Morgunblaðið - 11.02.2016, Qupperneq 94
94 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Listamannarekna bókverka-búðin og útgáfan BoekieWoekie í Amsterdam hef-ur sterk tengsl við Ísland,
og í tilefni af 30 ára afmæli Boekie
Woekie hefur í Nýlistasafninu verið
sett upp afmælissýningin Boekie
Woekie 30 ár, books – and more – by
artists. Á sýningunni getur m.a. að
líta innsetningu sem skírskotar til
upphafsreitsins: húsnæðisins þar sem
verslunin hóf reksturinn árið 1986 og
til 1991 þegar hún flutti í núverandi
húsnæði í Berenstraat. Á þessum 30
árum hefur starfsemin dafnað, um 10
þúsund titlar verið gefnir út og versl-
unin hefur reynst mikilvæg miðstöð
bóklistar og vettvangur sýning-
arhalds og uppákoma. Á sýningunni
má sjá ýmislegt forvitnilegt úr ranni
Boekie Woekie og er aðaláherslan
lögð á verk listamannanna og að-
standenda búðarinnar, þeirra Henri-
ette van Egten, Rúnu Þorkelsdóttur,
Jan Voss, Hrafnhildar Helgadóttur
og Brynjars Helgasonar sem skapað
hafa listræna umgjörð starfseminnar.
Henriette, Rúna og Jan eru jafnframt
meðal stofnenda búðarinnar. Í verk-
unum býr sterk tilfinning fyrir list-
rænni lífsnautn og vissri kímni – og
er bókarformið og prentverkið ávallt
undirliggjandi þáttur.
Skemmtilegir þankar og sjón-
rænar pælingar í bókverki í vinnslu
eftir Jan Voss, 1000 One Page Essa-
ys, leiða sýningargestinn upp á efri
hæð safnsins. Yfirlitssýning á verk-
um Þjóðverjans Jans, sem er mikill
„Íslandsvinur“, var haldin í Lista-
safninu á Akureyri sl. sumar og væri
óskandi að sjá hana einnig setta upp á
höfuðborgarsvæðinu. Jan á nokkur
verk á efri hæð, svo sem Samfallinn
skúlptúr á stöpli sem er raunar ryk-
sugupoki fullur af bókaryki úr Boekie
Woekie – sem varðveitir safn slíkra
poka. Hvaða bókabúð annarri í heim-
inum hefur hugkvæmst að varðveita
þennan óhjákvæmilega þátt starf-
seminnar? Í verkinu Mynd án
ramma, veltir Jan vöngum yfir eðli
mynda. Hann minnir á naglann að
baki hverri mynd um leið og hann
neglir, eins og segir í eigulegri sýn-
ingarskrá, „niður óendanleika list-
arinnar“. Fótaþrykk er uppistaðan í
The Long March sem kallast á við
bókverkið í stigaganginum þar sem
það er einnig hluti af lifandi, óloknu
ferli.
Prentferlið er mikilvægur hluti af
bókverkaútgáfu. Rúna sýnir fallega
innsetningu á síðum sem tengjast
gerð bókverkanna Paperflowers og
eru prentplöturnar samofnar verk-
inu. Rúna er grafíklistamaður og nýt-
ir sér möguleika prenttækninnar á
frjóan hátt, m.a. í verkinu Óður til
CLC 700 þar sem hlutir úr uppgjafa
prentvél eru notaðir sem stenslar í
þennan „svanasöng“ vélarinnar.
Grafíklistin kemur einnig við sögu í
verki hinnar belgísku Henriette, Haf-
meyja, en það byggist á fundinni dú-
kristu af sjófugli nokkrum við Ís-
landsstrendur, þar sem Henriette
sjálf hefur löngum dvalið. Þá end-
urnýtir Henriette prentverk af ýmsu
tagi, aðallega af umbúðum, sem list-
rænan efnivið í Klippimyndir. Hrafn-
hildur og Brynjar eiga einnig verk
sem falla vel að sýningunni. Segja má
að verk listamannanna tengist með
einum eða öðrum hætti samstarfinu
og hinni listrænu sköpun í kringum
rekstur Boekie Woekie – starfi sem
ber ljúfan keim af flúxusmyndlist og
hugmynd um listina og lífið sem opið
ferli og sífellda verðandi. Einhvers
staðar yfir vötnum svífur andi Die-
ters Roth – listræns samstarfsmanns
Boekie Wokie til margra ára. Sýn-
ingin í heild skapar góða tilfinningu
fyrir flæði og framvindu og er vel
heppnuð sem slík þótt verkin séu mis-
góð.
