Morgunblaðið - 11.02.2016, Qupperneq 82

Morgunblaðið - 11.02.2016, Qupperneq 82
82 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016 VE R T Eurovision partý? Þetta verður veisla Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu þér ekki bregða þótt eitthvað togni úr verkefni sem fyrst virtist einfalt mál. Vertu raunsær í peningamálunum og forðastu ákvarðanir um stórar fjárfestingar 20. apríl - 20. maí  Naut Staldraðu við og íhugaðu hvað það er sem skiptir raunverulegu máli í lífinu. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila og það er þér í hag að halda öllu í skefjum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Notaðu daginn til að dekra við sjálfan þig því þú verður að endurnýja orkuna. Reyndu að koma eins miklu í verk og þú getur. Þá áttu líka skilið að hvílast. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Viðskiptin hægja á sér á meðan þú bíður eftir símtali frá ákveðnum aðila. Gerðu þér far um að kynna þér alla málavexti áður en þú kveður upp dóm. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Óvænt tækifæri mun bjóðast þér og það ríður á miklu að þú kunnir að bregðast rétt við. Mundu að þú færð borgað fyrir að fara að fyrirmælum annarra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt líðan þín sé ekki með besta móti mun það ástand ekki vara lengi þó svo það verði orðið ansi þrúgandi undir lokin. Kannski þarftu að skipta um umhverfi til þess að fá meira súrefnisflæði um heilann. 23. sept. - 22. okt.  Vog Flas er ekki til fagnaðar og það á svo sannarlega við um þá aðstöðu sem þú ert í núna. Fólk er ekki svo ólíkt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú finnur fyrir mikilli innri spennu í dag og finnst að þér séu allar leiðir lokaðar. Notaðu þetta þér til framdráttar og losaðu svo um spennuna á vitrænan hátt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt erfiðleikar skjóti upp koll- inum hér og þar eru þeir bara til að sigrast á og þú hefur gaman af þeirri glímu. Reyndu því að temja þér aðrar vinnuaðferðir sem fyrst. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það getur vakið ýmsar tilfinn- ingar þegar ganga þarf frá persónulegum málum. Viðskipti dagsins munu færa þér hagnað og ánægju í framtíðinni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Líf þitt er ljóð í dag. Allt sem tengist fjölskyldu og heimili getur á einhvern hátt aukið velsæld þína. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ástæðulaust að fá sekt- arkennd yfir öllu sem þú gerir fyrir sjálfan þig. Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinur og treystu aðeins þeim sem hafa reynst þér vel. Síðustu daga hefur verið fjörugtá Leirnum og mikið um limrur. Ólafur Stefánsson lét ekki sitt eftir liggja, – með orðunum „Jæja- ,krakkar, hér kemur smá vitleysa!“ Limrungum létt er að brosa láta allt flakka’ út í rosa. Þær gölluðu, súru, þær góðu og klúru, fara allar í eilífðar posa. Limran er línulegt X sem löngum er innbyggt í sex. Mannvanar meyjar, munnhvatir peyjar, og alls konar erótísk hex. Limran, sú ótínda enska, allra síst kalla má bernska. Þó sé fordæming hönnuð, hún fast að því bönnuð, þá gera menn sér lítið fyrir og lengja bara síðustu línuna. Veg okkar varðaði drottinn, þó veltum oft synda- í pottinn. En helst vil að endum á Himnanna lendum, þó háll sé’ann hérvistarspottinn. Að lokum er hér limra eftir Ólaf „um