Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 6
10.September nk.Námskeiðið hefst 10 Sept 2013 í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stella, stella.gunnars@gmail.com
stella.gunnarsdottir@reykjavik.is
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst Föstudaginn 20.Sept .Nk.
í Árbæjarlaug
2 s ember 2014 í Árbæjarlaug.
föst a i 19. s ember
Innrit ir aga frá kl. 17. 0 og um helgar frá kl. 13.00
í sí t la, stella.gunnars@gmail.com
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst föstudaginn 22. janúar
í Árbæjarlaug
Innritun virka daga frá kl. 17.00 o el ar fr l. .
í síma 557 6618 Stella, stella.gun ars ail.c
i f rir r j r
f t f t i 0. j r
í r j rl
Vísindi Tilraun með bóluefni gegn
ebólu hefur borið góðan árangur.
Ebóluveiran er ein sú skæðasta
sem herjað hefur á mannkynið, en
engar alvörutilraunir hafa verið
gerðar til að vinna bug á henni fyrr
en faraldur braust út í vestanverðri
Afríku árið 2015 og kostaði meira en
11 þúsund manns lífið.
„Þótt þessar afgerandi niður-
stöður komi of seint fyrir þá sem
létu lífið í ebólufaraldrinum í
vestanverðri Afríku, þá sýna þær
að þegar næsti ebólufaraldur brýst
út þá verðum við ekki varnarlaus,“
segir Marie-Paule Kieny, yfirmaður
hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
WHO, en hún stjórnaði rannsókn-
inni.
Tilraunin var gerð á 11.841 ein-
staklingi í Gíneu á árinu 2015.
Af þeim fengu 5.837 manns nýja
bóluefnið, en hinir fengu lyfleysu
til samanburðar. Enginn þeirra
sem fengu bóluefnið smitaðist af
ebóluveirunni, en úr samanburðar-
hópnum smituðust 23.
Rannsóknin var samvinnuverk-
efni WHO með heilbrigðisyfir-
völdum í Gíneu, læknasamtökunum
Læknar án landamæra og norsku
lýðheilsustofnuninni.
Niðurstöðurnar voru birtar í
læknatímaritinu The Lancet og
kynntar í tilkynningu frá WHO á
Þorláksmessu.
Ebóluveiran uppgötvaðist fyrst
árið 1976. Síðan þá hefur ebólufar-
aldur af og til brotist út í nokkrum
Afríkuríkjum, en aldrei náð mikilli
útbreiðslu fyrr en árið 2015.
Þá gerðist það líka í fyrsta sinn
að smitið barst til Vesturlanda. Og
þá fyrst hófust fyrir alvöru tilraunir
með bóluefni. Þær tilraunir hafa nú
borið árangur, aðeins hálfu öðru ári
eftir að þær hófust.
Tilraunin var gerð í Vestur-Afr-
íkuríkinu Gíneu, á svæði þar sem
ný smit voru enn að greinast þegar
hún hófst.
Þess var gætt að þegar einhver
greindist með smit þá fengu allir
sem hinn smitaði hafði umgengist
næstu þrjár vikurnar á undan þetta
bóluefni.
„Ebólan skildi eftir sig gríðar-
mikla eyðileggingu í landi okkar,“
segir Keita Sakoba, yfirmaður
ebóluviðbragða við heilbrigðis-
stofnun Gíneu. „Við erum stolt af því
að hafa getað komið með framlag til
þess að þróa bóluefni sem kemur í
veg fyrir að aðrar þjóðir þurfi að
ganga í gegnum það sama og við
höfum gert.“ gudsteinn@frettabladid.is
Varnarleysið gegn ebólu er úr
sögunni með nýju bóluefni
Nýtt bóluefni gegn ebóluveirunni lofar mjög góðu. Tilraunir skiluðu staðfestum árangri aðeins hálfu öðru
ári eftir að þær hófust. Árið 2015 varð ebólufaraldur í Afríku alls ellefu þúsund manns að aldurtila.
Þótt þessar afgerandi niðurstöður komi of seint fyrir
þá sem létu lífið í ebólufaraldrinum í
vestanverðri Afríku, þá sýna þær að þegar
næsti ebólufaraldur brýst út þá verðum við
ekki varnarlaus.
Marie-Paule Kieny, yfirmaður hjá WHO og stjórnandi rann-
sóknarinnar
umhVerfismál Tillögur ráðgjafar-
nefndar Orkusjóðs um veitingu
styrkja til uppbyggingar innviða
fyrir rafbíla hafa verið samþykktar
af iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Því verður á næstu tveimur árum
hægt að byggja upp heildstætt net
hleðslustöðva og þannig stigið stórt
skref í rafbílavæðingu Íslands, segir í
tilkynningu.
Er þar bæði um hraðhleðslustöðvar
og hefðbundnar hleðslustöðvar að
ræða, samtals 42 hraðhleðslustöðvar
og 63 hefðbundnar stöðvar. Í dag eru
þrettán hraðhleðslustöðvar fyrir raf-
bíla á landinu. Verkefnið nær því til
105 nýrra hleðslustöðva sem byggðar
verða upp á tímabilinu.
