Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 58
10 Bone TomahawkEf þú kannt að meta gamal- dags vestra í nýjum búningi, þá er Bone Tomahawk sérsniðin fyrir þig, enda naglhart eintak þar sem örlitl- um hryllingi er vafið inn í formúl- una og má lýsa flæðinu sem hægum bruna. Kurt Russell og aðrir skot- heldir leikarar bera stemninguna uppi ásamt leikstjórn sem lekur af sjálfsöryggi. Myndin er spennandi, grípandi og kemur margsinnis á óvart. Meira svona! 9 Green RoomMjög fáar spennumyndir á þessu ári hafa fengið undirritaðan til að hanga á sætisbrúninni eins oft og þessi. Green Room er mikill rússíbani. Einfalt, hrátt og hrað- skreitt bíó en með magnaðan púls og flottan stíl. Það var hundleiðin- legt að missa Anton Yelchin á þessu ári (ásamt mörgum öðrum, auð- vitað) og sýnir þessi mynd mjög vel hvaða styrkleika hann hafði sem leikari. Patrick Stewart er einnig ógleymanlegur sem pirraður nýnas- istaforingi. Geggjaður lítill tryllir sem gefur ekkert eftir. 8 The Nice GuysLeikstjórinn og handritshöf- undurinn Shane Black er engum líkur þegar kemur að svokölluðum „buddy“-myndum. Black skrifar yfirleitt frekar manneskjulega og hversdagslega karaktera/skíthæla í ýktum, farsakenndum kringum- stæðum. Russell Crowe og Ryan Gosling eru engin undantekning þar og mynda þeir alveg meiriháttar dúó. Hnyttið handrit, snjöll fram- vinda, yndislega flæktur söguþráður og æðislegir karakterar, allt þetta púslast í stórskemmtilegan hlaupa- gang. Black sækir í spæjarasögu af gamla skólanum og bragðbætir umgjörðina með flottri „seventís“ innrömmun og tilheyrandi tón- list. Toppafþreying. Mögulega ein fyndnasta mynd ársins. 7 Hell or High WaterHér er einföld og á marga vegu fyrirsjáanleg saga en það tekst að yfirstíga þann galla með mark- vissri leikstjórn, beittu handriti og flottum leik. Hell or High Water er þrumugóður nútímavestri, strengd- ur saman úr áhugaverðum per- sónusamskiptum og skrúfar fastar og fastar því lengra sem á líður. Leikararnir eru allir skotheldir (Jeff Bridges hefur ekki muldrað svona skemmtilega í nokkur ár) og  reglu- lega er slakað á sögunni  en hún rígheldur samt spennunni allan tímann. 6 The LobsterThe Lobster var einn af hápunktum Stockfish-hátíðinnar í ár og er fúlt að hún skuli ekki hafa farið í almennar sýningar. Þetta er súr en athyglisverð saga sem gerist í „nálægri framtíð“ þar sem er illa séð að vera einhleypur. Hérna er svo hart tekið á því að fólki eru aðeins gefnir 45 dagar til að finna sér maka, annars verður því breytt í dýr (að eigin vali) sem verða send út í skóg. Eftir því sem á líður verður þetta aðeins furðulegra. Í handritinu eru samfélagskröfur til sambanda settar undir smásjána með bráðfyndnum en í senn truflandi hætti. Colin Far- rell sýnir sínar bestu hliðar sem og allir aðrir sem prýða þessa merki- lega súru en bitastæðu og 100% óútreiknanlegu mynd. 5 The WitchÞað mættu alveg vera fleiri hroll- vekjur eins og þessi. Í The Witch er lítill sem enginn áhugi sýndur  á því að láta áhorfendum bregða eða hneyksla af ástæðulausu, heldur er frásögn, þemu og andrúmsloft sett í forgrunninn af aðdáunarverðri nákvæmni. Myndin var gerð fyrir The Neon Demon er vægast sagt um- ræðuverð kvikmynd og kemur alls ekki á óvart að hún hafi fengið blendnar viðtökur. Eitthvað er samt mjög sérstakt við þetta kvikindi, eitthvað seiðandi og bítandi. Kubo and the Two Strings er í alla staði gullfalleg leirbrúðumynd; heillandi, sorgleg, stórskemmtileg