Morgunblaðið - 11.02.2016, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Útsölulok 70% afslátturaf öllum útsöluvörum
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Stærðir 38-54
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Pabbi og afi æfðu báðir fót-bolta á malarvelli heima íNeskaupstað þegar þeirvoru yngri, þannig að fót-
boltagenin eru í blóðinu. En Nes-
kaupstaður er mun þekktari fyrir
blakið en fótboltann, sérstaklega
kvennablakið. Við prófuðum báðar að
æfa blak áður en við snerum okkur
alfarið að fótboltanum,“ segja fót-
boltasysturnar Klara og Telma Ívars-
dætur sem báðar æfa fótbolta í meist-
aradeild, Klara sem varnarsinnaður
miðjumaður hjá ÍR en Telma sem
markmaður hjá Breiðabliki. Klara er
tvítug en Telma 16 ára og þær eru
eðli málsins samkvæmt
fluttar suður til að geta
stundað æfingar. En
þær fæddust og ólust
upp austur í Neskaup-
stað, og eru hreinrækt-
aðir Austfirðingar.
„Mamma er frá Seyð-
isfirði en pabbi frá Nes-
kaupstað.“
Klara flaug reynd-
ar fyrst úr hreiðrinu 18
ára þegar hún flutti
norður á Akureyri til að
komast í betri aðstæður til fótbolta-
æfinga.
„Heima í Neskaupstað þurftum
við að fara til Reyðarfjarðar á æfing-
ar yfir veturinn því þar er íþróttahöll.
Við fórum fimm sinnum í viku á æf-
ingar og það tók klukkutíma hvora
leið. Auk þess var skarðið oft ófært.“
Alltaf uppgefnar á kvöldin
Þær segja íþróttalífið í Neskaup-
stað mjög líflegt og Telma byrjaði
fjögurra ára í fótbolta en Klara þegar
hún var tíu ára, sem þeim finnst mjög
seint.
„En við byrjuðum báðar á skíð-
um tveggja ára,“ segja þær og hlæja.
„Ég var svo ofvirkur krakki að
ég vildi prófa allt sem Klara var að
gera. Við vorum báðar í öllum íþrótt-
um sem voru í boði, í blaki, sundi, fim-
leikum og skíðum, en fótboltinn stóð
upp úr og við vorum báðar á samningi
hjá Fjarðabyggð áður en við komum
suður.“
Þær segja þetta vissulega hafa
útheimt mikla orku og tíma og þær
muni eftir að hafa sem börn alltaf
verið uppgefnar á kvöldin og sofn-
aðar klukkan níu.
„En þetta er svona enn í Nes-
kaupstað, flestir yngri krakkarnir
eru í fótbolta, blaki og jafnvel líka á
skíðum og að æfa á hljóðfæri. Svo
höfum við heyrt að körfubolti sé nýj-
asta æðið heima.“
Vinnur líka sem dyravörður
Þær systur sinna ekki aðeins
boltanum heldur líka náminu. Klara
er stúdent en hún tók bæði náttúru-
fræðibraut og hárgreiðslu í fram-
haldsskólanum í Neskaupstað.
„Ég útskrifaðist af náttúru-
fræðibraut á þremur árum og þegar
ég var svo heppin að komast á samn-
ing hjá Eplinu hárstofu í Reykjavík,
þá ákvað ég að drífa í að klára hár-
greiðsluna og núna er ég að vinna
mig upp í sveinsprófið.“
Telma er á fyrsta ári
í Menntaskólanum í
Kópavogi og þar leigja
þær saman litla íbúð.
Meistaraflokksæfingar í
fótboltanum eru sex
sinnum í viku hjá þeim
systrum.
„Þar fyrir utan er
leikur hverja helgi,
landsliðsæfingar einu
sinni í mánuði og svo
reynum við líka að æfa
aukalega. Við förum
svona átta sinnum í viku á æfingar.
Við komum yfirleitt heim um klukkan
níu á kvöldin og þá eigum við eftir að
elda. Við erum oft að borða kvöldmat
um hálfellefu og þá eigum við eftir að
fara í sturtu og Telma á eftir að læra.
Það þarf að hafa brennandi áhuga á
fótbolta til að standa í þessu, þetta er
eins og full vinna. En okkur finnst
þetta svakalega skemmtilegt,“ segir
Klara sem vinnur líka sem dyravörð-
ur á American bar um helgar. Telma
vinnur alla sunnudaga sem aðstoð-
arþjálfari sjöunda flokks kvenna við
markmannsþjálfun.
Klara segist sérlega ánægð með
þjálfara síns liðs, Guðmund Guð-
jónsson.
„Hann byrjaði með liðið um ára-
mótin og hefur rifið það upp, við unn-
um KR um daginn. Hann er svo
áhugasamur að hann nær að peppa
alla upp með sér og hann hefur fengið
nýja í liðið.“
Hringir í mömmu til
að fá leiðbeiningar
Telma er nokkuð ung til að flytja
langt frá heimahögum og fjölskyldu,
enda finnst henni það erfitt.