Verkefnið er hluti af sóknar áætlun
Íslands í loftslagsmálum sem sett
var fram í tengslum við 21. fund
aðildarríkja loftslagssamningsins í
París (COP21). Miðar verkefnið að
því að gert verði átak í að efla innviði
fyrir rafbíla á landsvísu til að tryggja
aðgengi sem flestra landsmanna að
loftslagsvænum samgöngumáta.
Orkusjóði bárust 33 umsóknir,
samtals að upphæð 887 milljónir
króna. Til ráðstöfunar voru 67 millj-
ónir á ári í þrjú ár (2016-2018), eða
samtals 201 milljón króna.
Af styrkþegunum 16 eru samtals
sex sveitarfélög. Auk þeirra er þar að
finna orkufyrirtæki, söluaðila elds-
neytis og fleiri. Við tillögugerðina var
m.a. litið til þess að best nýting fjár-
muna fælist í því að innviðastyrkirnir
færu til stöndugra aðila þar sem á
þessu stigi eru takmarkaðar markaðs-
forsendur fyrir uppsetningu hleðslu-
stöðva á landsvísu. – shá
Hægt að stíga stórt skref í rafbílavæðingu Flestir landsmenn
munu hafa
aðgang að
hleðslu-
stöðvum
að
verkefninu
loknu.
Mynd/AtvinnuvegAráðuneytið
sVíÞJÓÐ Á nýju ári verður ódýrara
fyrir Svía að láta gera við reiðhjól,
fatnað og skó. Stjórnvöld hafa ákveð-
ið að helminga virðisaukaskattinn af
viðgerðarvinnu. Vonast er til að fleiri
vilji þá láta gera við eigur sínar og þar
með skapist fleiri atvinnutækifæri.
Svíar geta jafnframt fengið frádrátt
frá skatti vegna viðgerða á heimilis-
tækjum eins og til dæmis ísskápum.
Talið er að lækkun virðisauka-
skattsins og skattafrádrátturinn
muni kosta ríkissjóð 460 milljónir
sænskra króna. – ibs
Helminga vask
af viðgerðum
sJáVarútVegur Gefnar hafa verið
út reglugerðir um leyfilega heildar-
veiði á norsk-íslenskri síld og leyfi-
lega upphafsveiði á kolmunna á
árinu 2017.
Leyfilegur heildarafli á norsk-
íslenskri síld verður 102.984 tonn.
Talan miðast við hlut Íslands
í samningi frá 2007 og ráðgjöf
Alþjóðahafrannsóknastofnunar-
innar (ICES) ásamt 10% aukningu
í samræmi við ákvörðun Noregs,
sem hefur langstærstan hlut í stofn-
inum, og jók fyrir skömmu einhliða
hlut sinn úr 61% í 67% af heildar-
aflanum.
Upphafsveiði á kolmunna er
ákveðin 150.000 tonn en leyfilegur
heildarafli verður endanlega ákveð-
inn þegar fyrir liggja ákvarðanir
annarra ríkja um sinn heildarafla.
Stjórnvöld munu við þá ákvörðun
horfa til þess að hagsmunir Ísland
verði ekki fyrir borð bornir. – shá
253.000 tonn
til Íslands
vægi uppsjávarfisks er gríðarlegt fyrir ís-
lenskt þjóðarbú. Mynd/Kristín svAnhvít
Þýskaland Lögregla var með mikinn
viðbúnað til að koma í veg fyrir end-
urtekningu á ástandinu fyrir ári þar
sem mikill fjöldi karlmanna, flestir
af norður-afrískum uppruna, rændu,
áreittu og brutu kynferðislega gegn
fjölda kvenna.
Süddeutsche Zeitung greinir frá
því að tilkynnt hafi verið um tvær
kynferðisárásir í nótt og voru sex
manns handteknir. Alls hafi um
níu hundruð manns verið vísað frá
svæðinu við aðallestarstöðina og
dómkirkju borgarinnar. Lögregla
stöðvaði för mörg hundruð manna af
norður-afrískum uppruna á aðallest-
arstöðinni, en að sögn lögreglu höfðu
þeir skipulagt ferðina til borgarinnar
í sameiningu.
Hinum megin Rínar stöðvaði lög-
regla um þrjú hundruð manns á lest-
arstöðinni Köln-Messe/Deutz þar sem
þeir höfðu engin skilríki meðferðis.
Að sögn lögreglu var brotið kyn-
ferðislega gegn 650 konum á nýárs-
nóttinni fyrir ári. – ebg
Mörgum vísað frá nýársfagnaði
ebólufaraldurinn í Afríku varð þúsundum að aldurtila áður en yfir lauk. FréttAblAðið/AP
lögregla var með mikinn viðbúnað við lestarstöðina í Köln til að koma í veg fyrir
samskonar árásir á konur og gerðar voru fyrir ári. FréttAblAðið/ePA
2 . J a n ú a r 2 0 1 7 m á n u d a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð
0
2
-0
1
-2
0
1
7
0
3
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
6
-1
E
8
4
1
B
D
6
-1
D
4
8
1
B
D
6
-1
C
0
C
1
B
D
6
-1
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K