Hluti sýningarinnar tengist sögu
útgáfunnar og rekstursins; fyrir utan
áðurnefnda endurgerð af upphaflegu
rými búðarinnar má þarna sjá doðr-
anta þar sem skráðir eru allir útgáfu-
titlarnir. Á kápum bókanna er einnig
dokúmentasjón í formi ljósmynda af
innviðum verslunarinnar. Þar hjá í
sýningarborði sjást bókverk sem
njóta þess vafasama heiðurs að hafa
verið í fórum Boekie Woekie frá upp-
hafi, og í möppum á hillu er safn (sem
enn er í vexti) af (bjór) glasamottum,
Endalaust sólarlag, en það byggist á
samveru og samstarfi aðstandenda
Boekie Woekie og vina þeirra. Upp-
stækkuð prent af sumum mottanna
(og bókverk með úrvali slíkra prenta)
bera vott um gefandi samstarf. Á
neðri hæð safnsins eru fleiri verk eft-
ir höfuðpaura Boekie Wokie, Jan,
Henriette og Rúnu, og þar er vel til
fundið að sýna lifandi myndir úr 30
ára sögu þessarar merku og listrænu
bókaiðju. Ef marka má sýninguna
sjálfa hefur sú iðja verið lífræn, litrík
og umfram allt frjó – jafnframt því
sem hún tekur sig mátulega hátíð-
lega.
Lífræn bókalist
Grafík og bóklist „Rúna sýnir fallega innsetningu á síðum sem tengjast gerð bókverkanna Paperflowers og eru
prentplöturnar samofnar verkinu,“ segir rýnir um þetta verk Rúnu Þorkelsdóttur. Verk eftir Jan Voss til hægri.
Nýlistasafnið, Völvufelli
Boekie Woekie 30 ár, books –
and more – by artists
bbbmn
Til 21. febrúar 2014. Opið kl. 12-17 þri.-
fös., kl. 13-17 lau.-sun. Lokað á mánu-
dögum. Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Hafmeyja Þetta verk Henriette byggist á fundinni dúkristu af sjófugli. Glasamottur Í möppum eru glasamottur með teikningum frá löngum tíma.
Norski spennusagnahöf-undurinn Jo Nesbø sló ígegn með spennusögumaf baráttu rannsókn-
arlögreglumannsins Harry Holes
við glæpamenn. Í kjölfarið hóf
hann að sýna á sér aðrar hliðar
með glæpasögunni Blóð í snjónum,
sem kom út á ís-
lensku í fyrra.
Meira blóð er af
sama meiði, en
með nýrri sögu-
hetju sem er tölu-
vert langt frá
Harry Hole eða
Ólafi leigumorð-
ingja.
Úlfur, öðru nafni
Jón Hansen, er á flótta frá útsend-
urum Sjóarans, helsta eitur-
lyfjabaróns Óslóar, sem kom við
sögu í Blóði í snjónum, síðsumars
1977, nokkrum mánuðum áður en
sagan í fyrrnefndri bók gerist.
Hann er sem á milli steins og
sleggju og á ekki margra kosta völ
í strjálbýlinu á hjara veraldar
nyrst í Noregi og ekki bætir rolu-
skapurinn úr skák. Á einhvern hátt
nær hann að tengjast heimamönn-
um og þótt þeir reynist ekki allir
heilir í stuðningi við hann tekst
honum að vinna suma þeirra á sitt
band og munar um minna, þótt
ógerlegt sé að leynast á svæðinu.
Þetta er bráðskemmtileg bók,
spennandi og með léttu ívafi. Sag-
an hverfist um Úlf og ekki er ann-
að hægt en að hafa samúð með
þessum krimma sem gengur aðeins
gott til þótt lífsbaráttan verði að
hafa forgang. Þótt léttleikinn sé
alltumlykjandi, minni jafnvel á æv-
intýri Münchhausens baróns á
stundum, er alvaran aldrei langt
undan og jafnvel örlar á siðferð-
islegum tóni. Frábær saga og mik-
ill kostur hvað hún er stutt.
Meira blóð bbbbn
Eftir Jo Nesbø.
Bjarni Gunnarsson þýddi.
JPV útgáfa 2016. Kilja, 256 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
GLÆPASAGA
Með veð í sálinni
Morgunblaðið/Kristinn
Vinsæll Ritöfundurinn Jo Nesbø.
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000