Morgunblaðið - 11.02.2016, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Á FERÐ UM Ísland
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Framkvæmdir eru hafnar við upp-
byggingu á Hestasetrinu Sleipni í
Hveragerði og stefnan sett á að þar
muni hefjast starfsemi í lok árs, í
nýju húsi sem mun rísa við Breiðu-
mörk í Hveragerði, gegnt Hótel
Örk.
Sigurbjörn Viktorsson hesta-
dómari, sem stendur að verkefninu
ásamt Viktori Sveinssyni, hafði
gengið með hugmyndina í maganum
í nokkur ár áður en hann fékk Vikt-
or til liðs við sig til að gera setrið að
veruleika.
Starfseminni í setrinu má
kannski best lýsa sem vandaðri sýn-
ingu þar sem saga Íslands er sögð
frá sjónarhorni hestsins. „Þunga-
miðjan í setrinu er tveir salir þar
sem sýnd verður kvikmynd gerð
eftir handriti Friðriks Erlingssonar
sem einnig skrifar alla kynning-
artexta á sýningunni. Sveinn M.
Sveinsson framleiðir kvikmyndina
og Finnur Malmquist grafískur
hönnuður mun bera ábyrgð á útliti
sýningarinnar, hönnun vefsíðu og
hönnun alls annars efnis sem setr-
inu tengist,“ útskýrir Sigurbjörn en
tökur á kvikmyndinni eru hafnar og
munu standa yfir fram á sumar.
Verður myndin sýnd á ensku í ein-
um sal en á níu öðrum tungumálum
í hinum salnum.
Bjargvættur þjóðar
„Aðalsöguhetjan er íslensk
hryssa sem greinir áhorfandanum
frá því hvernig hesturinn lék mik-
ilvægt hlutverk í sögu þjóðarinnar,
var þarfasti þjónninn í öllum verk-
um og samgöngum og fæða fyrir
landann í mestu harðindunum.
Framsetningin er einföld og að-
gengileg, svo að kvikmyndin á að
höfða til hins almenna ferðamanns,
sem og til heimamanna.“
Sérkennum íslenska hestsins
verða gerð góð skil og mun sýningin
fræða um gangtegundirnar, liti og
einstakan feldinn sem tekur ekki
aðeins breytingum eftir árstíðum
heldur getur líka breytt um lit eftir
aldri hestsins. „Það fyrsta sem blas-
ir við þegar komið er inn í húsnæðið
er sjálfur Sleipnir, uppstoppaður og
áttfættur í miðju aðalrýminu sem
um leið er matsölustaður. Í upphafi
eða lok heimsóknarinnar geta gestir
fengið sér þjóðlegan snæðing á mat-
sölustaðnum, s.s. hangikjöt og
hesta-carpaccio, og umgjörðin
skemmtilega grófgerð með íslensk
stíleinkenni. Þarna verða engir
hamborgarar með frönskum,“ út-
listar Sigurbjörn.
Vísir að ferðaþjónustukjarna
Utan um Hestasetrið Sleipni
verður reist glæsileg bygging sem
Kári Eiríksson arkitekt hefur hann-
að. Húsið er svo stórt að þar rúmast
fleiri fyrirtæki og segir Sigurbjörn
nú unnið að því að velja inn hentuga
samstarfsaðila svo að myndast geti
vísir að litlum ferðaþjónustukjarna
á besta stað í Hveragerði.
Sigurbjörn segir ljóst að þörf er á
fleri áhugaverðum viðkomustöðum
fyrir ferðamenn sem leið eiga um
svæðið. „Hveragerði hefur alla
burði til að verða næsta ferða-
mannaparadís Íslands. Unnið er að
endurreisn Edens, von á nýju
heilsuhóteli og nú þegar að á bilinu
140-150.000 manns fara hér um
bara til að labba inn í Reykjadal,“
segir hann. „Hestasetrið og aðrir
áfangastaðir í bænum geta verið
fyrsta stopp á leið ferðamanna út
fyrir Reykjavík eða hluti af sunnu-
dagsrúntinum fyrir borgarbúa. Þá
er vonandi að gott samstarf verði
milli okkar og hestaleiganna á
svæðinu og lifandi hestasýning-
arinnar í Fákaseli.“
Þá segir Sigurbjörn orðið löngu
tímabært að gera íslenska hestinum
skil með þeim hætti sem gert verð-
ur í setrinu. „Íslenski hesturinn er
merkileg skepna, og hefur um langt
skeið verið okkar öflugasti sendi-
herra á erlendri grundu. Er upp-
lifun að koma á hestasýningar í
Evrópu og sjá þar íslenska fánann
blakta víða. Þar finnur maður fólk
sem hefur tekið miklu ástfóstri við
Ísland, jafnvel án þess að hafa
nokkurntíma heimsótt landið, og
allt vegna þess að það keypti sér ís-
lenskan hest.“
Vinsældir íslenska hestsins er
auðvelt að útskýra, að mati Sigur-
björns. „Hann er auðmjúkur þjónn
og hefur mýkt í gangtegundunum
sem önnur hestakyn hafa ekki. Er
auðvelt að taka ástfóstri við þessa
skepnu í löngum og áreynslulausum
reiðtúrum úti í skógi þar sem hann
er eins og hugur manns. Íslenski
hesturinn hentar hvort heldur fimm
ára knapa eða sjötugum, ólíkt stóru
erlendu tegundunum sem eru varla
nema á færi fagfólks í reiðmennsku
að tjónka við.
Í Hveragerði mun rísa Hestasetrið Sleipnir þar sem gestir
geta upplifað sögu landsins í gegnum augu þarfasta þjónsins
Sjálfur Sleipnir verður til sýnis, uppstoppaður og áttfættur
Morgunblaðið/Golli
Víðförull Sigurbjörn segir íslenska hestinn einn öflugasta fulltrúa Íslands á erlendri grundu.
Setur til heiðurs
einstökum hesti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fagrir Íslenska hestakynið er þjóðargersemi og mörgum kostum gætt.