Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 85

Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 85
MENNING 85 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016 þær fimm bækur sem tilnefndar eru hverju sinni eru hver á sinn hátt vel að verðlaununum komnar og svo er bara spurning um hvaða áherslu dómnefndin leggur. Ég átti síður von á þessum verðlaunum,“ segir Gunn- ar Þór sem fyrst var tilnefndur fyrir fjórum árum fyrir bókina Upp með fánann. Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. „Þessi verðlaun skipta gríðarlega miklu máli, enda er alltaf gott að fá klapp á bakið. Þegar ég var til- nefndur fyrir þremur árum breytti það öllu,“ segir Gunnar Þór og rifjar upp að sú bók hafi í framhaldinu hlotið Menningarverðlaun DV. „Meðbyrinn sem ég fann í kjölfar til- nefningarinnar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna gaf mér sjálfstraust til að láta slag standa og einbeita mér alfarið að fræðiskrifum. Hefði ég þurft að skrifa nýjustu bók mína í hjáverkum hefði það tekið óratíma, því kennslan er slítandi,“ segir Gunnar Þór sem í rúma tvo áratugi kenndi sagnfræði við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. Sagan á erindi við okkur öll „Árið 2012 gerði ég mér ljóst að mig langaði að skrifa fleiri bækur og tíminn líður, þannig að ég valdi að kýla á þetta eins og sagt er á góðri ís- lensku,“ segir Gunnar Þór og upp- lýsir að hann hafi tvisvar sinnum fengið sex mánaða styrk frá Rannís til að vinna að nýjustu bók sinni. „Þeir styrkir gerðu útslagið og án þeirra hefði ég ekki skrifað þessa bók. Þó að þetta séu ekki háar fjár- hæðir þá skiptir öllu að getað helgað sig rannsóknarvinnunni. Í þessum bransa kemstu lítið áfram ef þú færð ekki einhvern stuðning í formi pen- ingastyrkja,“ segir Gunnar Þór og þakkar jafnframt ritstjóra sínum hjá Forlaginu gott samstarf. „Bjarni Guðmarsson, er afar góður ritstjóri og mikill fagmaður enda sjálfur sagnfræðingur. Það var ákaflega gott að vinna með honum.“ Spurður hvort hann sé farinn að leggja drög að næstu bók svarar Gunnar Þór því játandi, en vill samt ekki gefa of mikið upp um innihaldið. „Ég get þó sagt að ég mun halda mig við sama tímabil. Fyrstu áratugir 20. aldarinnar eru mikið umbrota- tímabil. Ég er farinn að þekkja vel heimildir og langar að grúska meira.“ Inntur eftir því hvort hann sé bú- inn að ákveða í hvað hann hyggist verja verðlaunafénu segist Gunnar Þór ekkert vera farinn að leiða hug- ann að því. „Þessir peningar koma sér vel, því það er ekki hálaunastarf að helga sig fræðibókaskrifum. Mér finnst sagan skipta máli og er sann- færður um að hún eigi erindi við okk- ur öll. Ég er því upptekinn af því að skrifa bækur sem höfða til almenn- ings þannig að fólk nenni að lesa þær. Sagan er hluti af samtímanum og því er nauðsynlegt að skrifa bæk- ur sem ná til samtímans. Ég hef stundum áhyggjur af því að við pöss- um ekki nógu vel upp á að fræðibæk- ur séu nógu aðgengilegar og skemmtilegar, sér í lagi fyrir þá sem ekki eru í faginu. Við verðum að rækta söguáhugann sem er tvímæla- laust til staðar hjá almenningi. Við þurfum auðvitað líka öflugar rann- sóknir og að miðla þeim,“ segir Gunnar Þór og bendir á að því miður hafi sagan átt undir högg að sækja í skólakerfinu. „Að mínu mati er sagan grunn- grein sem allir ættu að læra. Sagan mótar sjálfsvitund okkar og er órjúf- anlegur partur af okkur. Sú þjóð sem veit lítið um fortíð sína er eins og ein- staklingur sem veit ekkert um sína fjölskyldu. Ég held að það sé miklu meiri áhugi á sögu, líka hjá ungu fólki, heldur en oft er gefið í skyn. Mér fannst þakklátt verk að kenna sögu í framhaldsskóla,“ segir Gunn- ar Þór sem meðfram ritstörfum sín- um sl. ár hefur sinnt stundakennslu við Háskóla Íslands. Ótrúlega stoltur „Ég er pínu hrærður og