Morgunblaðið - 11.02.2016, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Gefðu ástinni þinni DW úr og natoól fylgir frítt með til 21. febrúar
Valentínusardagurinn - Konudagurinn
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framleiðsla í fiskeldi stóð í stað á síð-
asta ári, jókst ekki frá árinu á undan.
Minna af laxi var slátrað upp úr
sjókvíum en aukning í bleikju og regn-
bogasilungi vó það að mestu upp. Þá
er þorskeldið að hverfa en í staðinn
kemur ný tegund, Senelgalflúra.
Skýringin á samdrætti í laxi er að fyr-
irtækin hafa frestað því að slátra sem
þýðir að lífmassi hefur aldrei verið
meiri og leiðir til mikillar uppsveiflu í
ár.
Heildarframleiðsla lagardýra fór úr
8.387 tonnum í 8.334 tonn, samkvæmt
upplýsingum Matvælastofnunar.
Landssamband fiskeldisstöðva hafði
spáð verulegri aukningu, að fram-
leiðslan yrði 11.600 tonn, þannig að
þessar tölur koma Guðbergi Rúnars-
syni framkvæmdastjóra á óvart. „Það
er samt sem áður bjart yfir. Miklu
meiri fiskur í kvíunum en áður,“ segir
Guðbergur.
Aldrei meiri lífmassi en nú
Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúk-
dóma hjá Matvælastofnun, segir í yf-
irliti um framleiðslu ársins að aldrei
hafi verið meiri lífmassi í sjó en um
nýliðin áramót. Tvö af stærstu fyrir-
tækjum landsins, annað í laxi og hitt í
regnbogasilungi, hafi ákveðið að
fresta slátrun fram yfir áramót. Það
eru Arnarlax í Arnarfirði og Fiskeldi
Austfjarða í Berufirði. Slátrun er haf-
in eða er að hefjast hjá báðum fyrir-
tækjunum. Það ætti að skila sér í auk-
inni framleiðslu í ár.
Guðbergur segir að fyrirtækin séu
að nýta sér hitastigið í sjónum. Hann
endist fram í desember og fiskurinn
haldi því áfram að vaxa. Því sé rökrétt
að fresta slátrun fram yfir áramót.
Einnig geti markaðsaðstæður ráðið
þessu, verið sé að stíla inn á markaði
sem vilji stærri fisk.
„Fiskurinn kemur upp úr kvíunum
á þessu ári,“ segir Guðbergur og spáir
því að framleiðslan nærri tvöfaldist í
ár, fari í 15.200 tonn. Aukningin verði
einkum í slátrun á laxi og regnboga-
silungi upp úr sjókvíum. Bæði er það
að fyrirtækin sem fyrir eru hafa verið
að bæta í og eru ný og öflug fyrirtæki
að koma inn í framleiðsluna, eins og
til dæmis Arnarlax.
Umsóknir um stækkun og stofnun
nýrra stöðva eru í ferli hjá stjórnvöld-
um. Guðbergur segir að einhver fyr-
irtæki séu farin að reka sig upp í þak-
ið en önnur hafi svigrúm til aukning-
ar.
Ef litið er á einstakar tegundir sést
að slátrun á laxi minnkaði um 700
tonn sem er um 20% samdráttur. Á
móti kom að bleikjueldi í landstöðvum
heldur áfram að aukast hægt og bít-
andi og aukning varð í slátrun á regn-
bogasilungi úr sjóvkíum. Heildarnið-
urstaðan er sú að slátrun laxfiska er
nánast sú sama og 2014.
Þorskeldi minnkaði enn og er nú
aðeins brot af því sem var fyrir fáein-
um árum. Framleiðslan náði hámarki
2008 og var 1.500 tonn en er nú 74
tonn. Gísli bendir á að þorskurinn sé á
hraðleið út úr íslensku fiskeldi, eins
og hjá nágrannaþjóðunum. Nýja teg-
undin, Senegalflúra, sem alin er í
landstöð á Reykjanesi kom nokkurn
veginn í staðinn fyrir þorskinn. Upp-
skera kræklings var um 44 tonn úr
hreinni rækun en auk þess veidd um
49 tonn.
Störfum fjölgar ört
Fiskeldið er orðin mikil atvinnu-
grein hér á landi. Landssamband fisk-
eldisstöðva áætlar að 360 störf séu í
eldinu og 200 afleidd þjónustustörf að
auki. Beinum störfum fjölgaði um
20% á síðasta ári. Reiknað er með að
bein störf í greininni allri geti orðið
um 400 í lok ársins. Fiskeldið er áber-
andi vaxtargrein á svæðum á lands-
byggðinni sem staðið hafa höllum
fæti, eins og til dæmis á sunnan-
verðum Vestfjörðum.
