Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 60
#Glamouriceland
Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar
fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku.
l Facebook l Instagram l Twitter
GLAMOUR
Bomber-jakkar og hettupeysur eru án efa stærstu trend ársins 2016. Líklega eiga
flestar ungar konur hvort tveggja inni í fataskápnum. Töffaralegur stíll sem á alltaf við.
Flauelið snéri aftur og það í stórum stíl. Hvort sem það voru kjólar, jakkar, buxur eða bolir. Því meira flauel, því betra, sérstak-
lega um hátíðarnar.
Berar axlir eru komnar aftur í tísku eftir nokkur ár í dvala. Sumarlegt sem og vetrar-
legt trend sem allir ættu að geta klæðst. Einnig er hægt að stílísera það við nánast
hvað sem er, fínt eða hversdags.
Íþróttabuxurnar eru nú orðnar leyfilegar við hvaða tilefni sem er. Þægindin skipta
öllu máli í dag og þægilegar buxur eru stór partur af því. Buxurnar verða þó að vera
í góðu sniði, helst ekki of útvíðar, en allt er þó leyfilegt.
Bjölluermarnar voru með endurkomu
á árinu en stór hluti kvenna eignaðist
skyrtu eða kjól með útvíðum ermum.
Skemmtilegt og öðruvísi trend sem
ekki allir hefðu lagt í fyrir ári.
Lausar gallabuxur náðu nýjum hæðum
í vinsældum á árinu. Nú má sjá allar
týpur á öllum aldri í þessu sniði sem er
ekkert nema jákvætt. Trendið er ágætis
tilbreyting frá þröngu gallabuxunum
sem eru taldar vera á leiðinni úr tísku
árið 2017.
Strigaskórnir hafa
verið nauðsynlegir
í fataskápnum hjá
hverjum einasta
Íslendingi seinustu
árin og 2016 var
alls engin undan-
tekning. Hvort sem
það eru gömlu góðu
Vans-skórnir og
Adidas Gazelle eða
nýrri skór eins og
Rihanna fyrir Puma
þá skiptir það ekki
máli á meðan hver
og einn finnur það
snið sem hentar.
Tískustraumarnir
á síðasta ári lágu í
margar áttir og það
var margt óvænt
sem stóð upp úr.
Það sem var þó mest
áberandi var hversu
mörg trend frá tí-
unda áratugnum
snéru aftur í allri
sinni dýrð. Miðað við
þessa þróun verður
spennandi að fylgjast
með hvað mun bæt-
ast við á nýju ári og
hvað dettur út.
Mest áberandi
trend ársins
2016
2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r44 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
0
2
-0
1
-2
0
1
7
0
3
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
6
-1
9
9
4
1
B
D
6
-1
8
5
8
1
B
D
6
-1
7
1
C
1
B
D
6
-1
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K