Morgunblaðið - 11.02.2016, Page 30

Morgunblaðið - 11.02.2016, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016 Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia www.birkiaska.is SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Haustið 1861 bað Ralph Gordon No- el, 22 ára gamall enskur ferðalang- ur, um hönd 16 ára gamallar stúlku á bænum Grenjaðarstað í Aðaldal, Guðnýjar Halldórsdóttur. Hún var heitbundin öðrum pilti í sveitinni og sagði nei. Hefði hún játast Noel hefði hún orðið greifynja á Eng- landi. Líklegt er að hún hafi vitað að vonbiðillinn var af aðalsætt- um og dóttur- sonur frægasta og dáðasta skálds Breta, Byrons lá- varðar, er ástin á heitmanni henn- ar, Benedikt Jónssyni (1846-1939), hefur vegið þyngra í hennar huga. Heimili það sem Guðný og Benedikt stofnuðu á Auðnum varð landsfrægt fyrir menningarbrag. Þar var Bóka- félag Þingeyinga sem Benedikt stofnsetti. Af fimm dætrum þeirra er kunnust skáldkonan Hulda (Unn- ur Benediktsdóttir Bjarklind) sem orti þjóðhátíðarlagið Hver á sér fegra föðurland. Föðursystir Guð- nýjar var nafna hennar, skáldkonan Guðný frá Klömbrum. Stórbýlið Grenjaðarstaður Guðný fæddist á Geitafelli 1848, dóttir Halldórs Jónssonar bónda. Ung fluttist hún til föðurafa síns, merkisklerksins séra Jóns Jóns- sonar á Grenjaðarstað (1772-1866). Hann stundaði lækningar í Eyja- fjarðar- og Þingeyjarsýslum með- fram prestsstörfum og fræðaiðk- unum; hafði hann til þess leyfi landlæknis og konungsbréf. Grenjaðarstaður var stórbýli og þangað lögðu margir leið sína. Hafa bæjarhúsin varðveist eins og þau voru á 19. öld og eru nú í umsjón Þjóðminjasafnsins. Erlendir ferða- menn voru fastagestir, en í þá tíð voru ferðir hingað bundnar við efn- aða yfirstéttarmenn. William Morris var meðal gesta og nokkru fyrr Frakkinn Paul Gaimard og ferða- félagar hans. Höfðu þeir með sér úr landi einstakt altarisklæði frá 14. öld sem varðveitt var í kirkjunni á staðnum. Það er nú í Cluny-safninu í París. Lærbrotinn aðalsmaður Einn þeirra sem kvöddu dyra á Grenjaðarstað var ungur Englend- ingur, fyrrnefndur Ralph Gordon Noel (1839-1906). Hann var af enskri aðalsætt og hafði fengið mik- inn áhuga á íslenskri menningu. Ákvað hann að heimsækja landið og kom sumarið 1861. Virðist hann hafa verið einn á ferð. Noel varð fyrir því óhappi að hrasa í einhverri hraun- breiðunni fyrir norðan og lærbrotna. Var hann fluttur til séra Jóns til umönnunar. Það hefur líklega orðið hlutskipti Guðnýjar að annast um gestinn. Í minningargrein um hana 1935 er komist svo að orði að hún hafi verið „hin glæsilegasta mær“. Svo mikið er víst að hann varð ákaf- lega ástfanginn af henni, gat ekki hugsað sér lífið án hennar og bað um hönd hennar. En Guðný var, þrátt fyrir ungan aldur, þegar heitbundin sveitunga sínum á svipuðum aldri, Benedikt Jónssyni frá Þverá, og hafnaði bónorðinu sem fyrr segir. Frásögn Baring-Gould Sumarið 1862 kom hingað til lands enskur prestur og afkstamikill rit- höfundur, Sabine Baring-Gould (1834-1924). Ritaði hann bók um Ís- landsferðina og fjallar einnig um kynni sín af landi og þjóð í endur- minningum sínum. Skrif hans ein- kennast af talsverðu yfirlæti og for- dómum. Hann kveðst hafa rekist á Noel á Þingvöllum og hafi hann þá verið á heimleið. Baring-Gould segir að Noel hafi dvalist á Grenjaðarstað (sem hann reyndar nefnir Gríms- tungu) allan veturinn til þess að reyna að fá Guðnýju til að giftast sér. „Stúlkan var aðlaðandi en ekki falleg,“ skrifar Baring-Gould sem kveðst hafa komið á bæinn. Hún hafi heillast af óþrifalegum pilti með mikinn lubba sem hafi annast um hesta hans þegar hann var þar á ferð. „Ég fylgdist með honum klóra sér ákaft á öllum líkamanum og ályktaði að þar væri þéttbýlt,“ segir Baring-Gould og gefur í skyn að Benedikt hafi verið lúsugur. „Ef hún hefði vitað hvaða framtíð biði hennar sem greifynju, og getað skilið hvað í því fælist, hefði hún kannski hafnað hestasveinum,“ bætir hann við og spyr sig síðan án þess að svara: „En hefði þessi urt orðið hamingjusam- ari í öðrum jarðvegi?