Morgunblaðið - 11.02.2016, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samkomulag hefur tekist um að N1
kaupi vistvæna lífdíselolíu af fyrir-
tækinu Íslensku eldsneyti ehf., sem
er með verksmiðju í Reykjanesbæ
og hefur verið að framleiða vist-
vænt eldsneyti úr repjuolíu.
N1 hyggst nota lífdíselolíuna til
íblöndunar í hefðbundna díselolíu á
sölustöðvum sínum en félagið hefur
til þessa nær eingöngu flutt slíkt
eldsneyti inn. Reglugerð kveður á
um að í díselolíu sé hlutfall vist-
væns eldsneytis 5-7%.
Framleiðsla Íslensks eldsneytis
(ÍE), upp á 1,2 milljónir lítra til að
byrja með, mun ekki sinna allri
þörf N1 sem mun halda áfram inn-
flutningi íblöndunarefnis og þá frá
sænskum samstarfsaðila ÍE, Pers-
torp. Stefnir ÍE að því að geta
framleitt 2,5 milljónir lítra strax á
næsta ári en nokkrir aðilar eru
þegar farnir að nota eldsneytið,
m.a. rútufyrirtækið Gray Line Ice-
land sem nýverið keypti 30% hlut í
ÍE. Samkomulagið við N1 gefur
olíufélaginu jafnframt forkaupsrétt
á hlutum í ÍE á næstu árum.
1.500 möguleikar
með glyseríni
Fyrirtækið hefur einnig mikinn
áhuga á að fá til sín samstarfsaðila
til að setja upp litla verksmiðju á
Sauðárkróki til að hreinsa glyserín.
Það efni fellur til í framleiðslu á líf-
eldsneyti úr repju og getur verið til
ýmissa hluta nytsamlegt, s.s. til að
búa til sápur, krem, lyf, orkustykki,
lakk, bjór og kókdrykki. Hefur
hugmyndin fengið mjög jákvæð við-
brögð heimamanna og verður
kynnt nánar á næstunni.
Pétur Friðjónsson, stjórnar-
formaður Íslensks eldsneytis, segir
glyserín hafa yfir 1.500 notkunar-
möguleika og mörg fyrirtæki hér á
landi flytji efnið inn í sína fram-
leiðslu.
Verksmiðja á Sauðárkróki gæti
skapað fimm störf en forráðamenn
ÍE hafa nú þegar fundið tækjabún-
að erlendis sem hægt er að flytja
inn til landsins án mikillar fyr-
irhafnar. Slík verksmiðja gæti
framleitt árlega 10-15 milljónir lítra
af hreinu glyseríni og þarfnast ekki
mikillar orkunotkunar.
Þörungaolía hefur gefist vel
„N1 er og hefur verið í farar-
broddi hvað innleiðingu á umhverf-
isvænum orkugjöfum varðar und-
anfarin ár og okkar innlenda
framleiðsla passar vel við stefnu
þeirra í þeim málum,“ segir Þor-
geir Hafsteinn Jónsson, nýráðinn
framkvæmdastjóri Íslensks elds-
neytis.
„Það felst í því mikil samfélags-
leg ábyrgð að skipta úr repjuolíu
yfir í þörungaolíu. Repjuolía er
mikið notuð í matarframleiðslu en
með því að minnka það, og fara yfir
í þörunga, er verið að ýta undir það
að nota ekki alla repju í eldsneyti,“
segir Þorgeir.
Undanfarin þrjú ár hefur Ís-
lenskt eldsneyti unnið að tilraunum
á ræktun þörungaolíu í samstarfi
við Perstorp. Sigurður Eiríksson,
stofnandi og einn eigenda ÍE, segir
þær tilraunir hafa gefist mjög vel
og næsta skref sé að setja upp
stærri aðstöðu í Reykjanesbæ fyrir
slíka framleiðslu. Samningurinn við
N1 skipti sköpum í þessu sam-
bandi.
Vilja fanga koltvísýringinn
„Við viljum einbeita okkur að
framleiðslu á olíu og þörungum og
nota til þess íslenskt metanól og ís-
lenskt vatn. N1 mun þá sjá um
dreifinguna. Við viljum nýta hrá-
efnið sem best og glyserínið er
dæmi um það. Við ætlum okkur
ekki að reka þá verksmiðju sjálfir
heldur koma henni af stað og fá
áhugasama aðila til liðs við okkur,“
segir Sigurður.
Að hans sögn er einnig verið að
skoða möguleika á færanlegum
vinnslustöðvum til að fanga út-
blástur koltvísýrings frá stóriðju-
fyrirtækjum, sem síðan er notað til
þörungaræktunar.
