Morgunblaðið - 11.02.2016, Side 66
Á FERÐ UM Ísland66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Gaman er að sjá hvernig útivist
og fjallgöngur eru orðnar reglu-
legur þáttur í lífi margra lands-
manna. Minnir Sigrún á að sú
var tíð að meðlimir Ferðafélags
Íslands þóttu miklir sérvitringar
sem örkuðu um fjöll og firnindi,
og könnuðu hálendið samhliða
því að reisa fjöldann allan af
skálum.
Vitundarvakningin nær, að
mati Sigrúnar, lengra aftur en
að bankahruninu, sem þó hjálp-
aði til að örva útivistarfíknina
hjá mörgum. „Mér finnst áhug-
inn á starfi FÍ hafa haldist í
hendur við upphaf tölvuvæðing-
arinnar og byrjað fyrir alvöru á
9. og 10. áratugnum. Hér áður
fyrr vann fólk störf sem voru
meira líkamlega krefjandi og
notaði þá frítímann í að slaka á
og helst að liggja á heitri sólar-
strönd og gera sem minnst. Með
kyrrsetuvinnunni verður til hjá
fólki þörfin fyrir að nýta frítím-
ann í að hreyfa sig. Um leið hafa
samgöngur batnað og þekking
okkar á landinu aukist. Göngu-
leiðir á afskekktum og áhuga-
verðum áfangastöðum hafa ver-
ið gerðar aðgengilegri og ný
tækni á borð við GPS gert ferð-
irnar öruggari.“
Bæði hefur fólk uppgötvað
hvað það er gefandi að ganga
um Íslenska náttúru og nærandi
fyrir líkama og sál, en Sigrún
segir ekki síður laða marga að
starfi Ferðafélagsins hversu
góður andi er í hópnum. „Ég fór
í mína fyrstu ferð með FÍ upp úr
1990 og eignaðist þar vini fyrir
lífstíð. Þetta er fólk sem ég
hefði sennilega aldrei kynnst
annars.“
Ekki lengur sérvitringar
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands
var dreift fyrir skemmstu. Að vanda
er þar að finna ítarlegar upplýsing-
ar um metnaðarfulla dagskrá félags-
ins á árinu og skálana sem Ferða-
félagið starfrækir víðsvegar um
land.
Sigrún Val-
bergsdóttir er
varaforseti FÍ og
formaður ferða-
nefndar. Hún
segir starfið ná
hámarki yfir
sumartímann en
alltaf eitthvað í
gangi árið um
kring. „Skipta má
starfsemi Ferða-
félags Íslands í þrjá meginþætti,
sem eru rekstur skálanna, ferðirnar
og síðan útgáfustarfsemin. Allt
hangir þetta saman og miðar að því
að kynna og opna landið fyrir fé-
lagsmönnum og gera þeim kleift að
láta sínar draumaferðir verða að
veruleika.“
Efling og þjálfun
Áberandi í ferðaáætluninni í ár
eru ýmis átaksverkefni þar sem
áhugafólk um útivist getur tekist á
við stærri áskoranir og byggt sig
upp í færni, getu og þekkingu.
„Nefna má sem dæmi verkefnið
Heilsurækt á fjöllum sem er í um-
sjón Reynis Traustasonar og Ólafs
Sveinssonar. Þetta er nýtt verkefni
þar sem gengið er á fjöll einu sinni í
viku og hugsað fyrir þá sem vilja
taka sín fyrstu skref í fjallgöngu. Er
áherslan á að ganga rólega og létt
og njóta útiverunnar í góðum fé-
lagsskap en verkefnið stendur frá
janúar og fram í maí,“ útskýrir Sig-
rún.
Annað verkefni, Léttfeti, lætur
þátttakendur takast á við eitt við-
ráðanlegt fjall í mánuði. „Svo er
Fótfrár, þar sem gengið er á meira
krefjandi fjall mánaðarlega, og
Þrautseigur, þar sem fjöllin eru tvö
hvern einasta mánuð ársins,“ segir
Sigrún.
Að skella sér í göngu með Ferða-
félagi Íslands er á allra færi. Að
sögn Sigrúnar eru of margir hikandi
við að prófa, því þeir óttast að geta
ekki haldið í við hópinn. „En að
ganga á fjöll er ekki keppni, og allt
önnur tegund af útivist. Þá erum við
með mjög skemmtileg verkefni í
boði í vetur sérstaklega sniðin að
þörfum þeirra sem vilja fá betri
stuðning við að stíga fyrstu skrefin.