skáldkonurnar okkar þessar elskur“: Í seiðandi síbyljugalsa á sígrænum engjum þær valsa, með kött útí mýri með kafloðið stýri dansa þær sömbu og salsa. Gunnar J. Straumland sagði: „Þar sem sól fer örlítið hækkandi á lofti hvern dag sem líður held ég að mér sé óhætt að birta þetta drunga- lega vetrarkvæði,“ – aldagamla vetrarmynd af Skjálfanda: Man ég ólgusvartan sjó sjóða í klakahöllum. Í vetrarsorta sáum kló- sigana yfir fjöllum. Í næðingi út við nyrsta haf nifl um daga ríkir. Veturnir þegar sólin svaf sýnast engu líkir Kinnafjallaklettaborg klif og hrjósturtindar hafa litið sára sorg svartrar vetrarmyndar. Grímur Sigurðsson, bóndi á Jök- ulsá í Flateyjardal, orti: Stjörnur eygði eg í kvöld undir dökkum baugum. Hugann gæti ég heila öld helgað slíkum augum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Limrungar og vetr- armynd af Skjálfanda Í klípu „ÉG ÞARF AÐ FÁ ÁÞREIFANLEGAN ÁRANGUR. PRENTAÐU HANN ÚT FYRIR MIG.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SJÁÐU HVAÐ HÚN GERÐI VIÐ NAMMIÐ MITT!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fara yfir strikið hvort fyrir annað. VIÐ ÆTTUM AÐ BYRJA HUGLEIÐSLU FRÁBÆR HUGMYND ÞETTA ER EKKI HUGLEIÐSLA HVA? – ÞÚ VAKTIR MIG ÁÐUR EN ÉG GAT NÁÐ ÆÐRA STIGI MEÐVITUNDAR ÉG MUN ALDREI YFIRGEFA KONUNA MÍNA! ÞETTA GEFUR MÉR AUKNA TRÚ Á HJÓNABANDIÐ! HANN ER AÐ ÆFA SIG ÁÐUR EN KÆRASTAN HANS KEMUR HINGAÐ. Það voru óvenjugóðar heimtur hjáVíkverja þennan sprengidaginn, þegar hann fékk einn af sínum uppá- haldsréttum, saltkjöt og baunir, bæði í hádeginu og í kvöldmatinn. Túkallinn fékk þó að eiga sig í bæði skiptin. Hafði Víkverji á orði að hann ætlaði sér að vera eins og rús- ína í vinnunni daginn eftir, svo mikil yrði saltkjötsneyslan. Eitthvað varð þó minna úr efndum. x x x Víkverji minnist þess annars aðþegar hann var ungur hafi verið nokkuð meira tilstand í kringum þessa þrjá daga, bolludag, sprengi- dag og öskudag en nú er. Hann föndraði bolludagsvönd í skólanum, sem síðar var beitt á mjög vanþakk- láta foreldra og hann saumaði ösku- dagspoka, sem sömuleiðis voru nældir aftan á hina sömu foreldra og áður höfðu þurft að þola fleng- inguna. x x x Jafnvel þá var sá siður kominn suð-ur fyrir heiðar, að börnin klæddu sig í öskudagsbúning, og var jafnan nokkuð lagt upp úr þeim. Búning- arnir voru að vísu nær alltaf heima- tilbúnir úr því sem hendi var næst. Víkverji var því einu sinni pönkari, jafnvel þó að hvorki hann né nokkur annar jafnaldri hans bæri nokkurt skynbragð á það hvað fælist í pönki. Annað sinn var hann hippi, og naut þá góðs af því að eiga foreldra sem höfðu verið upp á þeim tíma. x x x Víkverji minnist þess þó ekki, aðhann hafi farið í fyrirtæki og sungið í skiptum fyrir sælgæti. Sá siður virðist vera einhvers konar blöndun á „hefðbundnum“ öskudegi og hrekkjavökunni engilsaxnesku. Ólíkt mörgum er Víkverji ekkert sérstaklega ósáttur þó að erlend menningaráhrif blandist þannig inn í íslenska siði og breyti þeim í takt við tíðarandann. Þvert á móti er Vík- verji nokkuð feginn. Nú þegar frum- burðurinn er skammt undan er Vík- verji til dæmis nokkuð feginn því að svo virðist sem að bolludagsfleng- ingar séu á undanhaldi. Hann þarf þá ekki að fylgja í fótspor foreldra sinna. víkverji@mbl.is Víkverji því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf. Efesusbréfið 2:8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.