ótrúlega stoltur. Mér finnst stórkostlegt að fá þessi verðlaun hjá bókaþjóðinni miklu,“ segir Gunnar Helgason, höf- undur bókarinnar Mamma klikk! Að- spurður segist Gunnar búa yfir miklu keppnisskapi og því hafi hann langað mikið til að vinna, en á sama tíma ekki þorað að gera sér vonir. „Ég er búinn að lesa hinar bækurnar sem tilnefndar voru í sama flokki og mér finnst þær frábærar. Mér fannst líkurnar á mínum sigri minnka með hverri bók sem ég las, ekki síst þegar ég las Vetrarfrí eftir Hildi Knúts- dóttur,“ segir Gunnar og tekur fram að það sé nýtt fyrir sér að fullorðnir verðlauni hann, en Gunnar hefur í tvígang hlotið Bókaverðlaun barnanna fyrir bækur sínar um þróttarann Jón Jónsson, vini hans, fótboltann og lífið. Spurður hvort Mamma klikk! sé besta bók hans til þessa segist Gunn- ar mjög illa dómbær á það. „Þegar ég skilaði bókinni af mér var ég svo- lítið stressaður yfir viðtökum, vegna þess að fótboltabækurnar höfðu hlot- ið frábærar viðtökur, gengið vel í sölu. Ég var því pínu hræddur við að skipta um bæði konsept og sögu- persónur, en maður skrifar bara eins vel og maður getur. Það er auðvitað ekki minn reynsluheimur að skrifa um stelpu á kynþroskaaldri og ég var því stressaður yfir viðtökunum, en þetta fór hins vegar ótrúlega vel.“ Svo skemmtilega vill til að Mamma klikk! mun fljótlega eiga sér framhaldslíf á leiksviðinu, en seint á síðasta ári var tilkynnt að Þjóðleik- húsið hefði keypt réttinn á því að leikgera skáldsöguna. „Ég mun skrifa leikgerðina með Símoni Birg- issyni, dramatúrg Þjóðleikhússins,“ segir Gunnar og tekur fram að stefnt sé að því að setja verkið upp á næsta leikári. Arðbærasta fjárfestingin Í samtali við Morgunblaðið bendir Gunnar á að væntanleg leikgerð sé bein afleiðing af því að hann hlaut á síðasta ári ritlaun rithöfunda í fyrsta sinn á ferli sínum. „Þegar ég sótti um ritlaun í fyrra vandaði ég mig mjög við umsókina og þar tók ég fram að ætlunin væri að bókin færi líka á svið. Það að hafa fengið rithöfunda- laun leiddi til þess að ég náði að skrifa mína bestu bók til þessa. Það að hún sé að fara á svið er bara auka bónus, en hún hefði ekki ratað þá leiðina ef hún væri ekki nógu góð, sem ég aftur þakka því að hafa feng- ið rithöfundalaun,“ segir Gunnar sem hlaut laun í sex mánuði á síðasta ári. „Þetta var í fyrsta skiptið sem ég hlaut rithöfundalaun og það breytti öllu að geta einbeitt sér að því að skrifa,“ segir Gunnar og tekur fram að sér leiðist sú neikvæða umræða sem verið hafi um listamannalaun að undanförnu. „Umræðan um listamannalaunin kemur mjög illa við mig, því mér líð- ur eins og afætu þegar ég les nei- kvæð ummæli. Ég hef margoft sótt um listamannalaun og aldrei fengið fyrr en í fyrra. Það er margsannað að þetta er arðbærasta fjárfestingin sem ríkið getur lagt í. Þegar fjöl- miðlar grípa ummæli upp af Face- book sem eru röng, vanhugsuð og fáranleg þá verð ég pirraður.“ Spurður hvort hann sé búinn að ákveða í hvað hann nýti verðlaunaféð svarar Gunnar því neitandi og bætir við: „Ég er bara nýbúinn að fatta að þessu fylgir peningaupphæð. Ég held það sé með mig eins og alla aðra í þessum bransa að við erum ekki í þessu til að verða rík, því þá hefðum við farið í eitthvað annað.“ Inntur eftir því hvort hann sé far- inn að leggja drög að næstu bók svarar Gunnar því játandi. „Ætli næsta bók muni ekki heita Pabbi klikk! og koma út fyrir næstu jól. Ég byrjaði síðasta haust að setja saman söguþráðinn, en það er alltaf það erf- iðasta. Ég vona að söguþráðurinn verði tilbúinn fyrir páska, en ég legg yfirleitt alltaf meiri tíma í söguþráð- inn en sjálf skrifin.