Morgunblaðið - 11.02.2016, Side 44
44 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
tonn á síðasta ári á erlendri grundu.
Gangi skyrsalan vel mun MS þurfa
að leita leiða til að sinna erlendum
mörkuðum með öðrum hætti.
„Það er alveg ljóst að þetta hefur
miklar þýðingu fyrir MS. Skiptir
sköpum fyrir afkomu fyrirtækisins.
Á síðasta ári er afkoma MS mun
betri en af erlendri starfsemi fyr-
irtæksins heldur en innlendri.
Skyrið, sem framleitt er á Íslandi
er flutt til Bretlands, Færeyja,
Bandaríkjanna og Sviss.
Svisslendingar eru sanngjarnir í
samningum við Íslendinga og hafa
horft til stærðar markaðar, vilja taka
mið af fólksfjölda. Það er allt önnur
hugmyndafræði hjá þeim en þekkist
hjá Evrópusambandinu sem vilja
bara kíló fyrir kíló.
Í Sviss eru samningar hlutfalls-
legir þannig við höfum frjálsan inn-
flutning á skyri án tolla þar í landi.“
Séríslenskt fyrirbrigði
Íslenskt skyr er ævafornt og er
getið um skyr í fornsögum, svo sem
Egils sögu og Grettis sögu. Skyr-
framleiðsla hélt velli hér á landi og er
yfirleitt talað um skyr sem sér-
íslenskt fyrirbrigði. „Ég held að þó
að margir séu að fara af stað með
skyr, eins og sænski mjólkurrisinn
Arla, þá er nóg svigrúm til að okkar
árangur geti vaxið.
Heimurinn er stór og áhuginn á ís-
lensku skyri og landinu sjálfu er mik-
ill og fer vaxandi. Skyr fellur vel að
heilbrigðu líferni og er meðal annars
mikil tískuvara í Finnlandi meðal
ungs fólks,“ segir Ari.
Arla setti skyr á breskan markað
og eyddi milljörðum í markaðs-
setningu. Þar var Ísland í aðalhlut-
verki og hefur sú markaðssetning
hjálpað MS að komast á breska
markaðinn. „Við höfum ekki fjár-
muni til að fara í stóra markaðs-
herferð hér í Bretlandi. Arla eyddi
milljörðum í sína kynningu en við
sjáum björtu hliðarnar á því. Bæði er
búið að brjóta land fyrir skyrið sem
matvöru og það er orðið þekkt hug-
tak í Bretlandi, fyrir utan hvað aug-
lýsingaherferð Arla hefur verið stór-
kostleg landkynning fyrir Ísland.
Ennfremur erum við sannfærðir um
að okkar skyr sé betra en Arla, og
það hefur í raun verið staðfest í
mjólkurvörukeppnum á Norður-
löndum þar sem þessar vörur hafa
mæst, þá tekur okkar skyr alltaf gull-
ið.“
Skyrheimar á Selfossi
Í kynningu sem MS hélt í íslenska
sendiráðinu í síðustu viku sást greini-
lega hvað Ísland er vinsælt í Bret-
landi. Landið er í tísku og af þeim
rúmlega 150 gestum sem komu í
veisluna höfðu fjölmargir farið til
landsins og stefndu þangað aftur.
Þeir sem áttu eftir að koma ætluðu
að bæta úr því sem fyrst. MS vill nýta
sér þennan meðbyr og hefur miklar
áætlanir um framtíðina.
„Við finnum fyrir þessum áhuga og
ég hef trú á því að skyr geti orðið fyr-
ir Ísland það sem ostur er fyrir Sviss
og MS er að vinna að því. Áhuga-
menn um uppbyggingu ferðaþjón-
ustu hafa verið að skoða að byggja
upp Skyrheima, upplifunarsafn á Sel-
fossi tengt skyrframleiðslu því Ísland
er jú heimkynni skyrsins.“
Skyrið eins og svissneskur ostur
MS stefnir að gera íslenska skyrið að því sem ostur er fyrir Sviss Stefnt að uppbyggingu Skyr-
heima Sala á íslensku skyri í Bretlandi fer vel af stað Er í hillum 197 verslana Waitrose
Ljósmynd/Simona Susnea
Skyrkynning Agnar Friðriksson, framkvæmdastjóri Skyr Iceland UK, Ari Edwald, forstjóri MS, og kona hans Gyða
Dan Johansen við kynninguna í London í síðustu viku sem fram fór í sendiráði Íslands þar í borg.
Ljósmynd/Simona Susnea
Sló í gegn Sigmundur Davíð forsætisráðherra hélt ræðu á kynningunni þar
sem hann sagði meðal annars að skyr væri í uppáhaldi hér á landi.
BAKSVIÐS
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Íslenskt skyr frá Mjólkursamsölunni
(MS) var sett í hillur í Waitrose-
verslununum í Bretlandi í vikunni.
