Morgunblaðið - 11.02.2016, Page 100
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Banaslys í Reynisfjöru
2. Naktir túristar troða sér ofan í …
3. „Enginn var að fela sig“ í …
4. Andlát: Stefán Gunnlaugsson
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Feðgarnir Þórarinn og Halldór
Eldjárn koma saman fram í Mengi í
kvöld. Þar standa þeir fyrir sam-
eiginlegri ljóða- og tónlistardag-
skrá sem gengur undir nafninu
Ljóðfæri.
Dagskráin var flutt í Mengi í
október síðastliðnum og fékk frá-
bærar undirtektir. Það er Þórarinn
sem flytur ljóðin og Halldór spilar
tónlistina undir flutningnum.
Ljóð og tónlist feðga
í Mengi í kvöld
Á mánudaginn mun Nordic Film
Composers Network afhenda Harpa
Nordic Film Composer-verðlaunin í
sjötta sinn en meðal þeirra sem til-
nefndir eru til verðlaunanna í ár er ís-
lenska tónskáldið Jóhann Jóhanns-
son en hann hefur einnig verið
tilnefndur til óskarsverðlaunanna
fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The
Theory of Everything.
Þá verða einnig afhent Northern
Lights-verðlaunin en þau eru ásamt
fyrrnefndum verðlaunum hluti af
Berlinale-kvikmyndahátíðinni. Meðal
þeirra leikara sem tilnefndir eru til
verðlaunanna er Aníta
Briem en hana þekkja
eflaust margir úr hlut-
verki hennar í t.d. Doc-
tor Who og Journey to
the Center of Earth.
Verðlaunin verða
afhent í sam-
eiginlegu
sendiráði
Norðurlanda í
Berlín.
Íslendingar í eldlín-
unni í Berlín
Á föstudag Austlæg átt, 8-13 m/s og él, einkum norðantil á land-
inu og suðaustanlands. Frost 2 til 10 stig en um frostmark suð-
austantil. Á laugardag Austlæg átt, 8-13 m/s og dálítil él.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-15 m/s en mun hægari vindur
um landið vestanvert. Sums staðar talsverð snjókoma eða slydda
suðaustanlands, annars víða él. Kólnar vestantil.
VEÐUR
Tvöfaldur heimsmeistari
ungmenna, Fanney Hauks-
dóttir, hefur nóg fyrir stafni
á nýju ári. Framundan eru tvö
stórmót í apríl, bæði HM og
EM. Hið síðarnefnda verður
haldið hér á Íslandi í apríl og
Fanney tjáði Morgunblað-
inu að allar hennar æf-
ingar miðuðust nú við að
toppa í apríl. Hún færist
nú upp í fullorðinsflokk og
keppir í -63 kg flokki í bekk-
pressunni. »1
Fanney færist upp
í fullorðinsflokk
„Forráðamenn félagsins hafa af og til
verið í sambandi við mig undanfarin
ár og nú var þetta rétti tíminn til að
taka skrefið og loka hringnum. Þetta
félag stendur hjarta mínu næst og ég
hef góða tilfinningu fyrir því að þetta
sé besta mál fyrir báða aðila,“ segir
Róbert Gunnarsson, landsliðs-
maður í handknattleik, sem snýr
aftur til Århus Håndbold í sumar
eftir ellefu
ára fjarveru.
»2-3
Þetta félag stendur
hjarta mínu næst
„Við stefnum á að taka aftur þátt í
undankeppni HM eftir tvö ár. Það er
strax farið að huga að því hvernig við
getum undirbúið okkur fyrir það.
Mótið í Slóvakíu núna gaf okkur byr
undir báða vængi, miklu frekar en að
draga eitthvað úr okkur,“ segir Har-
aldur Þórir Hugosson, landsliðs-
maður í bandí, um frumraun liðsins í
undankeppni stórmóts. »4
Mótið gaf okkur byr
undir báða vængi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þeir trúðu mér ekki, sögðu að það
væri ekki hægt að fá 10 í einkunn,“
segir Tadas Augustinaitis múrari um
viðbrögð vinnufélaganna, þegar hann
fékk hæstu mögulegu einkunn á
sveinsprófi í múrsmíði í Tækniskól-
anum, en hann fékk sérstaka viður-
kenningu fyrir afrekið á Nýsveina-
hátíð Iðnaðarmannafélags Reykja-
víkur um liðna helgi.
Sveinsstykki múrarans var óað-
finnanlegt. Það var gólf með hlöðnum
veggjum, sem voru 1,5 metrar á hæð
og lengd. Inn í vinkilinn voru hlaðnar
sjö tröppur og allt verkið pússað.
Einn veggurinn var flísalagður, ann-
ar steinaður og sá þriðji fínpússaður.
Á einum vegg var skarð fyrir glugga.
„Tadas er algjör snillingur, mjög
handlaginn og sérlega þægilegur í
allri umgengni,“ segir Rafn Gunn-
arsson, kennari hans. „Það er alveg
sama hvað hann átti að gera, allt lá
ljóst fyrir honum.“
Betur borgað á Íslandi
Tadas er 33 ára Lithái og hefur bú-
ið á Íslandi undanfarin 10 ár. Kona
hans, Kornelija Augustinaitienë, er
einnig frá Litháen og eiga þau átta
ára gamlan son, Justas Augustinaitis.
Tadas segist hafa flutt til Íslands til
að fá betur borgaða vinnu en heima
fyrir. „Það var næg vinna heima en
ekki eins vel borguð og hér,“ segir
hann. „Þegar mér bauðst vinna hjá
Húsanesi flutti ég við fyrsta tækifæri
2006 en konan kom síðan skömmu
síðar,“ segir hann.
Fjölskyldan hefur alla tíð búið í
Keflavík og Tadas unnið hjá sama
fyrirtækinu. Eftir að hafa farið í
raunfærnimat byrjaði hann í kvöld-
og helgarnáminu 2014 og vann fullan
vinnudag með. „Þetta var mjög erf-
itt,“ segir hann.
Tadas fór í íslenskunám skömmu
eftir komuna til landsins en segist
hafa lært mest af vinnufélögunum.
Hann eigi þó töluvert í land í tungu-
málinu og vilji læra íslenskuna betur
áður en hann fari að hugsa um frek-
ara nám. „Ég hef ekki yfir neinu að
kvarta og er ánægður í vinnunni,“
segir hann.
Tadas á ekki langt að sækja tilfinn-
ingu fyrir múrverki, fékk hand-
bragðið nánast beint í æð, en bæði
faðir hans og tengdafaðir eru múr-
arar. Hann segir vinnuna fjölbreytta
þrátt fyrir allt og menn gangi í öll
störf hjá Húsanesi. „Ég er mest að
múra og flísaleggja, en ég vinn líka
við steypuvinnuna, járnabindingarn-
ar og við ísetningu glugga. Ég læri
alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi og
reyni að gera hlutina eins vel og ég
get. Strákarnir héldu að ég væri að
ljúga þegar ég sagði þeim að ég hefði
fengið 10 í einkunn en þeir trúðu mér
þegar ég sýndi þeim einkunnaspjald-
ið.“
„Þeir trúðu mér ekki“
Tadas múrari
Augustinaitis fékk
10 í einkunn
Ljósmynd/Víkurfréttir
Meistarinn Tadas Augustinaitis frá Litháen þykir vandvirkur með afbrigðum og skilar jafnan góðu verki.
Ljósmynd/Rafn Gunnarsson
Sveinsstykkið Óaðfinnanleg vinna á tröppum og veggjum.