Morgunblaðið - 11.02.2016, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Hinn 28. nóvember
2014, þremur dögum
eftir að gert var upp-
skátt um sölu á hlut
ríkisins (Landsbanka
Íslands hf.) í fyrirtæk-
inu Borgun hf. til
valdra viðskiptavina
án útboðs hvatti sá
sem hér ritar í ræðu-
stól Alþingis til sér-
stakrar athugunar á
sölunni. Þessi krafa hefur verið ítrek-
uð af hálfu undirritaðs nokkrum sinn-
um síðan. Einnig sendi undirritaður
Bankasýslu ríkisins formlegt erindi
síðastliðið ár um mat á hlut ríkisins
sem seldur var en Bankasýslan hafn-
aði erindinu. Undirritaður hefur því
sent Ríkisendurskoðun formlega
beiðni um mat á söluverði hlutar rík-
isins í Borgun. Öllum ætti nú að vera
ljóst hvers vegna krafa um sérstaka
athugun á þessari dæmalausu veg-
ferð er nauðsynleg. Frá því að salan
fór fram hefur bankastjóri Lands-
bankans orðið margsaga um atriði
tengd sölunni. Þannig sagði hann
þegar salan fór fram að Landsbank-
inn hefði ekki haft nein efni til að
meta verðmæti hlutarins sem seldur
var. Hann hélt því reyndar jafnframt
fram þá að söluverðið hefði verið hag-
stætt bankanum hvernig sem þetta
tvennt fer saman. Það kom einnig
fram þegar salan fór fram að Banka-
sýsla ríkisins var ekki höfð með í ráð-
um meðan á söluferli á hlut ríkisins í
Borgun stóð yfir. Nú nýlega hélt
bankastjórinn því svo fram að kaup-
endahópurinn hefði borið inn í bank-
ann upplýsingar um verðmæti hlut-
arins og það mat hefði verið grunnur
kaupverðsins. Það er örugglega eins-
dæmi í viðskiptum að kaupandi hlutar
ákveði verð hans sjálfur. Bankastjór-
inn hefur enn fremur haldið því fram
að Samkeppniseftirlitið hafi rekið á
eftir sölunni. Sú staðhæfing hefur
verið borin til baka. Á síðustu dögum
hefur bankastjórinn ánýjað yfirlýs-
ingar sínar um að bankinn hafi ekki
haft neina vitneskju um fyrirtækið
Borgun, rekstur þess og verðmæti
hlutar ríkisins í fyrirtækinu. Borgun
hf. hefur nú í dag (8. febrúar) mót-
mælt þessum orðum bankastjórans í
rökstuddri greinargerð. Bankastjór-
inn hefur ekki heldur frá upphafi veg-
ar og fram á þennan dag fært fram
haldbær rök fyrir því hvers vegna
ekki var leitað til óháðs aðila til að
meta verðmæti hlutarins. Hvað þá
heldur að rökstyðja það að hlutur rík-
isins í Borgun var ekki seldur í gegn-
sæju opnu ferli sem er krafa eiganda
bankans, fólksins í landinu.
Óvæntur hvalreki?
Á síðustu dögum hafa svo komið
fram upplýsingar um n.k. hvalreka (e.
windfall) sem Borgun varð aðnjótandi
í kjölfar yfirtöku VISA Inc. á VISA
Europe. Þessar tekjur munu færa
eigendum Borgunar milljarða. Bæði
bankastjóri Landsbankans og fulltrú-
ar Borgunar hf. hafa fullyrt að þeir
hafi ekki haft vitneskju um að slíkur
hvalreki væri væntanlegur. Það vek-
ur nokkra furðu vegna þess að
snemma árs 2014 komu fram vísbend-
ingar í þessa átt bæði í erlendum
fréttamiðlum og í árshlutauppgjörum
VISA Inc. Rétt um mánuði fyrir sölu
á hlut ríkisins í Borgun mátti lesa á
erlendum fréttamiðlum um hversu
stór hvalrekinn yrði og samkvæmt
því sem þá kom fram mátti hæglega
áætla hlut Borgunar í
honum. Að auki mátti
bæði seljanda og kaup-
anda hlutar ríkisins í
Borgun vera ljóst
hvernig tekjur Borg-
unar af erlendri starf-
semi fóru síhækkandi
árin fyrir sölu hlutarins.
Ef það er rétt og satt að
stjórnendur Lands-
bankans hafi ekki vitað
af eða gert sér grein
fyrir ábata af yfirtöku
VISA Inc. og VISA Europe þrátt
fyrir þær upplýsingar sem fram
höfðu komið í erlendum fréttamiðum
er ljóst að þeir eru ekki starfi sínu
vaxnir. Hafi þeir búið yfir vitneskju
um væntanlegan ábata og samt farið
fram með þeim hætti sem gert var er
það hálfu alvarlegra. Í þessu sam-
bandi er ekki frítt við að hugurinn
reiki til framgöngu bankanna við að
yfirtaka sparisjóði víða um land ný-
lega. Allir þeir sparisjóðir áttu það
sameiginlegt að eiga nokkurn hlut í
Borgun sem stóru bankarnir eign-
uðust við yfirtöku á sjóðunum.
Vantraust
Allt það sem að framan er sagt;
misvísandi yfirlýsingar bankastjóra
Landsbankans, leyndin við sölu hlut-
ar ríkisins í Borgun, ógagnsætt sölu-
ferlið, „skyndilegur“ hvalreki vegna
yfirtöku VISA Inc. á VISA Europe
fylla fólk vantrausti. Vantrausti á yf-
irstjórn Landsbankans, vantrausti á
Landsbankanum sem stofnun, van-
trausti á bankakerfinu í heild.
Traust er eitt veigamesta atriði við
rekstur banka. Sé því stefnt í voða
getur illa farið. Ljóst er að Lands-
banki Íslands og stjórnendur hans
njóta ekki trausts almennings sem
er eigandi bankans. Framkvæma
þarf því viðamikla athugun á sölu
hlutar ríkisins í Borgun, aðdrag-
anda, framkvæmd og áhrifum. Sú at-
hugun getur ekki verið á ábyrgð
Bankasýslu ríkisins sem skipar
stjórn Landsbankans. Athugunin
verður að vera framkvæmd af Al-
þingi, af kjörnum fulltrúum fólksins í
landinu, eigendum Landsbankans.
Af málefnum
Borgunar hf.
Eftir Þorstein
Sæmundsson
Þorsteinn Sæmundsson
»Hafi þeir búið yfir
vitneskju um vænt-
anlegan ábata og samt
farið fram með þeim
hætti sem gert var er
það hálfu alvarlegra.
Höfundur er þingmaður
Framsóknarflokksins.
- með morgunkaffinu
SMYRJA
SÍMJÚK Á BRAUÐIÐ