Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 10
Ár hvert eru þúsundir ljósmynda teknar af undrum
alheimsins. Margar þessara mynda eru hreinustu
listaverk. Aðstandendur Stjörnufræðivefsins
[stjornufraedi.is] hafa sjöunda árið í röð valið nokkrar
af bestu stjörnuljósmyndunum – nú fyrir árið 2016.
Geimurinn í
gegnum linsuna
Þyngstu stjörnur himingeimsins
R136 er stjörnuþyrping í um 170.000 ljósára fjarlægð frá Jörðinni í Tarantúluþokunni í Stóra Magellansskýinu. Í henni er
eitt stærsta safn mjög massamikilla, heitra og skærra stjarna í nágrenni okkar. Þessar stjörnur gefa að mestu leyti frá sér
útfjólublátt ljós sem berst illa í gegnum lofthjúpinn okkar, svo beita þurfti Hubble-sjónaukanum til að rannsaka þær og
vindana sem þær senda frá sér. Mynd/nASA, ESA, P CRowTHER (UnivERSiTy of SHEffiEld)
norðurpóll Satúrnusar
Hér sést norðurpóll Satúrnusar
baðaður sólarljósi. Sexhyrnda skot-
vindasvæðið í kringum pólinn sést vel
en í miðju hans er dökkleitur blettur.
dökku skýin eru lægra í lofthjúpnum
og því örlítið hlýrri en ljósleitu háskýin.
leiðangri Cassini-geimfarsins til
Satúrnusar lýkur árið 2017 en þangað
til verður útsýnið yfir þessa tignarlegu
reikistjörnu engu líkt. Mynd/nASA/JPl-
CAlTECH/SPACE SCiEnCE inSTiTUTE
Afmæliskúla Hubble-sjónaukans
Hubble, geimsjónauki nASA og ESA, fagnaði sínu 26. starfsári í geimnum með því
að senda okkur þessa glæsilegu mynd af Bóluþokunni. Bóluþokan er í um 8.000
ljósára fjarlægð frá Jörðinni í stjörnumerkinu Kassíópeiu. Í miðju Bóluþokunnar er
stjarna sem kallast SAo 20575. Hún er blár ofurrisi, milli 10-20 sinnum massa-
meiri en sólin okkar og meira en 30.000°C heit, sex sinnum heitari en sólin.
Mynd/nASA, ESA, HUBBlE HERiTAgE TEAM
gárur í tímarúminu — 100 ára gömul
spá Alberts Einstein staðfest!
Kannski ekki fallegasta mynd þessa
árs en ótvírætt sú þýðingarmesta — og
byltingarkenndasta.
fyrir 1,3 milljörðum ára runnu tvö
svarthol, 34 og 29 sinnum efnismeiri
en sólin, saman í eitt 60 sólmassa
svarthol. Á sekúndubroti umbreyttist
sem samsvarar þremur sólmössum af
efni í orku samkvæmt jöfnunni
E = mc2. Á því augnabliki losnaði meiri
orka en sem nam heildarorkuútgeislun
allra stjarna í alheiminum samanlagt.
við samruna svartholanna gáraðist
tímarúmið svo til urðu þyngdarbylgjur.
Í september 2015 bárust þyngdarbylgj-
urnar í gegnum Jörðina og hreyfðu til
tvo spegla í tveimur þyngdarbylgju-
sjónaukum í Bandaríkjunum. Hundrað
árum áður hafði Albert Einstein spáð
fyrir um tilvist þyngdarbylgna með
almennu afstæðiskenningunni.
Mynd/CAlTECH/MiT/ligo lAB
2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
0
2
-0
1
-2
0
1
7
0
3
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
6
-2
D
5
4
1
B
D
6
-2
C
1
8
1
B
D
6
-2
A
D
C
1
B
D
6
-2
9
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K