“ Aðspurður segir Gunnar frábært að geta skrifað áfram um sama per- sónugalleríið í nokkrum bókum. „Mér líður eins og ég hafi eignast nýja og skemmtilega vini og þá vill maður gjarnan eyða meiri tíma með þeim. Fótboltabækurnar áttu upp- haflega bara að vera þrjár eða jafn- margar og stóru fótboltamótin hér- lendis. En svo fór ég sjálfur til Gautaborgar með syni mínum og fé- lögum hans í FH og fannst það of gott til að sleppa og þá bættist fjórða bókin við. Mamma klikk! átti bara að vera ein bók, en svo finnst mér persón- urnar svo skemmtilegar að mig lang- ar til að skrifa meira um þær,“ segir Gunnar og viðurkennir fúslega að hann vilji með skrifum sínum hafa já- kvæð áhrif á samfélagið. „Fótbolta- bækurnar voru skrifaðar beinlínis til að fá stráka til að lesa meira. Mamma klikk! byrjaði sem skemmti- saga fyrir krakka, en þróaðist út í að vekja athygli á málefnum fatlaðra. Draumur minn var alltaf að það myndi skapast umræða um hvernig fötluðum börnum gengur að lifa venjulegu lífi. Verðlaunin skapa um- ræðugrundvöll og vekja athygli á umfjöllunarefninu.“ Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verð- launanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu Erna Guðrún Árnadóttir, Hildigunnur Sverrisdóttir, Pétur Þorsteinn Óskarsson og Árni Sigurjónsson, sem jafnframt var formaður nefndarinnar. Auk verðlaunaverksins Hunda- daga eftir Einar Má Guðmundsson sem Mál og menning gaf út voru í flokki fagurbókmennta tilnefndar í stafrófsröð höfunda: Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur sem Mál og menning gaf út; Sjóveikur í München eftir Hallgrím Helga- son sem JPV útgáfa gaf út; Leiðin út í heim eftir Hermann Stef- ánsson sem Bókaútgáfan Sæ- mundur gaf út og Eitthvað á stærð við alheiminn eftir Jón Kal- man Stefánsson sem Bjartur gaf út. Auk verðlaunaverksins Þegar siðmenningin fór fjandans til – Ís- lendingar og stríðið mikla 1914- 1918 eftir Gunnar Þór Bjarnason sem Mál og menning gaf út voru tilnefndar til verðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis: Bókabörn eftir Dagnýju Kristjáns- dóttur sem Háskólaútgáfan gaf út; Vertu úlfur – wargus esto eftir Héðin Unnsteinsson sem JPV út- gáfa gaf út; Stríðsárin 1938-1945 eftir Pál Baldvin Baldvinsson sem JPV útgáfa gaf út og Stórhvala- veiðar við Ísland til 1915 eftir Smára Geirsson sem Sögufélag gaf út. Auk verðlaunabókarinnar Mamma klikk! eftir Gunnar Helgason sem Mál og menning gaf út voru tilnefndar til verð- launa í flokki barna- og unglinga- bóka: Sölvasaga unglings eftir Arnar Má Arngrímsson sem Sögur útgáfa gaf út; Drauga-Dísa eftir Gunnar Theodór Eggertsson sem Vaka-Helgafell gaf út; Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur sem JPV útgáfa gaf út og Randalín, Mundi og afturgöngurnar eftir Þórdísi Gísladóttur sem Bjartur gaf út. Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kost- uð af Félagi íslenskra bókaútgef- enda. Auk þess eru verðlauna- höfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðs- syni á gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans. Íslensku bókmenntaverðlaun- unum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Alls voru 15 bækur tilnefndar FJÖGURRA MANNA LOKADÓMNEFND VALDI VERÐLAUNAVERKIN 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is DAVID FARR Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn Lau 5/3 kl. 15:00 54. sýn Mið 30/3 kl. 19:30 61.sýn Lau 13/2 kl. 15:00 Aukasýn Lau 5/3 kl. 19:30 55.sýn Fim 31/3 kl. 19:30 62.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn Fös 11/3 kl. 19:30 56.sýn Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn Sun 21/2 kl. 15:00 Aukasýn Fim 17/3 kl. 19:30 Aukasýn Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn Sun 21/2 kl. 19:30 49.sýn Lau 19/3 kl. 15:00 57.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn Fös 26/2 kl. 19:30 50.sýn Lau 19/3 kl. 19:30 58.