Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 52
52 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er
Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu
af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði
og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu
ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili.
Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450
zenus@zenus.is • zenus.is
Augljós kostur
5 ára
ábyrgð
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Bernie Sanders, öldungadeildar-
þingmaður frá Vermont, fékk góðan
byr í forkosningum demókrata í
New Hampshire í fyrradag en lík-
legt er að hann lendi í mótbyr á
næstu vikum þegar kosið verður í
suðurríkjum Bandaríkjanna takist
honum ekki að auka fylgi sitt meðal
blökkumanna og kjósenda sem eru
ættaðir úr Rómönsku Ameríku. Útlit
er fyrir langvinna baráttu í forkosn-
ingum repúblikana eftir öruggan
sigur auðkýfingsins Donalds
Trumps í New Hampshire og eins og
staðan er núna virðist enginn keppi-
nauta hans vera nógu öflugur til að
geta sigrað hann og verða forseta-
efni flokksins.
Bernie Sanders er 74 ára gamall
og elsti frambjóðandinn í forkosn-
ingum flokkanna tveggja, en kann-
anir sem gerðar voru fyrir utan kjör-
staði benda til þess að hann sæki
einkum fylgi sitt til ungra kjósenda.
Mikið fylgi hans meðal ungra kvenna
er áhyggjuefni fyrir Hillary Clinton
sem vonast eftir því að verða fyrsta
konan til að gegna forsetaembætt-
inu. Könnun NBC-sjónvarpsins
bendir til þess að 69% kjósenda úr
röðum kvenna undir 45 ára aldri hafi
kosið Sanders í New Hampshire.
Meðal kvenna undir þrítugu var fylgi
hans hvorki meira né minna en 82%.
Aðeins 16% karla og kvenna undir
þrítugu kusu Hillary Clinton, ef
marka má kannanirnar.
Um 56% kvenna yfir 45 ára aldri
kusu Clinton og hún fékk aðeins 44%
fylgi meðal allra kvenna sem tóku
þátt í forkosningunum en 55% þeirra
kusu Sanders.
Robby Mook, kosningastjóri Clin-
ton, sagði að úrslitin í New Hamp-
shire hefðu ekki mikla þýðingu fyrir
sigurmöguleika hennar. Hann telur
það „mjög líklegt“ að Hillary Clinton
takist að tryggja sér sigur í forkosn-
ingunum í næsta mánuði þegar kosið
verður í alls 28 ríkjum, en þau eru
með rúman helming kjörmannanna
sem velja forsetaefni demókrata
formlega á landsfundi í sumar.
Þarf stuðning blökkumanna
Talið er að Clinton leggi áherslu á
að treysta stöðu sína í Suður-Karól-
ínu, Texas, Georgíu og Alabama þar
sem blökkumenn og fólk ættað úr
Rómönsku Ameríku eru í meirihluta
meðal kjósenda demókrata. Eigin-
maður hennar, Bill Clinton, naut
mikils stuðnings meðal blökku-
manna þegar hann sigraði í forseta-
kosningunum 1992 og 1996 og
Hillary hefur einnig haft mikið fylgi
meðal þeirra, að undanskildum for-
kosningunum árið 2008 þegar Bar-
ack Obama fór með sigur af hólmi.
Kyle Kondik, sérfræðingur í sögu
bandarískra kosninga, segir kannan-
ir benda til þess að Sanders eigi á
brattann að sækja í suðurríkjunum.
„Áður en forkosningarnar hófust var
hægt að færa gild rök fyrir því að
Iowa og New Hampshire væru tvö af
þeim þremur ríkjum þar sem Bernie
Sanders stæði best að vígi vegna
þess að þar eru kjósendur demó-
krata mjög frjálslyndir og langflestir
þeirra hvítir. Þriðja ríkið er Ver-
mont,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
Kondik. Hann skírskotaði til þess að
95% íbúa Vermont, heimaríkis Sand-
ers, eru hvítir og hlutfall þeirra er
svipað í New Hampshire og Iowa.
