Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
Ólga Brimið ólmaðist með tilheyrandi óhljóðum við Hafnir á Reykjanesi á dögunum og skýin teiknuðu marglitt málverk á himininn þar sem birtist heldur grimmilegt andlit komandi veðurs.
RAX
Repúblikanar eru
margir áhyggjufullir.
Þeir óttast að banda-
rískir kjósendur neiti
þeim um lyklavöldin að
Hvíta húsinu enn einu
sinni. Þeir hafa ástæðu
til að hafa áhyggjur.
Fyrir hálfu ári var
gert góðlátlegt grín að
Donald Trump – kjaft-
fora auðmanninum
sem ákvað að sækjast eftir að verða
forsetaefni Repúblikanaflokksins í
nóvember næstkomandi. Fáir tóku
framboðið alvarlega og jafnvel enn
færri töldu Trump eiga nokkra
raunhæfa möguleika. Annað hefur
komið á daginn.
Með sérlega snjöllum hætti hefur
Trump nýtt sér lýðskrum og spilað á
lægstu hvatir kjósenda. Hann nýtur
mestrar hylli kjósenda í forkosn-
ingum og að óbreyttu virðist fátt
geta komið í veg fyrir að hann verði
forsetaefni repúblikana.
Fyrir utan hugsanleg lagaleg
vandræði er ekkert sem kemur í veg
fyrir að demókratinn Hillary Clin-
ton verði keppinautur Trumps um
forsetaembættið. Skoðanakannanir
eru allar á einn veg. Hillary verður
næsti forseti Bandaríkjanna og situr
að líkindum að völdum næstu átta ár
enda fá dæmi um að sitjandi forseti
nái ekki endurkjöri. Gangi það eftir
verður repúblikönum úthýst úr
Hvíta húsinu í 16 löng samfelld ár.
Þeir geta gert sér von-
ir um að endurheimta
völdin árið 2024. Þá
hafa þeir þurft að
sætta sig við demó-
krata á forsetastóli í 24
ár af síðustu 32.
Hvar eru Lincoln,
Reagan og Kemp?
Er nema von að
margir repúblikanar
spyrji: Getum við ekki
fundið annan Abraham
Lincoln? Hvar er Ro-
nald Reagan okkar tíma? Hvar er
hægri maðurinn – íhaldsmaðurinn
með hið meyra, blæðandi hjarta?
Hvar er arftaki hugsjóna Jacks
Kemp?
Ólíkt Lincoln og Reagan varð
Jack Kemp aldrei forseti. En hann
var einn áhrifamesti hugmynda-
fræðingur hægri manna í bandarísk-
um stjórnmálum á áttunda og ní-
unda áratug síðustu aldar. Kemp,
líkt Lincoln og Reagan, hafði djúp-
stæða sannfæringu fyrir frelsi ein-
staklingsins og frjálsum viðskiptum.
Jack Kemp var einarður baráttu-
maður fyrir umfangsmiklum skatta-
lækkunum. Hann var „prédikari“
framboðshliðar-kenningarinnar
(supply-side economics) enda þess
fullviss að hægt sé að auka fram-
leiðslu og verðmætasköpun með
lægri sköttum og minni ríkisaf-
skiptum.
Þegar Kemp hóf afskipti af
stjórnmálum var Richard Nixon for-
seti. Repúblikanaflokkurinn var
upptekinn af aðhaldsaðgerðum.
Hallalaus fjárlög var fyrsta og eina
boðorðið. Öllu öðru var vikið til hlið-
ar. Hallalaus fjárlög skyldi tryggja,
jafnvel með hækkun skatta og nið-
urskurði velferðarkerfisins.
Vítamínsprauta fyrir
efnahagslífið
Þessi hugmyndafræði Nixon-
áranna var eitur í beinum Jacks
Kemp. Eftir að hann var kjörinn í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings árið
1971 barðist hann af einurð fyrir
umfangsmiklum lækkunum skatta,
sem hann var sannfærður um að
yrðu líkt og vítamínsprauta fyrir
efnahagslífið. Árangurinn yrði aukin
almenn velsæl, sem leiddi til lægri
velferðarútgjalda, hækkun tekna
ríkisins vegna aukinna umsvifa og
þar með væri auðveldara að ná jafn-
vægi í ríkisfjármálum.