“ Baring-Gould sér líka ástæðu til að fræða lesendur sína um að hann þekki til fjölskyldu Noels. Hann sé næstelstur sona jarlsins af Lovelace. Elsti bróðir hans, Ockham lávarður, hafi verið sérkennilegur maður. Hafi hann þrátt fyrir stéttarstöðu sína starfað sem hafnarverkamaður í Chatham. Þegar hann hafi látist hafi Noel erft aðalstign föðurins, fyrst orðið greifi og loks jarl af Lovelace. Móðir Noels, Ada Lovelace, dóttir Byrons lávarðar, var rómuð fyrir tölvísi sína. Hún hefur verið kölluð fyrsti forritarinn. Um sögu hennar var grein hér í blaðinu 30. nóvember í fyrra. Borin vel sagan Hjónaband Guðnýjar og Bene- dikts mun hafa orðið gæfuríkt. Er Guðnýju borin vel sagan í minning- argrein Jónasar Þorbergssonar út- varpsstjóra í Tímanum. Hafi kær- leika hennar til þeirra sem mest þurftu kærleika við, manna jafnt sem málleysingja, verið við brugðið. „Af höndum allt þú inntir / með ást og von og trú,“ orti Unnur (Hulda), dóttir Guðnýjar, að henni látinni. Benedikt naut mikilla vinsælda og virðingar, var hreppstjóri, þjóðmála- skörungur og bókavörður. Kallar Jónas hann „hina bjartsýnustu hetju sem uppi hafi verið Þingeyjarsýslu síðustu mannsaldrana.“ Af Ralph Gordon Noel, jarlinum af Lovelace, er það að segja að ekki er vitað um nein tengsl hans við Ís- land eftir dvölina hér. Vegna auðæfa fjölskyldunnar þurfti hann engu föstu starfi að gegna, en átti mörg áhugamál, iðkaði fjallgöngur í sviss- nesku Ölpunum af miklu kappi, las fagurbókmenntir, hlustaði á klass- íska tónlist og fylgdist með mynd- list. Hefði orðið greifynja á Englandi  Dóttursonur Byrons lávarðar varð 1861 yfir sig ástfanginn af 16 ára gamalli íslenskri sveitastúlku  Guðný Halldórsdóttir hafnaði bónorði hans  Vildi frekar bókhneigðan sveitastrák á næsta bæ Ljósmynd/www.mats.is Grenjaðarstaður Bæjarhúsin eru að mestu með sama svip og á ofanverðri 19. öld þegar Guðný Halldórsdóttir bjó þar hjá séra Jóni Jónssyni, föðurafa sínum. Ljósmynd/Þjóðminjasafn Íslands Hjónin Guðný Halldórsdóttir og Benedikt Jónsson stóðu fyrir miklu menn- ingarheimili á Auðnum í Þingeyjarsýslu. Þar var Bókasafn Þingeyinga. Byron lávarður (1788-1824) var frægasta og dáðasta ljóðskáld Breta á 19. öld. Þátt- taka hans í frelsisbaráttu Grikkja jók hróður hans meðal menntamanna um alla Evrópu. Ekki spillti hve glæsilegur hann var útlits. Sagt er að mörgum konum hafi legið við yfirliði við það eitt að vera í ná- vist hans. Frjálslegt munaðarlíf hans vakti í senn hrifningu og hneykslan. Hann var fordæmdur heimafyrir þegar spurðist að hann hefði átt barn með hálfsystur sinni, notið ásta með öðrum karlmönnum og neytt eiturlyfja.. Grímur Thomsen varð einna fyrstur til að vekja athygli Dana á ljóðum Byrons með prófritgerð um hann við Hafnarhá- skóla. Skáldin Gísli Brynjúlfsson, Matt- hías Jochumsson og Steingrímur Thor- steinsson þýddu mörg ljóð eftir Byron á íslensku. Matthías sneri sorgarleiknum Manfred. Þar er fræg sena sem talið er að vísi til sam- bandsins við hálfsysturina: Astarta! elska! viltu ei tala við mig eg hef svo lengi, lengi kvalist, kvalist. - Lít á mig, þú ert ekki meira umbreytt af gröfinnni, en eg em sakir þín; þú unnir mér úr hófi, eg þér eins, - var okkur þetta áskapað, að kvelja hvort annað svo, þótt dauðasynd við drýgðum með ástum þeim, sem okkur brann í milli? Skáldbræðurnir og vinirnir Halldór Laxness og Jóhann Jónsson tign- uðu Byron. Tólf ára gerði Halldór stóra teikningu af honum sem enn er varðveitt. Um Jóhann var sagt: að hann væri „fagur eins og Byron, skáld eins og Byron, haltur eins og Byron.“ Var frægastur og dáðastur SKÁLDIÐ BYRON LÁVARÐUR Byron lávarður. Ralph Gordon Noel

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.