Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 17
ÚTSALA!
30%
AFSLÁTTUR
50%
AFSLÁTTUR 70%
AFSLÁTTUR
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag Svei mér þá ef ég var ekki hreinlega klökkur í gær þar sem ég var að aka einn í Öskjuhlíðinni á heimleið upp úr hádegi.Guðni forseti hafði nýlokið
sínu vel samda og skörulega flutta
ávarpi og ábúðarmikill kór söng þjóð-
sönginn. Ég hækkaði í útvarpinu og
hoppaði milli bassa og tenórs eftir
hentugleikum, af gömlu kórlaus-
læti, horfði á túristana þar sem þeir
örkuðu hlýðnir en ögn ráðvilltir í átt
að Perlunni, til þess eins væntanlega að
komast að því að hún er helgidómur
utan um ekki nokkurn skapaðan hlut,
og var að rífa mig upp í eitt eiíííílífðar
smáblóm þegar hann kom allt í einu í
hugann, Magnús Magnús Magnússon,
og í stað þess að góla þarna útbelgdur
af ættjarðarást, fór ég að hlæja með
sjálfum mér.
Hinn mikli
Magnús Magnús Magnússon er ein af
mörgum persónum úr hinu frábæra
áramótaskaupi fyrrakvöldsins sem
lifa með manni áfram og á örugglega
eftir að verða eitt af menningarmiðum
manns á komandi tíð; maður á eftir að
segja við fólk í ýmsum aðstæðum að
það sé nú bara eins og Magnús Magnús
Magnússon. Aðrar eftirminnilegar
týpur eru matarsóunarkonan, persónu-
legi trúbadorinn Helgi sem færði í tóna
það sem við hugsum öll um banka-
málin, persóna Bjarna Benediktssonar
sem færði umbúðarlaus í orð það sem
hann hugsar kannski sjálfur um banka-
málin – og auðvitað Indriði.
En Magnús Magnús Magnússon var
alveg sérstaklega ánægjulegur í öllum
sínum dugnaðarlega og þrautseiga van-
mætti. Hann er svo margt. Til dæmis
bara nafnið: Magnús þýðir „hinn
mikli“ og má segja að þessi þrástögun
á nafninu endurspegli þjóðarkríli með
útblásna sjálfsmynd.
Endurtekningin er líka til vitnis um
gríðarlega þörf Íslendinga til að vera
eins. Vera og gera það sama aftur og
aftur og aftur.
Við getum flest séð okkur í grátbros-
legri þrá mannsins til að falla í sama
mót og fjöldinn, gera það sama og allir
aðrir, hugsa það sama, þar sem stærsti
óttinn er ævinlega við að skera sig úr en
hin æðsta skylda að vera hluti af hjörð
og elta leiðtoga, jórtra sömu tuggur
og öll hin, láta reka sig í þau hólf sem
fjallkóngar stjórnmálaflokkanna telja
sig ráða yfir – hafa horn í síðu allra sem
ekki þramma með.
Þessi lífseiga tilhneiging Íslendinga
til að samsama sig sauðkindinni kemur
fram með ýmsu móti, nú síðast fyrir
jól í því að Forystufé, snilldarbók eftir
Ásgeir Jónsson frá Gottorp varð ein
söluhæsta bók síðasta árs – þó að mann
gruni að vísu að býsna margir sjái sig
frekar sem forystufé en hitt sem fylgir.
Boðskapur sögunnar
Magnús Magnús Magnússon er að vísu
hvorugt. Hann er ekki augljós forystu-
hrútur heldur þráir það eitt að falla í
hjörðina og láta sál sína falla inn í hina
stóru íslensku hópsál.
Það sem er einmitt svo hrífandi við
hann er fullkomið getuleysi hans til þess
að vera eins og allir aðrir. Hann bara
getur það alls ekki. Honum er fyrir-
munað að klappa í takt. Hann hreinlega
getur ekki verið eins og hjörðin.
Er hann of mikill einstaklingur?
Hefur hann sjálfur of sterkan takt í sér?
Er hann forystuhrútur innst inni sem
borinn er til að láta aðra fylgja sér? Eða
er hann bara taktlaus og músíkfalskur
Íslendingur af því tagi sem alltaf tekst að
sölsa undir sig fjöldaklapp á tónleikum
með því að klappa staðfastlega á fyrsta
og þriðja takti en ekki öðrum og fjórða
eins og músíkantarnir eru alltaf að
reyna að láta íslenska salinn gera, þegar
á að vera gaman á tónleikum?
Eins og öll góð list gerir skilur þetta
atriði áhorfandann eftir með fleiri
spurningar en svarað er, en manni
finnst samt eins og maður hafi orðið
vitni að einhverju sem segi manni eitt-
hvað um mannlegt eðli, hópsálareðli
– smáþjóðareðli; og hversu erfitt það
getur verið og þungbært að elta æðin
sem með reglulegu millibili tröllríða
þjóðlífinu.
Og eins og öll góð list gerir, þá reif
minningin um þetta atriði í mig á
augnabliki þegar ég var að gefa mig á
vald hugsunarlítilli tilfinningasemi sem
beindist að landi og þjóð. Ættjarðarást
er góð og holl, að unna sínum heima-
högum, jörðinni sem fóstrar mann og
fólk á undan manni hefur tengst með
margvíslegu móti – slíkri kennd fylgir
virðing og umhyggja við gróandanum.
Og líka hitt að virða minningu og
menningu genginna kynslóða og sjá til
þess að rofni ekki samhengið í íslenskri
tungu. En slíkum kenndum á alltaf að
fylgja umhugsun, efasemd – og umfram
allt: bros, hlátur, gleði.
Ég þakka lesendum allt gamalt og gott
og óska þeim velfarnaðar á nýju ári.
Magnús Magnús Magnússon
Það sem er einmitt svo hrífandi
við hann er fullkomið getuleysi
hans til þess að vera eins og allir
aðrir. Hann bara getur það alls
ekki.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17M Á n u d a g u R 2 . j a n ú a R 2 0 1 7
0
2
-0
1
-2
0
1
7
0
3
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
5
-F
B
F
4
1
B
D
5
-F
A
B
8
1
B
D
5
-F
9
7
C
1
B
D
5
-F
8
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K