum.
Kúlan er úr gegnsæju plasti og er
henni haldið uppi af hlýju lofti sem
stöðugt er dælt inn í kúluna. Róbert
kvaðst hafa leitað að kúlu sem hent-
aði íslenskum aðstæðum. Hún
stendur á palli sem er í skjóli hárra
trjáa inni í skógi. Staðurinn var val-
inn eftir vindmælingar í hálft ár.
Trén verja kúluna fyrir veðri og
sterkum vindum. Utan við kúluna er
salernisaðstaða. Róbert prófaði kúl-
una í heilan mánuð áður en útleiga
hófst. Hann gisti þar ýmist sjálfur
eða eins vinir og vandamenn.
„Það er æðislegt að liggja í kúl-
unni. Slökkva ljósin og vera bara úti
í náttúrunni. Heimurinn og himininn
opnast einhvern veginn fyrir manni.
Þetta er mjög sérstök lífsreynsla
sem orð fá ekki lýst,“ sagði Róbert.
Hann hefur nú pantað tvær kúlur til
viðbótar og hyggst bæta aðstöðuna
fyrir gestina enn meira. Auk þess
hyggst hann færa út tjaldhælana.
„Ég ætla að leita samvinnu við
fleiri skógarbændur. Svona gisting
getur hentað víða og sérstaklega hjá
skógarbændum sem vilja fá meiri
arð af skóginum,“ sagði Róbert.
„Það er hægt að þróa þetta í allar
áttir og bjóða upp á lúxusgistingu,
eða heilsutengda gistingu og þess
vegna tengja hana við jóga. Hug-
myndirnar fæðast endalaust.“
Ljósmynd/Róbert Sveinn Róbertsson
Náttúrukúlan Það er gott skjól inni á milli trjánna. Gestirnir slökkva ljósin og virða fyrir sér stjörnur og norðurljós.
Vinsælt er að kúra í
gegnsærri náttúrukúlu
Gisting í náttúrukúlunni er uppseld fram á vor
Vera bandaríska hersins á Ís-
landi á sér langa sögu. Árið
1941 var gerður herverndar-
samningur við Bandaríkjamenn
og tóku þeir þá við vörnum
landsins af Bretum, en Bretar
hernámu Ísland árið 1940. Árið
1951 gerði Ísland varnarsamn-
ing við Bandaríkin og var þeim
látinn í té Keflavíkurflugvöllur
og annað nauðsynlegt land-
svæði. Eftir fall Sovétríkjanna
1990 dró smám saman úr um-
svifum varnarliðsins. Viðræður
um breytt fyrirkomulag varn-
anna á grundvelli samningsins
frá 1951 hófust um miðjan tí-
unda áratug síðustu aldar en
leiddu aldrei til endanlegrar
niðurstöðu. Árið 2006 tilkynntu
Bandaríkin með skömmum fyr-
irvara þá ákvörðun sína að flytja
herlið sitt frá Íslandi. Varnar-
samningurinn frá 1951 er þó
enn í fullu gildi.
Margra ára-
tuga saga
VARNARLIÐIÐ