Könnun NBC-sjónvarpsins bendir
til þess að Hillary Clinton sé með 37
prósentustiga forskot á Bernie
Sanders í Suður-Karólínu og Kondik
segir að þingmaðurinn þurfi nú að
leggja áherslu á að auka fylgi sitt
meðal blökkumanna og kjósenda
sem eru ættaðir úr Rómönsku Am-
eríku. „Það verður mjög erfitt, ef
ekki ómögulegt, fyrir demókrata að
verða forsetaefni flokksins án mikils
stuðnings í þessum hópum.“
„Lýðræðislegur sósíalisti“
Fáir höfðu trú á því að Sanders
yrði næsta forsetaefni demókrata
þegar hann tilkynnti í apríl í fyrra að
hann hygðist bjóða sig fram gegn
Hillary Clinton sem var með allt að
40 prósentustiga forskot í könnunum
á þeim tíma. Hún hefur gagnrýnt
hann fyrir að vera of róttækur og
segir stefnu hans vera óraunhæfa.
Hann lýsir sér sem „lýðræðislegum
sósíalista“, hefur m.a. boðað ókeypis
háskólamenntun, heilsugæslu fyrir
alla, 15 dollara lágmarkslaun á tím-
ann (1.900 króna), hertar reglur um
starfsemi fjármálafyrirtækja og sér-
stakan skatt á auðmenn. Kannanir
benda til þess að hann sé vinsæll
meðal fólks sem kýs yfirleitt ekki og
ein af stóru spurningunum í kosn-
ingabaráttunni er hvort honum tak-
ist að fá það til að mæta á kjörstað.
Mikið fylgi Sanders í New Hamp-
shire eftir hnífjafnar forkosningar í
Iowa gæti orðið til þess að Hillary
Clinton færði sig lengra til vinstri í
kosningabaráttunni á næstu vikum
en það gæti reynst henni dýrkeypt í
forsetakosningunum í nóvember ef
repúblikanar tefla fram forsetaefni
með raunhæfa möguleika á sigri.
Trump styrkir stöðu sína
Úrslitin í forkosningum repúblik-
ana í New Hampshire eru mikið áfall
fyrir andstæðinga Trumps í flokkn-
um. Marco Rubio, öldungadeildar-
þingmaður frá Flórída, lenti í fimmta
sæti eftir góða útkomu í forkosning-
um í Iowa. Lítið fylgi hans í New
Hampshire er einkum rakið til
slæmrar frammistöðu hans í sjón-
varpskappræðum á laugardaginn
var þegar hann svaraði ásökunum
um að hann talaði eins og vélmenni í
kosningabaráttunni með því að tala
eins og vélmenni.
Ted Cruz, öldungadeildarþing-
maður frá Texas, er nú talinn eiga
mesta möguleika á að keppa við
Trump í suðurríkjunum. Það er ekk-
ert gleðiefni fyrir leiðtoga Repúblik-
anaflokksins vegna þess að þeir telja
Cruz enn verra forsetaefni en
Trump vegna mjög íhaldssamra og
einstrengingslegra skoðana hans í
samfélagsmálum.
Fleiri konur
kusu Sanders
en Clinton
Talið er að Bernie Sanders eigi á
brattann að sækja í suðurríkjunum
AFP
Boðar „pólitíska byltingu“ Bernie Sanders fagnar úrslitum forkosninga demókrata í New Hampshire með stuðn-
ingsmönnum í Concord, höfuðborg ríkisins. Hann bar sigurorð af Hillary Clinton með miklum mun.
DEMÓKRATAR
Hillary
Clinton
Jeb
Bush
Marco
Rubio
Úrslit forkosninganna sem fram fóru í New Hampshire í fyrradag
Donald
Trump
Bernie
Sanders
15,9
Heimild: The Green Papers
60
Sanders og Trump sigruðu í New Hampshire
REPÚBLIKANAR
10
0
20
30
40
50
60
35,1
11,6 11,1 10,6
38,4
John
Kasich
Ted
Cruz
Vinsæll meðal óháðra
» Sanders naut góðs af því að
óflokksbundnir kjósendur gátu
tekið þátt í forkosningunum í
New Hampshire. Um 70%
óháðu kjósendanna í forkosn-
ingum demókrata kusu hann.
» Flestir forsetar Bandaríkj-
anna á síðustu 60 árum sigr-
uðu í forkosningum flokks síns
í New Hampshire. Síðustu þrír
forsetarnir biðu þó allir ósigur
í ríkinu.