MS hefur í um eitt ár í unnið að því að
koma íslensku skyri í verslanir þar í
landi en íslenskt skyr fæst einnig í
Sviss, á Norðurlöndunum og í
Bandaríkjunum. Í upphafi var horft
til verslunarkeðju sem nyti virðingar
fyrir gott orðspor og var stefnan
strax sett á að reyna að ná samn-
ingum við Waitrose-verslunarkeðj-
una í Bretlandi. Keðjan rekur um 380
verslanir í Bretlandi. Skyrið sem sett
var á markað er framleitt á Selfossi.
Á síðasta ári voru seldar um 100
milljón skyrdósir á vegum MS en
heildarverðmæti skyrsölu MS og
samstarfsfyrirtækja þeirra var um
níu milljarðar á síðasta ári.
„Waitrose er verslunarkeðja í
háum gæðaflokki og það verður
áhugavert að tengjast þeim,“ segir
Ari Edwald, forstjóri MS. „Við höf-
um náð árangri í Finnlandi, sem er
um fimm milljóna manna markaður.
Við höfum líka farið vel af stað í
Sviss, þrátt fyrir að aðrir séu að selja
vöru sem þeir kalla skyr og sem er
ódýrari en okkar. Við teljum að það
sé engin ástæða til annars en að vera
bjartsýn og það er góð byrjun að
koma vörunni í um 200 verslanir í
Bretlandi. MS byrjaði í 60 verslunum
í Finnlandi en er nú í um 2.500 versl-
unum. Í Sviss byrjaði Skyr í 200
verslunum en er núna í um 600 versl-
unum og þar kostar skyrdósin um
300 krónur. Við vonum að þróunin
geti verið með svipuðum hætti í Bret-
landi,“ segir Ari.
Meiri hagnaður erlendis
MS er með 380 tonna kvóta frá
Evrópusambandinu en fyrirtækið
seldi sjálft erlendis um 6.000 tonn og
þar af komu frá Íslandi um 1.000
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður
Sími 565 4100 - www.nyform.is
Giulia 3 – 1 – 1 leður og tauáklæði
Borðstofuhúsgögn teg. Parma
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Launin fyrir blaðburðinn eru vasa-
peningur krakkanna og kaupið fyrir
hverfin sem ég tek fer í sameig-
inlegan ferðasjóð fjölskyldunnar.
Þetta er nokkuð sem alveg munar
um og svo er fínt fyrir okkur öll að
fá hressandi hreyfingu,“ segir Rósa
Björg Jónsdóttir blaðberi.
Klukkan fimm á morgnana
Rósa Björg og börnin hennar tvö,
þau Aurora Erika og Aron Flavio
sem eru sextán og fjórtán ára, hafa
síðasta hálfa annað árið borið út
blöð á Grandanum í Reykjavík og í
götunum á Seltjarnarnesi sem
liggja næst borgarmörkunum.
Þá daga sem Mogginn – eða önn-
ur blöð – er í aldreifingu er dag-
skammturinn rúmlega 310. Þá sér
þessi vaska fjölskylda um að bera
út á Öldugranda sem telst til höf-
uðborgarinnar. Á Seltjarnarnesinu
dreifa þau svo blöðunum á Eið-
istorgi, Austurströnd og í Kolbeins-
mýri og annars staðar eftir atvik-
um.
„Við tökum þetta sem hressandi
morgungöngu. Þegar skammturinn
er stór rífum við okkur á fætur
klukkan fimm á morgnana og erum
þá búin með blaðburðinn klukkan
sjö. Í fyrrasumar var þetta sum-
arvinna krakkanna og vorum við öll
ánægð með það. Aurora notaði sína
peninga til að kaupa sér rafmagns-
gítar og magnara og fara í tónleika-
ferð til Danmerkur. Aron safnar
fyrir rafmagnsbassa,“ segir Rósa.
Villtist í Skerjafirði
Þegar forföll verða í fastaliðinu
kemur fyrir að Rósa og börnin taki
að sér blaðburð í aukahverfum.
„Samanlagt höfum við borið út
blöð í 27 hverfum, í póstnúmerum
101, 107 og 170. Á stundum hafa
þetta verið hálfgerðar þrautagöng-
ur. Þingholtin minna á þrautabraut
og í fyrstu ferðinni í Skerjafjörðinn
varð ég rammvillt, en auðvitað er
það bara skemmtilegt í endurminn-
ingunni,“ segir Rósa Björg sem að
aðalstarfi er bókasafnsfræðingur í
Þjóðarbókhlöðunni.
Safna í ferðasjóðinn með
hressandi morgungöngu
Hafa borið út í 27 hverfum Með 310 blöð á góðum degi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Blaðberar Rósa Björg Jónsdóttir og börnin, Aurora Erika og Aron Flavio.