Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 17
ÚTSALA! 30% AFSLÁTTUR 50% AFSLÁTTUR 70% AFSLÁTTUR INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17. INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Svei mér þá ef ég var ekki hreinlega klökkur í gær þar sem ég var að aka einn í Öskjuhlíðinni á heimleið upp úr hádegi.Guðni forseti hafði nýlokið sínu vel samda og skörulega flutta ávarpi og ábúðarmikill kór söng þjóð- sönginn. Ég hækkaði í útvarpinu og hoppaði milli bassa og tenórs eftir hentugleikum, af gömlu kórlaus- læti, horfði á túristana þar sem þeir örkuðu hlýðnir en ögn ráðvilltir í átt að Perlunni, til þess eins væntanlega að komast að því að hún er helgidómur utan um ekki nokkurn skapaðan hlut, og var að rífa mig upp í eitt eiíííílífðar smáblóm þegar hann kom allt í einu í hugann, Magnús Magnús Magnússon, og í stað þess að góla þarna útbelgdur af ættjarðarást, fór ég að hlæja með sjálfum mér. Hinn mikli Magnús Magnús Magnússon er ein af mörgum persónum úr hinu frábæra áramótaskaupi fyrrakvöldsins sem lifa með manni áfram og á örugglega eftir að verða eitt af menningarmiðum manns á komandi tíð; maður á eftir að segja við fólk í ýmsum aðstæðum að það sé nú bara eins og Magnús Magnús Magnússon. Aðrar eftirminnilegar týpur eru matarsóunarkonan, persónu- legi trúbadorinn Helgi sem færði í tóna það sem við hugsum öll um banka- málin, persóna Bjarna Benediktssonar sem færði umbúðarlaus í orð það sem hann hugsar kannski sjálfur um banka- málin – og auðvitað Indriði. En Magnús Magnús Magnússon var alveg sérstaklega ánægjulegur í öllum sínum dugnaðarlega og þrautseiga van- mætti. Hann er svo margt. Til dæmis bara nafnið: Magnús þýðir „hinn mikli“ og má segja að þessi þrástögun á nafninu endurspegli þjóðarkríli með útblásna sjálfsmynd. Endurtekningin er líka til vitnis um gríðarlega þörf Íslendinga til að vera eins. Vera og gera það sama aftur og aftur og aftur. Við getum flest séð okkur í grátbros- legri þrá mannsins til að falla í sama mót og fjöldinn, gera það sama og allir aðrir, hugsa það sama, þar sem stærsti óttinn er ævinlega við að skera sig úr en hin æðsta skylda að vera hluti af hjörð og elta leiðtoga, jórtra sömu tuggur og öll hin, láta reka sig í þau hólf sem fjallkóngar stjórnmálaflokkanna telja sig ráða yfir – hafa horn í síðu allra sem ekki þramma með. Þessi lífseiga tilhneiging Íslendinga til að samsama sig sauðkindinni kemur fram með ýmsu móti, nú síðast fyrir jól í því að Forystufé, snilldarbók eftir Ásgeir Jónsson frá Gottorp varð ein söluhæsta bók síðasta árs – þó að mann gruni að vísu að býsna margir sjái sig frekar sem forystufé en hitt sem fylgir. Boðskapur sögunnar Magnús Magnús Magnússon er að vísu hvorugt. Hann er ekki augljós forystu- hrútur heldur þráir það eitt að falla í hjörðina og láta sál sína falla inn í hina stóru íslensku hópsál. Það sem er einmitt svo hrífandi við hann er fullkomið getuleysi hans til þess að vera eins og allir aðrir. Hann bara getur það alls ekki. Honum er fyrir- munað að klappa í takt. Hann hreinlega getur ekki verið eins og hjörðin. Er hann of mikill einstaklingur? Hefur hann sjálfur of sterkan takt í sér? Er hann forystuhrútur innst inni sem borinn er til að láta aðra fylgja sér? Eða er hann bara taktlaus og músíkfalskur Íslendingur af því tagi sem alltaf tekst að sölsa undir sig fjöldaklapp á tónleikum með því að klappa staðfastlega á fyrsta og þriðja takti en ekki öðrum og fjórða eins og músíkantarnir eru alltaf að reyna að láta íslenska salinn gera, þegar á að vera gaman á tónleikum? Eins og öll góð list gerir skilur þetta atriði áhorfandann eftir með fleiri spurningar en svarað er, en manni finnst samt eins og maður hafi orðið vitni að einhverju sem segi manni eitt- hvað um mannlegt eðli, hópsálareðli – smáþjóðareðli; og hversu erfitt það getur verið og þungbært að elta æðin sem með reglulegu millibili tröllríða þjóðlífinu. Og eins og öll góð list gerir, þá reif minningin um þetta atriði í mig á augnabliki þegar ég var að gefa mig á vald hugsunarlítilli tilfinningasemi sem beindist að landi og þjóð. Ættjarðarást er góð og holl, að unna sínum heima- högum, jörðinni sem fóstrar mann og fólk á undan manni hefur tengst með margvíslegu móti – slíkri kennd fylgir virðing og umhyggja við gróandanum. Og líka hitt að virða minningu og menningu genginna kynslóða og sjá til þess að rofni ekki samhengið í íslenskri tungu. En slíkum kenndum á alltaf að fylgja umhugsun, efasemd – og umfram allt: bros, hlátur, gleði. Ég þakka lesendum allt gamalt og gott og óska þeim velfarnaðar á nýju ári. Magnús Magnús Magnússon Það sem er einmitt svo hrífandi við hann er fullkomið getuleysi hans til þess að vera eins og allir aðrir. Hann bara getur það alls ekki. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17M Á n u d a g u R 2 . j a n ú a R 2 0 1 7 0 2 -0 1 -2 0 1 7 0 3 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D 5 -F B F 4 1 B D 5 -F A B 8 1 B D 5 -F 9 7 C 1 B D 5 -F 8 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.