Ronald Reagan tileinkaði sér til-
lögur og hugmyndir sem Jack Kemp
hafði í skattamálum. Þegar Reagan
tók við forsetaembættinu í janúar
1981 glímdu Bandaríkin við efna-
hagslega stöðnun, háa verðbólgu og
vaxandi atvinnuleysi. Árangurinn
varð eins og til varð sáð. Efnahags-
lífið tók kipp, atvinnuleysi minnkaði
og tekjur ríkisins jukust.
Góði hirðirinn
Jack Kemp var maður drenglynd-
is í stjórnmálum. Hann taldi sig eiga
pólitíska andstæðinga en enga póli-
tíska óvini. Í hverjum andstæðingi
sá hann mögulega bandamenn og
var óhræddur við að hrósa demó-
krötum og eiga við þá samvinnu til
að vinna að hagsmunum almenn-
ings.
Ronald Reagan og Jack Kemp
sannfærðu samherja sína í Repú-
blikanaflokknum um að með bjart-
sýni á efnahagslega framtíð væri
hægt að ná eyrum og stuðningi kjós-
enda sem áður höfðu fylgt demó-
krötum að málum – allt frá verka-
mönnum til minnihlutahópa, frá
fátækum fjölskyldum stórborganna
til millistéttarinnar.
Kemp átti sér þann draum að rífa
fjölskyldur úr fátæktargildru stór-
borganna. Sem húsnæðismálaráð-
herra 1989-1993 lagði hann áherslu
á ódýrt húsnæði, að félagslegar
íbúðir væru undir stjórn íbúanna
sjálfra og að þeir ættu möguleika á
að eignast húsnæðið.
Kemp var „góði hirðirinn“ og var
umhugað um að hjálpa þeim sem
villast af leið eða glíma við erf-
iðleika. Hann var óþreytandi að
minna flokkssystkini sín á skyldur
þeirra að vinna að almannaheill og
huga sérstaklega að minni-
hlutahópum, láglaunafólki og þeim
sem orðið hafa undir í lífsbarátt-
unni. Hann taldi að hver og einn
hefði skyldur gagnvart náunganum.
Mannúð og samkennd
Donald Trump er andstæða alls
þess sem Jack Kemp stóð fyrir. Í
hugmyndabaráttunni spilaði Kemp
aldrei á lægstu hvatir mannlegra til-
finninga. Þvert á móti. Hann blés
bjartsýni í brjóst almennings – hann
vildi gefa einstaklingum tækifæri
með lágum sköttum og takmörk-
uðum ríkisafskiptum um leið og þeir
axla ábyrgð, ekki aðeins á eigin
gjörðum heldur ekki síður gagnvart
öðrum með því að rétta þeim hjálp-
arhönd sem á þurfa að halda.
Jack Kemp lést árið 2009. Hann
var og er holdgervingur hins
ástríðufulla íhaldsmanns þar sem
hugsjónir hægri manns eru ofnar
saman við mannúð og samkennd.
Engan skal undra þótt margir repú-
blikanar spyrji hvar arftaki hans sé
niðurkominn.
Við, sem skipum okkur í sveit ís-
lenskra hægri manna, getum sótt
ýmislegt úr Kemp-smiðjunni. Ekki
síst hvernig hægt er að standa fast á
hugsjónum, falla ekki í freistni lýð-
skrumsins og átta sig á að þeir sem
ekki eru sammála eru mótherjar en
ekki óvinir. Við gætum jafnvel fund-
ið í smiðjunni ástríðuna og enn eina
staðfestingu þess hvernig samkennd
og mannúð eru órjúfanlegur hluti af
frelsi einstaklingsins.
Eftir Óla Björn
Kárason »Kemp spilaði aldrei á
lægstu hvatir mann-
legra tilfinninga. Þvert
á móti. Hann blés bjart-
sýni í brjóst almennings
– vildi gefa einstakling-
um tækifæri.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Íhaldsmaðurinn með blæðandi hjarta