Fréttablaðið - 02.01.2017, Síða 60

Fréttablaðið - 02.01.2017, Síða 60
#Glamouriceland Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku. l Facebook l Instagram l Twitter GLAMOUR Bomber-jakkar og hettupeysur eru án efa stærstu trend ársins 2016. Líklega eiga flestar ungar konur hvort tveggja inni í fataskápnum. Töffaralegur stíll sem á alltaf við. Flauelið snéri aftur og það í stórum stíl. Hvort sem það voru kjólar, jakkar, buxur eða bolir. Því meira flauel, því betra, sérstak- lega um hátíðarnar. Berar axlir eru komnar aftur í tísku eftir nokkur ár í dvala. Sumarlegt sem og vetrar- legt trend sem allir ættu að geta klæðst. Einnig er hægt að stílísera það við nánast hvað sem er, fínt eða hversdags. Íþróttabuxurnar eru nú orðnar leyfilegar við hvaða tilefni sem er. Þægindin skipta öllu máli í dag og þægilegar buxur eru stór partur af því. Buxurnar verða þó að vera í góðu sniði, helst ekki of útvíðar, en allt er þó leyfilegt. Bjölluermarnar voru með endurkomu á árinu en stór hluti kvenna eignaðist skyrtu eða kjól með útvíðum ermum. Skemmtilegt og öðruvísi trend sem ekki allir hefðu lagt í fyrir ári. Lausar gallabuxur náðu nýjum hæðum í vinsældum á árinu. Nú má sjá allar týpur á öllum aldri í þessu sniði sem er ekkert nema jákvætt. Trendið er ágætis tilbreyting frá þröngu gallabuxunum sem eru taldar vera á leiðinni úr tísku árið 2017. Strigaskórnir hafa verið nauðsynlegir í fataskápnum hjá hverjum einasta Íslendingi seinustu árin og 2016 var alls engin undan- tekning. Hvort sem það eru gömlu góðu Vans-skórnir og Adidas Gazelle eða nýrri skór eins og Rihanna fyrir Puma þá skiptir það ekki máli á meðan hver og einn finnur það snið sem hentar. Tískustraumarnir á síðasta ári lágu í margar áttir og það var margt óvænt sem stóð upp úr. Það sem var þó mest áberandi var hversu mörg trend frá tí- unda áratugnum snéru aftur í allri sinni dýrð. Miðað við þessa þróun verður spennandi að fylgjast með hvað mun bæt- ast við á nýju ári og hvað dettur út. Mest áberandi trend ársins 2016 2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r44 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð 0 2 -0 1 -2 0 1 7 0 3 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D 6 -1 9 9 4 1 B D 6 -1 8 5 8 1 B D 6 -1 7 1 C 1 B D 6 -1 5 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.