Eitt slíkt verkefni kallast The Big-
gest Winner og er sérstaklega ætlað
þeim sem eru ögn í yfirvigt en vilja
koma sér út úr húsi og byrja á léttri
láglendisgöngu samhliða mælingum
og æfingum í jákvæðri og upp-
byggilegri umgjörð.“
Af svipuðum toga er Bakskóli
Ferðafélagsins. „Þar er fléttað sam-
an léttum gönguferðum og styrkt-
aræfingum fyrir þá sem glíma við
vandræði í baki,“ segir Sigrún og
tekur undir með blaðamanni að ekki
sé lengur hægt að finna neinar af-
sakanir fyrir því að reima ekki á sig
gönguskóna og slást með í för.
Allir aldurshópar velkomnir
Sigrún bætir við að margir hafi þá
ranghugmynd um ferðir Ferða-
félags Íslands að þær séu helst
sniðnar að fólki sem komið er á
miðjan aldur; settlega karla og kon-
ur frá fertugu og upp úr. Raunin er
að allir aldurshópar geta notið sín í
starfi félagsins og má líka finna
hópa sem sinna gagngert yngsta úti-
vistarfólkinu. „Ferðafélag barnanna
er fyrir krakka upp að 18 ára aldri.
Þangað koma börnin í fylgd með
fullorðnum en ferðirnar eru byggð-
ar upp fyrir börnin s.s. með dags-
ferðum í samstarfi við Háskólann
sem tvinna saman fróðleik og ferða-
lag. Þá er hópur fyrir ungt fólk á
aldrinum 18-25 ára sem ferðast
saman hér og þar um landið á eigin
vegum, án fylgdar fullorðinna.“
Alls eru 60 dagsferðir á dagskrá
FÍ á þessu ári og þar af er um helm-
ingurinn nýjar ferðir. Spannar flór-
an allt frá stuttum göngutúrum um
Mosfellsbæ upp í langar og krefj-
andi göngu- og skíðaferðir um Snæ-
fellsnesið. „Síðan eru líka margar
lengri ferðir sem taka allt frá tveim-
ur dögum og upp í viku eða janvel
níu daga,“ segir Sigrún og bætir við
að vanir leiðsögumenn séu alltaf
með í för til að gæta að örygginu og
fræða ferðafólkið um náttúru og
sögu hvers svæðis.
„Ferðir FÍ á Hornstrandir og
Lónsöræfi eru mjög vinsælar og
upplagt fyrir þá sem vilja skoða
þessi svæði í fyrsta sinn að gera það
með Ferðafélaginu. Leiðsögnin
tryggir að fólk fær miklu meira út
úr ferðinni en ella.“
Ekki lengur neinar afsakanir
Í ár býður Ferðafélagið meðal annars upp á verkefni fyrir þá sem eru með bakvandamál eða í yfirvigt en vilja
samt taka þátt í ferðum félagsins Einnig eru hópar starfræktir fyrir börn og 18 til 25 ára fjallgöngufólk
Upplifun Göngur Ferðafélags Íslands þykja mjög skemmtilegar og gefandi og félagsskapurinn af allrabestu sort. Leiðin liggur víða um land og fróðir leiðsögumenn alltaf með í för.
Sigrún
Valbergsdóttir Hvíld Gvendarskál í Hólabyrðu. Myndin sýnir vaskan hóp göngugarpa í eft-
irminnilegri Söguferð Ferðafélags Íslands sem farin var á síðasta ári.
Útsýni Reykjaströnd séð af Þórðarhöfða. Fegurð íslensks landslags höfðar
jafnt til unga fólksins og þeirra sem eldri eru og úrval ferða í boði.
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Erum í sama húsi en höfum flutt okkur um nokkur verslunarbil
L i f and i v e r s l un
Verð að
eins
13.900
kr.
Elite fiskabúr
TILBOÐ
• 54 l.
• Ljós og ljósastæði
• Lok
• Dæla
• Hitari
Kíkið í
heimsók
n
Fyrsta skipti á Íslandi
Nurse hákarl
til sýnis í
verslun okkar
Full búð af nýjum skraut og sjávarfiskum