Forsvarsmenn ÍE segja notkun á
þörungaolíu hafa gefist vel erlendis,
t.d. séu nokkur stór flugfélög farin
að nota slíkt eldsneyti, eins og Uni-
ted Airlines og Virgin Atlantic.
Íslenskt eldsneyti semur við N1
N1 notar íslenska lífdíselolíu sem íblöndun ÍE skiptir úr repju yfir í framleiðslu á þörungaolíu
Samningurinn við N1 skiptir sköpum Vilja setja upp glyserínverksmiðju á Sauðárkróki
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Rannsóknaskipin Árni Friðriksson
og Bjarni Sæmundsson verða áfram
við mælingar á loðnustofninum næstu
daga og auk þeirra aðstoðar græn-
lenska skipið Polar Amaroq við verk-
efnið. Birkir Bárðarson leiðangurs-
stjóri segir að reynt verði að ná góðri
mælingu á loðnugöngummeð áherslu
á Austfjarðarmið að Langanesi til að
byrja með a.m.k.
Útgefinn loðnukvóti á vertíðinni er
173 þúsund tonn og þar af koma 100
þúsund t. í hlut íslenskra skipa. Erfið-
lega gekk að ná mælingum á loðnunni
í hefðbundnum leiðöngrum, en alls
mældust um 675 þúsund tonn. Vonir
standa til að kvótinn verði aukinn að
loknum þessum leiðangri.
Fjölgun hvala umhugsunarefni
Fjölmörg norsk loðnuskip hafa
fengið góðan afla síðustu daga, en oft
hefur verið kraftur í fremsta hluta
göngunnar. Mörg norsku skipanna
hafa landað hérlendis síðustu daga,
einkum í Neskaupstað og á Fáskrúðs-
firði. Á þessum stöðum er loðnufryst-
ing í fullum gangi.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er
haft eftir Halstein Waage, skipstjóra
á norska loðnuskipinu Manon, að ver-
tíðin nú sé afar góð og vel hafi gengið
að veiða loðnu í nót að undanförnu.
Einnig er haft eftir honum að gríð-
arlegur fjöldi hvala sé á miðunum og
þeir hafi valdið miklum skemmdum á
veiðarfærum hjá mörgum skipanna.
Hann segir fjölgun hvala vera mikið
umhugsunarefni, ekki bara á Íslandi
heldur einnig í Noregi. Halstein kom
fyrst á Íslandsmið árið 1963 þegar
hann var háseti á síldarbáti en skip-
stjóri hefur hann verið frá árinu 1974.
Að hætta á kolmunna
Flest íslensku skipanna eru hætt
eða um það bil að hætta á kolmunna-
veiðum suður af Færeyjum. Kol-
munninn var orðinn smár og á hraðri
leið út úr færeysku lögsögunni. Búast
má við að fleiri íslensk skip haldi til
loðnuveiða um eða upp úr helgi, en til
þessa hefur aðeins Vilhelm Þorsteins-
son verið á loðnuveiðum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Leit Árni Friðriksson lætur úr höfn.
Mæla loðnugöngur
áfram næstu daga
Norðmenn ánægðir með aflabrögð
Þorgeir Haf-
steinn Jóns-
son viðskipta-
fræðingur var
nýverið ráðinn
framkvæmda-
stjóri hjá Ís-
lensku elds-
neyti ehf.
Hann hefur frá
árinu 2006
starfað við fjármál, fjárfest-
ingar og rekstur. Síðast starfaði
Þorgeir sem fjármálastjóri hjá
fjárfestinga- og fasteignafélag-
inu Þórsgarði hf. en þar áður
sem verkefnastjóri í fyrirtækja-
ráðgjöf Ernst & Young frá 2011
til 2014.
Á árunum 2006 til 2011 var
hann sjóðstjóri hjá verðbréfa-
fyrirtækinu Virðingu þar sem
hann stýrði norrænum hluta-
bréfasjóði.
Þorgeir er með BS-gráðu í
viðskiptafræði og hefur lokið
meistaragráðu frá Háskólanum
í Reykjavík í fjármálum fyr-
irtækja.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
ÍSLENSKT ELDSNEYTI
Þorgeir Hafsteinn
Jónsson
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Íslenskt eldsneyti Þorgeir Hafsteinn Jónsson framkvæmdastjóri sýnir þeim Sigurði Eiríkssyni, til vinstri, og Pétri
Friðjónssyni nýtt kynningarmyndband. Fyrirtækið var stofnað af Sigurði og fleirum árið 2013.