Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 42

Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 42
42 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016 SVIÐSLJÓS Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Það er gaman þegar gengur vel og við eigum marga góða við- skiptavini. Það vantar íslenska tómata á markaðinn og við þurfum að eiga nóg af þeim til þess að anna eftirspurn. Þetta er auðvitað viss áskorun, en við viljum efla ís- lenskt og það hefur verið skemmtilegt að fást við þessa framkvæmd.“ Þetta segir Páll Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Garðræktarfélags Reykhverfinga á Hveravöllum S- Þing., en hann og kona hans, Heiðbjört Þóra Ólafsdóttir, hafa haft í nógu að snúast síðustu mán- uði. Hjá fyrirtækinu er nú risið nýtt 2.030 fermetra gróðurhús sem mun auka ræktunarrými fyr- irtækisins mjög mikið. Páll segir að á lóðinni, sem nýja húsið stendur á, hafi verið tvö gömul og úr sér gengin gróðurhús sem hafi verið rifin. Tilgangurinn sé ekki bara að auka framleiðsl- una heldur sé tilgangurinn líka að bæta mjög aðstöðurými, en úr nýja gróðurhúsinu er innangengt í pökkunaraðstöðu. Tölvur gegna miklu hlutverki Nýja gróðurhúsið er innflutt frá Hollandi og er svokallað blokka- hús með átta burstum. Þau Páll og Heiðbjört hafa nokkra reynslu af hollenskum húsum því fyrir tíu árum byggðu þau 1.320 fermetra hús sem var að hluta til notað, en hefur reynst mjög vel. Þau hafa verið í beinum tölvu- samskiptum við framleiðanda hússins og sjálf tekið þátt í því að móta það. Það hefur þeim fundist gaman og mjög skapandi og þau hafa fengið sérfræðiaðstoð við að koma upp ýmsum búnaði. Tré- smiðjan á Rein hefur haft yfirum- sjón með smíðavinnu og uppsetn- ingu. Rafverktakar eru Víkurraf ehf. á Húsavík, en 450 ljós eru í loftunum og eykst rafmagnsnotk- un fyrirtækisins mikið við þetta. Áður var búið að setja raflýs- ingu í mörg hús og má segja að meirihluti framleiðslunnar sé nú ræktaður við rafljós. Í nýja gróð- urhúsinu er 230 fermetra aðstöðu- rými sem hýsir m.a. tölvur sem sjá um loftslagsstýringu, hita- og rakastig sem og vökvun. Í sama rými er miðstöð fyrir áburðargjöf í öll gróðurhúsin á staðnum og ýmis annar tækjabún- aður sem til þarf. Mikil framleiðsla og margt fólk Hjá Garðræktarfélagi Reyk- hverfinga eru nú komnir 8.400 fer- metrar í ræktun auk uppeldishúss. Páll segist reikna með að fram- leiða um 370 tonn af tómötum á árinu, 150 tonn af gúrkum og 18 tonn af papriku auk þess sem framleitt er töluvert af grænkáli yfir sumartímann. Þetta kallar á margt starfsfólk og segir Heiðbjört, sem hefur yfirumsjón með launagreiðslum, að í janúar sl. hafi verið 18 á launaskrá. Fram að þessu hafa verið um 18 manns yfir sumarið, en búast má við að um og yfir 20 manns muni starfa við garðyrkj- una næsta sumar. Við stækkunina reikna þau með að tvö ársverk bætist við. Óslitin saga frá 1904 Saga Garðræktarfélags Reyk- hverfinga er nokkuð sértök að því leyti til að það er eitt elsta hluta- félag landsins sem enn lifir. Stofn- fundur þess var haldinn á Reykj- um í Reykjahverfi 17. júlí 1904 og hefur það starfað óslitið fram á þennan dag. Fyrri ár sín vann fé- lagið nær eingöngu að kartöflu- rækt og mun uppskeran hafa orðið mest árið 1910 eða um 370 tunnur. Auk karftöfluræktarinnar hafði fé- lagið dálitla rófnarækt, túnrækt og engjaheyskap. Haustið 1933 var fyrsta gróðurhúsið byggt og stærð þess 50 fermetrar. Síðan voru byggð fleiri hús og þau voru orðin níu talsins árið 1975. Saga hlutafélagsins er líka sér- stök fyrir það að þar hafa einungis starfað fjórir framkvæmdastjórar á nær 112 árum og er Páll fjórði í röðinni í beinan karllegg. Fyrsti framkvæmdastjórinn var Baldvin Friðlaugsson sem stýrði starfsem- inni 1904-1938. Atli Baldvinsson var með fyrirtækið árin 1938-1976, Ólafur Atlason 1976-2005 og síðan Páll Ólafsson sem tók við af föður sínum og er þetta því ellefta árið hans sem framkvæmdastjóri. Gaman í jákvæðu umhverfi Páll segir að þau hafi lært mikið af þessum byggingarframkvæmd- um en þær hafa staðið yfir í rúm- lega átta mánuði. Oftast hafi allt gengið upp, en í heild sinni má segja að húsið sé u.þ.b. sex vikum á eftir áætlun. Það sé ekki til skaða og auðvitað er það mikið átak að koma upp svona tækni- væddu gróðurhúsi. Hann segir að þau Heiðbjört hafi ferðast mikið til þess að skoða gróðurhús og nefnir einkum Finn- land. Þau hafi séð mjög margt gagnlegt þar og Finnar búi að sumu leyti við líkar aðstæður og Íslendingar í þessari atvinnugrein. Þeir hafi náð mjög góðum tökum á grænmetisrækt og þar í landi sé mikið að læra og sjá. Aðspurð hvort þau muni halda áfram að stækka við sig segja þau að það komi vel til greina seinna meir. Það er nægilegt heitt vatn á Hveravöllum til þess og í raun miklir möguleikar. Þeim finnst báðum að þau starfi í jákvæðu umhverfi innan garðyrkjunnar og það sé mikils virði. Þess vegna séu þau bjartsýn og hafi mikla trú á íslenskri ylrækt. Vantar tómata á markaðinn  Glæsilegt gróðurhús risið hjá Garðræktarfélagi Reykhverfinga  Rækta grænmeti í gróðurhús- um á 8.400 fermetra flatarmáli  Framkvæmdastjórinn sá fjórði frá upphafi í beinan karllegg Morgunblaðið/Atli Vigfússon Gróðurhús Nýja gróðurhúsið er 2.030 fermetrar að stærð. Það er innflutt frá Hollandi og er svokallað blokkahús með átta burstum. Bændur Páll Ólafsson framkvæmdastjóri og Heiðbjört Þóra Ólafsdóttir eru ánægð með nýja gróðurhúsið. Ilrækt í Reykjahverfi » Garðræktarfélag Reykhverf- inga var stofnað 17. júlí 1904 og vann upphaflega nær ein- göngu að kartöflurækt. » Haustið 1933 var fyrsta gróðurhúsið byggt og var 50 fermetrar að stærð. » Nú er ræktað þar grænmeti á 8.400 fermetra svæði. » Um 20 manns munu vinna við framleiðsluna í sumar. • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is BLI A3 MFP Line of the Year: 2011, 2012, 2013, 2014 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki BLI Pro Award: 2013, 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.