Megnið af afurðum fiskeldis er flutt
á erlenda markaði. Afurðirnar eru
mest seldar á kröfuhörðum markaði í
Bandaríkjunum en einnig í Evrópu og
Asíu. Flest fyrirtækin hafa náð sér í
eftirsóttar vottanir og fá gott verð.
Einnig er vaxandi sala á innanlands-
markaði. Fiskeldismenn eins og aðrir
matvælaframleiðendur verða varir
við fjölgun ferðafólks. Það kemur
fram í aukinni sölu til veitingastaða.
Guðbergur áætlar að sala fiskeld-
isafurða hafi á síðasta ári skilað þjóð-
arbúinu um 9,3 milljarða króna
tekjum.
Aldrei meiri lífmassi í kvíunum
Framleiðsla í fiskeldi stóð í stað á síðasta ári Fyrirtækin geymdu lax og regnboga í sjónum fram
yfir áramót Spáð tvöföldun framleiðslunnar í ár Áætlað að 560 störf séu við fiskeldið
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Atvinna Fiskeldið er orðið umtalsverður atvinnuvegur og hefur mikil áhrif á vissum svæðum. Nú starfa um 340
manns beint við eldið og er reiknað með að starfsmenn verði orðnir 400 undir lok ársins, auk 200 manns í þjónustu.
Heildarframleiðsla í fiskeldi
Tonn af slægðum fiski
(áæ
tla
ð)
Heimild: Mast
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10 20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16
16.000
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
Heildarframleiðsla Lax Bleikja Regnbogi Senegalflúra Þorskur
15.201
6.232
8.000
3.710 4.200
1.670 2.500
393 500
180 0
Heildarframleiðsla
í eldi lagardýra 2015
Tonn
Lax 3.260
Bleikja 3.937
Regnbogi 728
Hekluborri 0,6
Þorskur 74
Senegalflúra 290
Kræklingur 44
8.334
Í heildina voru 53 eldisstöðvar í
fullum rekstri á árinu 2015. Gísli
Jónsson, dýralæknir fisksjúk-
dóma hjá Matvælastofnun, upp-
lýsir að árið hafi reynst fiskeld-
inu farsælt. Uppbygging mikil-
vægra grunnstoða sé í ágætum
farvegi en ef laxeldi eigi að geta
þroskast og dafnað á næstu árum
sé einsýnt að rými til klaks og
seiðaeldis verði helsti flöskuháls-
inn. Unnið sé að undirbúningi
nokkurra verkefna á því sviði.
Nánast engin breyting hefur
orðið á fjölda fyrirtækja, sam-
kvæmt upplýsingum Gísla, og
mörg hver séu enn að styrkjast
með aðkomu fjárfesta sem hafa
trú á þeim náttúrulegu aðstæðum
sem bjóðast hér á landi.
Heilbrigðismálin standa vel, að
mati dýralæknisins, og eru áfram
sterk. Engin óvænt áföll urðu á
árinu ef frá er skilinn nokkuð
kröftugur þörungablómi á norð-
anverðum Vestfjörðum í lok maí.
Þó nefnir hann að formleg sjúk-
dómastaða landsins hafi beðið lít-
ilsháttar hnekki í október þegar
ný tilkynningarskyld veira sem
valdið getur veirublæði (VHS) í
fjölmörgum tegundum fiska
greindist í hrognkelsum af villt-
um uppruna úr Breiðafirði. Fyrr
á árinu greindist einnig áður
óþekkt veira af ættkvísl Rana-
veira í villtum hrognkelsum sem
veiddust út af Grindavík. Í kjöl-
far greiningar á VHS-veirunni
missti íslenski fiskeldisiðnaðurinn
ákveðna vottun ESB og viður-
kenningu fiskeldisþjóða fyrir því
að landið væri laust við alla til-
kynningarskyldar veirur. Grein-
ing veiranna hefur ekki snert
hefðbundið eldi en raskaði áform-
um um útflutning laxahrogna.
Markaðirnir fyrir laxahrogn opn-
uðust aftur nema í Síle sem hald-
ið hefur landamærum sínum lok-
uðum. Gísli segir að nú hafi
tekist að fá Síle til að opna aftur
enda eigi þarlent laxeldi mikið
undir því að fá héðan sjúkdóma-
laus hrogn allt árið um kring.
Landamærin verða opnuð 25.
febrúar og pantanir eru þegar
farnar að berast.
Heilbrigðisstaða fisk-
eldisins áfram sterk
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Laxeldi Unnið við sjókví í Patreks-
firði. Þar er töluverð framleiðsla.