Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 44
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Adam Örn Ingólfsson
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
lést 27. desember. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju, miðvikudaginn
4. janúar kl. 13.30.
Sólveig Adamsdóttir Sævar Örn Sigurðsson
Ásgeir Adamsson Maríanna Traustadóttir
Lára Halldóra Eiríksdóttir og fjölskylda
Margrét Eiríksdóttir og fjölskylda
Hildur Ásgeirsdóttir Héðinn Árnason
Katla Ásgeirsdóttir
og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar og
tengdamóðir,
Ólöf Ragnheiður
Guðjónsdóttir
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 4. janúar klukkan 13.
Kolfinna Ketilsdóttir Þorsteinn Johansson
Birna Ketilsdóttir Benedikt Svavarsson
Hjördís Ketilsdóttir
Kristín Ketilsdóttir Ólafur Laufdal Jónsson
Guðjón Ketilsson Ragnheiður Elfa Arnardóttir
og fjölskyldur.
Okkar ástkæra og yndislega móðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Guðborg Elíasdóttir
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
andaðist 27. desember á Sjúkrahúsi
Akraness. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 4. janúar kl. 13. Blóm og kransar
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
Börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur.
Kristilegu æskulýðssamtökin KFUM voru stofnuð á Ís-landi þann 2. janúar árið 1899. Helsti hvatamaðurinn að stofnun þeirra var séra Friðrik Friðriksson sem síðar átti
eftir að stofna Knattspyrnufélagið Val og Hauka í Hafnarfirði.
KFUM eru alþjóðleg samtök en séra Friðrik hafði kynnst þeim í
Kaupmannahöfn.
Þótt kristin trú eigi undir högg að sækja í íslensku samfélagi
lifa KFUM og KFUK góðu lífi enn þann dag í dag. Á veturna fer
fram barna- og unglingastarf í um 40 deildum víða um land á
vegum samtakanna. Á sumrin eru starfræktar sumarbúðir á
fimm stöðum á landinu og leikjanámskeið sem haldin eru í
Reykjavík og Kópavogi.Þá er fullorðinsstarf mikilvægur þáttur
félagsstarfs KFUM og KFUK.
Þá reka KFUM og KFUK kristilega leikskólann Vinagarð í
Laugardalnum í Reykjavík.
Þ etta g e r ð i st 2 . ja n úa r á r i ð 1 8 9 9
Friðrik Friðriksson stofnar KFUM
KFUM reka sumarbúðir á fimm stöðum á landinu. Þar á meðal í
Vatnaskógi.
Merkisatburðir
1533 Jóhannes 2. verður páfi.
1793 Rússland og Prússland skipta Póllandi á milli sín.
1833 Bretar hertaka Falklandseyjar.
1870 Bygging Brooklyn-brúarinnar
hefst.
1871 Stöðulögin ganga í gildi. Þau
kváðu á um að Ísland væri órjúfan-
legur hluti danska ríkisins, með
sérstök landsréttindi.
1871 Íslensk króna verður til
með sérstakri lagasetningu.
1887 Prentarafélagið, fyrsta verka-
lýðsfélagið á Íslandi, er stofnað.
1908 Lögbirtingablaðið kemur fyrst út
á Íslandi.
1915 Táragas er í fyrsta sinn notað í hernaði þegar Þjóðverjar beita
því gegn Rússum.
1941 Björgólfur Guðmundsson fæðist.
1942 Japanar hertaka borgina Maníla á Filippseyjum.
1994 Flestir sjómenn á Íslandi fara í verkfall, sem stendur í 14
daga, þangað til Alþingi setur bráðabirgðalög sem gera verkfallið
ólöglegt.
2010 Krýsuvíkurkirkja brennur til kaldra kola eftir íkveikju.
jón gnarr, einn af höfundum og leik
stjórum áramótaskaupsins, er fæddur
2. janúar 1967 og fagnar því fimm
tugsafmæli í dag. Hann segist fyrst og
fremst ætla að hvíla sig í dag. „Ég ætla
ekki að gera neitt sérstakt,“ segir hann.
jón verður þó ekki lengi aðgerðalaus
því hann ætlar með fjölskyldu sinni til
texas þann 5. janúar. „Við ætlum að
vera þar í nokkra mánuði þannig að við
erum að pakka og undirbúa okkur. Ég
er að vinna að ákveðnu verkefni þar og
ég er að fara að kenna einn kúrs í hand
ritagerð við Háskólann í Houston,“
segir jón. Hann segist jafnframt aldrei
hafa prófa að vera kennari og því verði
spennandi að prófa það núna. Hann sé
þar af leiðandi að pakka og ganga frá
samhliða því sem hann jafnar sig eftir
spennufallið við gerð áramótaskaup
sins. jón dvaldi einnig í texas fyrir
tveimur árum þar sem hann starfaði
við skólann. Hann lætur vel af dvöl
sinni þar.
jón segist ekki vera mikið fyrir
mannamót og fjörsamkomur. „Ég er
voða leiðinlegt afmælisbarn og jóla
barn og svona. en konan mín hefur
stundum verið með eitthvað svona
óvænt fyrir mig og ég er síðasti maður
inn til að fatta það að það sé eitthvað
svoleiðis í gangi,“ segir hann.
jón segir að vinnan við áramóta
skaupið hafi verið alveg svakalega
skemmtileg. „Þetta er búið að ganga vel
og vera skemmtilegt. Og ég hef verið að
vinna með alveg fáránlega skemmti
legu fólki,“ segir jón gnarr. Hann segir
þó mjög stífa vinnutörn að baki. „Við
vorum að skjóta tólf tíma á dag í tvær
vikur og það var oft erfitt en alltaf
gaman,“ segir hann.
jón hefur verið áberandi á sjónvarps
skjánum í vetur. auk þess að eiga þátt í
áramótaskaupinu lék hann í sjónvarps
þáttunum Borgarstjórinn sem voru
sýndir á stöð 2 fyrir áramót.
jonhakon@frettabaldid.is
Jón Gnarr fer aftur til Texas
Rithöfundurinn og leikstjórinn Jón Gnarr er fimmtugur í dag. Hann ætlar að taka því
rólega á afmælisdaginn og segist ekki vera mikill veislumaður. Hann er á leiðinni með
fjölskyldu sinni til Houston í Bandaríkjunum og ætlar að vera þar í nokkra mánuði.
Jón Gnarr segist ekki vera mikið fyrir að halda upp á afmælið sitt. Það sé helst konan hans sem komi honum á óvart. Fréttablaðið/ernir
En konan mín hefur
stundum verið með
eitthvað svona óvænt fyrir mig
og ég er síðasti maðurinn til að
fatta það að það sé eitthvað
svoleiðis í gangi.
2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r28 t Í M a M ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
tímamót
0
2
-0
1
-2
0
1
7
0
3
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
6
-2
3
7
4
1
B
D
6
-2
2
3
8
1
B
D
6
-2
0
F
C
1
B
D
6
-1
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K