Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 68

Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 68
Á FERÐ UM Ísland68 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016 MAGNOLIA OFFICINALIS Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni „Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef ekki sofið betur í mörg ár.“ SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni Hefur verið notað við svefnvandamálum, kvíða og depurð í yfir 2000 ár í Asíu Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Anup Gurung hefur um langt skeið starfað sem leiðsögumaður í flúða- siglingum á Norðurlandi. Í dag er hann annar eigenda Viking Rafting (www.vikingrafting.com) sem m.a. býður upp á siglingar á Austari og Vestari Jökulsá. Býður fyrirtækið upp á fjórar tegundir siglinga: „Sú vinsælasta er dagsferð í Austari Jökulsá sem er lífleg sigling. Næst- vinsælust er rólegri og fjöl- skylduvænni ferð niður Vestari Jök- ulsá. Þá bjóðum við upp á lengri leiðangur sem er þriggja daga ferð þar sem leiðin liggur yfir Hofsjökul og síðan róið í tvo daga alla leið frá upptökum árinnar. Loks vorum við að bæta við nýrri straumvatnsferð á kajak sem má sérsníða fyrir hvern hóp og hægt að sigla víða um land.“ Ómótstæðileg straumvötn Anup fæddist í Nepal en fluttist til Íslands árið 2001. Flestir þekkja Nepal fyrir mikilfengleg fjöll og hafa nepalskir fjallaleiðsögumenn verið rómaðir fyrir hæfni sína frá því löngu áður en Tenzing Norgay sýndi Edmund Hillary leiðina upp á tind Everest. En Nepal er líka ofarlega á lista hjá flúðasiglingaunnendum, enda fylgja jú bröttum fjöllunum langar og sprækar ár. Anup var bráðungur þegar hann fór fyrst að starfa sem leiðsögumaður í flúðasigl- ingum og þegar hann var unglingur varð hann fyrst var við íslenska áhugamenn um siglingar sem vildu nýta sér sérþekkingu nepölsku leið- sögumanna í siglingar um íslenskar ár. „Árið 2001 var ég í Evrópu og stóð til boða starf á Íslandi sem ég þáði enda hafði ég lengi haft áhuga á landinu og heyrt góða hluti frá koll- egum mínum í Nepal. Þó að þeir hafi ekki látið vel af veðurfarinu og kuld- anum þá gátu fáir þeirra staðist að koma aftur eftir að hafa einu sinni fengið að kynnast íslensku straum- vötnunum.“ Þurr og sæl Að sögn Anup eiga Íslendingar mikil verðmæti í ánum sem finna má vítt og breitt um landið. Austari Jök- ulsá segir hann mikla perlu, og róm- aða meðal flúðasiglingamanna sem eina bestu á Evrópu, ef ekki þá bestu. „Vestari Jökulsá er ekki síður skemmtileg við að eiga og er m.a. mjög þægileg að því leyti að fær leið- sögumaður getur gert ferðina niður ána hvort heldur auðvelda og rólega eða krefjandi og æsispennandi, allt eftir því á hvaða staði í fljótinu hann beinir bátnum.“ Hvers er svo að vænta í ferð með Viking Rafting? Snýr fólk kannski heim blautt, kalt og hrakið? „Þvert á móti hafa margir orð á því eftir sigl- inguna hvað þeir eru þurrir og þeim hlýtt. Við útvegum öllum þurrbún- inga, skó, hanska, hjálm og björg- unarvesti. Fólk kemur í sínum eigin hlýja fatnaði til að klæðast undir og ekki nema svo óheppilega vilji til að gat leynist á þurrbúningnum kemst bleyta að kroppnum. Og jafnvel ef bleytan lætur á sér kræla er kuldinn ekki að trufla því róðurinn niður ána kallar á það að vera stöðugt á hreyf- ingu.“ Bækistöð fyrirtækisins er á Hall- grímsstöðum, í hæfilegri aksturs- fjarlægð frá Akureyri. Þar er farið vandlega yfir ferðina sem er fyr- irhuguð þann daginn og bátsverjar klæddir í hlífðarfatnaðinn. „Þá tekur við akstur upp með Jökulsá, að upp- hafspunkti siglingarinnar. Kennum við þar vandlega hvernig á að bera sig að í bátnum, og hvernig á að bregðast við ýmsu því sem getur gerst á leiðinni, s.s. ef einhver fellur fyrir borð. Sama hvort fólk er að sigla í fyrsta sinn eða er að fara í sína fimmtugustu ferð förum við yfir sömu grunnatriðin og leggjum ekki af stað fyrr en allir hafa náð góðum tökum á sínu hlutverki í ferðinni.“ Allir eiga að geta ráðið við flúða- siglingu og í léttari ferðunum í Vest- ari Jökulsá segir Anup miðað við 6 ára aldurslágmark og sumir gest- irnir hafi verið vel yfir áttræðu. „Við höfum líka tekið á móti fötluðu fólki með sérþarfir og hægt að haga sigl- ingunni þannig að sé við hæfi flestra. Í Austari Jökulsa er aldurs- lágmarkið 18 ár og þátttakendur þurfa að vera í ágætu formi til að takast á við ána.“ Ísland með bestu stöðum í heimi til að stunda flúðasiglingar  Austari Jökulsá er rómuð sem ein besta á Evrópu  Viking Rafting býður þar upp á æsispennandi ferðir Sérfróður Anup Gurung hefur ver- ið leiðsögumaður frá unga aldri. Hrikalegt Á leiðinni niður ána má komast í snertingu við náttúruna. Áskorun Að fara á kajak niður ólgandi fljót er ógleymanleg reynsla. Þægindi Ferðin tekur á en allir fá þurrbúninga, skó og hanska. Eins og fyrr var getið er Austari Jökulsá talin með bestu ám álf- unnar til að stunda flúðasigl- ingar á. Anup segir þó hætt við að virkjanaáform eyðileggi ána. „Hugmyndir eru uppi um að reisa virkjun þar sem Vestari og Austari Jöklsá mætast, á svæði sem kallað er Villinganes. Myndi þetta breyta báðum ánum í mikið uppistöðulón og rýra mjög nota- gildi þeirra til flúðasiglinga. Voru virkjunarhugmyndirnar fyrst settar fram í kringum alda- mótin og hafa andstæðar fylk- ingar tekist á um kosti og galla virkjunarinnar.“ Anup segir að virkjunin muni varla kosta svo mörg töpuð störf í héraðinu, þó að hún verði til þess að Viking Rafting leggi upp laupana. „En þá á eftir að meta bæði framtíðarvöxt ferðaþjón- ustu á svæðinu og þau verðmæti sem liggja í því að fólk hafi hér áfram aðgang að þessu góða svæði til að stunda flúðasiglingar og aðra útivist. Fjöldi gesta hjá Viking Rafting eykst hratt og von á um m 3.500 gestum í ár. Er hægt að vænta þess að fjöldinn hafi margfaldast að 5, 10 eða 15 árum liðinum með tilheyrandi at- vinnusköpun og afleiddum störf- um.“ Bendir Anup á að ýmis virkj- anaævintýri úti í heimi séu víti til varnaðar og dæmin hafi sýnt að þau verðmæti sem liggja í óspilltri náttúru eru oft ekki rétt metin, og jafnvel ef reynt er að vinda ofan af skaðanum þá geti tekið marga mannsaldra fyrir líf- ríki virkjunarsvæða að ná sér aftur á strik. „Það er meira sem þarf að taka inn í myndina en hagsmunir líðandi stundar og krónurnar sem fara í kassann.“ Perlur í hættu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.