og fyndin. Sing Street er án efa einn mesti glaðn- ingur ársins. Leikararnir eru æðislegir og vantar hvorki vellíðunarstraumana né gleðismitið. Bestu kvikmyndir ársins 2016 Þetta eru tíu bestu bíómyndir ársins að mati Tómasar Valgeirssonar, kvik- myndagagnrýnanda Fréttablaðsins. smápeninga en vel sést að hver ein- asti aur hefur verið nýttur til fulls. Flottar sviðsmyndir standa sér- staklega upp úr og er lítið út á kvik- myndatökuna að setja eða leikarana. Hins vegar verður að segjast að geitin Black Phillip stelur senunni. 4 Swiss Army ManAldrei hefði mér dottið það í hug að hægt væri að gera hjarta- hlýja, marglaga, ruddalega fyndna og hreinskilna vináttusögu þar sem annar aðili kjarnatvíeykisins er síprumpandi lík, meistaralega leikið af Daniel Radcliffe í þessu til- felli. Swiss Army Man er algjörlega einstök og skemmtileg lítil perla, borin einmitt uppi af Radcliffe og Paul Dano. Myndin er stútfull af skrautlegum pælingum um lífið, tilveruna og mannlegt eðli en hún er framsett sem vægast sagt flippuð, dökk dramakómedía sem þarf eigin- lega að sjá til að trúa. Óvæntasta steik ársins. 3 Sing StreetSing Street er án efa einn mesti glaðningur ársins. Hún er saga um ungmenni sem ákveða að stofna hljómsveit í Dublin á miðjum níunda áratugnum. Við tekur sjarm- erandi, skemmtileg og ómótstæði- lega jákvæð þroskasaga þar sem unglingahormónar, erfiði og lífleg tónlist spilar stóra rullu. Klisjur eru til staðar en spilað er frábærlega úr þeim. Leikararnir eru æðislegir og vantar hvorki vellíðunarstraumana né gleðismitið. Mynd sem er vel þess virði að faðma fast að sér. 2 Kubo and the Two StringsHægt og rólega hef ég áttað mig á því að snillingarnir hjá Laika- teiknimyndaverinu (Coraline, ParaNorman) eru að gera einhvers konar kraftaverk. Það er varla hægt að segja að þeir séu hræddir við full- orðinsleg þemu og villta sköpunar- gleði. Kubo and the Two Strings er í alla staði gullfalleg leirbrúðumynd (gerð með aðstoð tölvubrellna); heillandi, sorgleg, stórskemmtileg og fyndin. Þó þetta sé ekki dæmi- gerð fjölskyldumynd er svo sannar- lega eitthvað sem allir aldurs- hópar geta fundið til að tengja við; karakterarnir, heimurinn, stíllinn, handritið, boðskapurinn eða ævin- týrafílingurinn. Flott, frumleg og minnisstæð. Dásamleg. 1 The Neon DemonHér er kvikmynd sem á sér varla hliðstæðu, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. The Neon Demon er vægast sagt umræðu- verð kvikmynd og kemur alls ekki á óvart að hún hafi fengið blendnar viðtökur. Eitthvað er samt mjög sérstakt við þetta kvikindi, eitt- hvað seiðandi og bítandi. Danski prakkarinn Nicholas Winding Refn hefur útfært hér einkennilega hrollvekju sem snýr að tískuiðnað- inum, þrá og útlitsdýrkun. Fegurð og viðbjóður tvinnast hér saman í einn og hálfan tíma. Refn er allur í ýktri, djarfri og draumkenndri stíl- íseringu og spilar með myndmál og hugmyndir frekar en að binda sig við ákveðnar handritsreglur. Að þessu frátöldu er kvikmyndatakan algjört gull, hver rammi í myndinni er dökkt, lokkandi listaverk og tón- listin álíka geggjuð og efniviðurinn. Þetta verður „költari“. 2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r42 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð Lífið 0 2 -0 1 -2 0 1 7 0 3 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D 6 -2 D 5 4 1 B D 6 -2 C 1 8 1 B D 6 -2 A D C 1 B D 6 -2 9 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.