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið) Sun 14/2 kl. 19:30 10.sýn Lau 20/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 19/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 27/2 kl. 19:30 13.sýn "Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..." Um það bil (Kassinn) Sun 14/2 kl. 19:30 13.sýn Lau 27/2 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/3 kl. 19:30 19.sýn Fös 19/2 kl. 19:30 14.sýn Sun 6/3 kl. 19:30 17.sýn Lau 20/2 kl. 19:30 15.sýn Mið 9/3 kl. 19:30 18.sýn "...ein af bestu sýningum þessa leikárs." Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Fim 11/2 kl. 19:30 18.sýn Mið 2/3 kl. 19:30 20.sýn Fös 4/3 kl. 22:30 22.sýn Fös 26/2 kl. 22:30 19.sýn Fös 4/3 kl. 19:30 21.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið) Sun 14/2 kl. 13:00 3.sýn Lau 27/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 6/3 kl. 13:00 7.sýn Lau 20/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 28/2 kl. 13:00 6.sýn Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst! Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 13/2 kl. 11:00 aukasýn Sun 14/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 21/2 kl. 13:00 aukasýn Lau 13/2 kl. 13:00 aukasýn Sun 21/2 kl. 11:00 aukasýn Síðustu sýningar! Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari) Fim 11/2 kl. 20:00 24.sýn Lau 13/2 kl. 22:30 28.sýn Lau 20/2 kl. 20:00 32.sýn Fös 12/2 kl. 20:00 25.sýn Fim 18/2 kl. 20:00 29.sýn Lau 20/2 kl. 22:30 33.sýn Fös 12/2 kl. 22:30 26.sýn Fös 19/2 kl. 20:00 30.sýn Fim 25/2 kl. 20:00 34.sýn Lau 13/2 kl. 20:00 27.sýn Fös 19/2 kl. 22:30 31.sýn Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 17/2 kl. 19:30 3.sýn Mið 2/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 24/2 kl. 19:30 4.sýn Mið 9/3 kl. 19:30 6.sýn Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram! Njála (Stóra sviðið) Fim 11/2 kl. 20:00 17.sýn Lau 20/2 kl. 20:00 21.sýn Lau 27/2 kl. 20:00 25.sýn Sun 14/2 kl. 20:00 18.sýn Mið 24/2 kl. 20:00 22.sýn Fös 4/3 kl. 20:00 26.sýn Mið 17/2 kl. 20:00 19.sýn Fim 25/2 kl. 20:00 23.sýn Lau 5/3 kl. 20:00 27.sýn Fös 19/2 kl. 20:00 20.sýn Fös 26/2 kl. 20:00 24.sýn Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu Hver er hræddur við Virginiu Woolf? (Nýja sviðið) Fim 11/2 kl. 20:00 13.k Sun 14/2 kl. 20:00 Lau 20/2 kl. 20:00 Fös 12/2 kl. 20:00 Fim 18/2 kl. 20:00 Lau 13/2 kl. 20:00 Fös 19/2 kl. 20:00 Sýningum lýkur í febrúar Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 12/2 kl. 19:00 104.sýn Lau 13/2 kl. 14:00 aukas. Lau 13/2 kl. 19:00 síð.sýn. Allra síðustu sýningar Flóð (Litla sviðið) Fim 11/2 kl. 20:00 8.sýn Sun 14/2 kl. 20:00 9.sýn Sun 28/2 kl. 20:00 10.sýn Síðustu sýningar Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 14/2 kl. 13:00 102.sýn Allra síðustu sýningar Vegbúar (Litla sviðið) Lau 13/2 kl. 20:00 29.sýn Fim 25/2 kl. 20:00 31.sýn Fös 19/2 kl. 20:00 30.sýn Fös 26/2 kl. 20:00 32.sýn Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 12/2 kl. 20:00 102.sýn Lau 12/3 kl. 20:00 104.sýn Lau 5/3 kl. 20:00 103.sýn Lau 19/3 kl. 20:00 105.sýn Kenneth Máni stelur senunni Illska (Litla sviðið) Fim 18/2 kl. 20:00 Frums. Mið 24/2 kl. 20:00 4.k. Sun 6/3 kl. 20:00 Sun 21/2 kl. 20:00 2.k Lau 27/2 kl. 20:00 5.k Fim 10/3 kl. 20:00 Þri 23/2 kl. 20:00 3.k. Fös 4/3 kl. 20:00 6.k Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins Óður og Flexa halda afmæli (Nýja sviðið) Lau 13/2 kl. 13:00 Lau 20/2 kl. 13:00 Sun 14/2 kl. 13:00 Sun 21/2 kl. 13:00 Nýtt 5 stjörnu barnaverk frá Íslenska dansflokknum Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið) Mán 22/2 kl. 13:00 Þri 23/2 kl. 13:00 Mið 24/2 kl. 13:00 Þri 23/2 kl. 10:00 Mið 24/2 kl. 10:00 Þri 23/2 kl. 11:30 Mið 24/2 kl. 11:30 Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í. Njála – „Unaðslegt leikhús“ – ★★★★ , S.J. Fbl.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.