„Mamma og pabbi hafa gert allt
hingað til sem ég þarf að gera núna
sjálf, þvo þvottinn, elda og þrífa. Ég
hef hringt í mömmu til að fá leiðbein-
ingar í hvert einasta skipti sem ég
elda,“ segir Telma og Klara bætir við
að Telma eldi alltaf fyrir mjög marga.
„Hún eldaði grjónagraut um daginn
sem hefði dugað fyrir alla íbúa göt-
unnar.“
Telma segir það vera mikla
breytingu að vera allt í einu byrjuð í
fullorðinslífi og hafa ekki fjölskyld-
una sína hjá sér.
„Við erum einu börn foreldra
okkar svo þetta eru líka viðbrigði fyr-
ir þau. Það tekur níu klukkutíma að
keyra úr bænum til Neskaupstaðar
svo við erum ekkert að skjótast.“
Stefna á fótbolta í Bandaríkj-
unum og nám í lýtalækningum
Þær segja muninn á því að búa í
Reykjavík eða í Neskaupstað helst
vera þann að allt sé einfaldara fyrir
austan og þægilegra. „Þar er hægt að
ganga milli allra staða og maður
þekkir alla. En Reykjavík hefur aðra
kosti, okkur finnst þægilegt að geta
farið í matarbúð á öllum tímum sólar-
hringsins, sérstaklega fyrir okkur
sem komum alltaf seint heim á kvöld-
in. Og það er líka hentugt fyrir okkur
að geta stundum hoppað á skyndibita-
staði. Svo höfum við kynnst mörgu
fólki frá því við fluttum suður og það
stækkar lífið okkar og tengslanetið.“
Systrunum semur ágætlega í
sambúðinni, miðað við að þær slógust
og rifust þónokkuð þegar þær voru
litlar.
Þær horfa björtum augum til
framtíðar og Telma stefnir að því að
klára menntaskólann og fara eftir það
til Bandaríkjanna í skóla. „Því þar er
hægt að fá styrk í háskóla ef maður er
góður í fótbolta.“
Klara ætlar að klára hárgreiðsl-
una á næsta ári og eftir það er aldrei
að vita hvað hún tekur sér fyrir hend-
ur.
„Mig hefur langað frá því ég var
sex ára til að verða lýtalæknir,
kannski skelli ég mér bara í lækn-
isfræði. En mig langar margt annað
líka, ég ætla til dæmis að læra förð-
unarfræði á þessu ári og mig langar
til að ferðast. Það er allt opið hjá mér
með framtíðarplönin.“
Þarf að hafa brennandi áhuga
Þær voru í öllum íþróttum sem voru í boði þegar þær
voru stelpur heima í Neskaupstað, blaki, sundi, fim-
leikum, skíðum og fótbolta. Fótboltinn stóð upp úr og
nú æfa þær báðar í meistaradeild fyrir sunnan. Þær
leigja saman og matseldin gengur misvel.
Morgunblaðið/Eggert
Sambýlissystur Klara og Telma Ívarsdætur leigja saman íbúð í Kópavogi.
Telma sér um að elda pasta en Klara sér oftast um að elda annað.
Fagna Í sumar spiluðu systurnar fyrir Fjarðabyggð.
Töffarar Klara 10 ára og Telma 7 ára sigurglaðar með
bikar á milli sín á Pæjumóti á Siglufirði á bernskuárum.
Systrunum
semur ágæt-
lega í sambúð-
inni, miðað við
að þær slógust
og rifust þó-
nokkuð þegar
þær voru litlar.
Viltu kynnast einhverjum sem talar
reiprennandi spænsku, frönsku eða
ítölsku? Talar þú eitt af þessum
tungumálum sem móðurmál og hefur
áhuga á deila því með einhverjum
sem er að reyna að ná tökum á því?
Nemendur og kennarar í spænsku,
frönsku og ítölsku við Háskóla Ís-
lands bjóða alla áhugasama um þessi
þrjú tungumál sem töluð eru víða um
heiminn til tungumálastefnumóts í
Stúdentakjallaranum í Háskóla Ís-
lands í dag kl. 15.30-17.00. Þetta
kemur fram í tilkynningu og einnig að
kynnt verða tækifæri í námi í róm-
önskum tungumálum við Háskóla Ís-
lands.
Dúóið „La Belle et la Bête“ sem
þau Eyjólfur og Ásta skipa, ætlar að
koma fram og syngja og spila tónlist
á frönsku af sinni rómuðu snilld.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Café Lingua – lifandi tungumál, er
tungumálavettvangur á vegum Borg-
arbókasafnsins í samstarfi við ýmsa
aðila í samfélaginu. Eitt af mark-
miðum Café Lingua er að virkja þau
tungumál sem hafa ratað til Íslands
með fólki hvaðanæva og auðgað
mannlíf og menningu ásamt því að
vekja forvitni borgarbúa á heiminum
í kringum okkur. Fylgist með Café
Lingua á heimasíðunni www.borgar-
bokasafn.is og í Facebook „Café
Lingua – lifandi tungumál“.
Spjall og kynning á tækifæri í námi í rómönskum tungumálum
Boðið til tungumálastefnumóts í Stúdentakjallara