Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016 Hljómsveitin Quarashi mun koma fram á Þjóðhátíð í Eyj- um um versl- unarmannahelg- ina en hún kom seinast fram á henni fyrir tveimur árum. Í tilkynningu segir að hljómsveitin verði skipuð öllum upprunalegu meðlimum sveitarinnar. Af öðrum sem leika munu á hátíðinni má nefna Emmsjé Gauta, Agent Fresco, Úlf Úlf, Retro Stefson, GKR, Herra Hnetusmjör, Sturlu Atlas og Júníus Meyvant. Quarashi snýr aftur Sölvi Blöndal úr Quarashi » Munnhörpuleikarinn Þorleifur Gaukur Davíðs-son lék með kvartetti sínum á djasskvöldi Kex hostels í gærkvöldi við góðar undirtektir gesta. Auk Þorleifs skipa kvartettinn Hunter Burgamy á gítar, Colescott Rubin á kontrabassa og Nick Sanc- hez á trommur. Kvartettinn lék frumsamin lög í bland við vel valda standarda eftir höfunda á við Cole Porter, Bobby Timmons og Ray Brown. Kvartett Þorleifs Gauks kom fram á djasskvöldi Kex hostels Góðir Kvartett Þorleifs hélt uppi gríðarlega góðri stemningu og vakti lukku meðal áhorfenda og heyrenda, enda var spilagleðin við völd. Blásið af list Þorleifur Gaukur er afar fimur með munnhörpuna. Ánægð Gestir voru sáttir með tónleikana, hér f.v: Arnar Hannes Gestsson, Anna Ólafsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sesselja Guðjónsdóttir. Morgunblaðið/Styrmir Kári Bíó Paradís mun taka kvikmyndina Chasing Robert Barker aftur til sýninga um páskana og verður hún sýnd frá skírdegi til annars í pásk- um, 24. til 28. mars. Leikarinn Guðmundur Ingi Þor- valdsson er tilnefndur til bresku kvikmyndaverðlaunanna National Film Awards sem besti leikari í að- alhlutverki fyrir leik sinn í kvik- myndinni og stendur netkosning um þá bestu meðal tilnefndra á vef verðlaunanna, nationalfilmaw- ards.co.uk, yfir til 25. mars og því enn hægt að kjósa Guðmund. Verð- launahátíðin fer fram 31. mars í Lundúnum og verður Guðmundur viðstaddur hana. Guðmundur fer í myndinni með hlutverk David sem er sk. papa- razzo eða laumuljósmyndari. Kvöld eitt, þegar lítið hefur gengið á, fær hann ábendingu um að stjörnuleik- arinn Robert Barker sitji og snæði kvöldverð með ungri konu á fínum veitingastað. Ljósmyndirnar sem hann nær komast á forsíðu blaðsins sem hann vinnur fyrir og fréttin slær í gegn þannig að ritstjórinn Olly krefst þess að sjá meira. Upp- hefst þá eltingaleikur við Barker í von um að ná fleiri myndum – en David verður að horfast í augu við skaðann sem slúðurblöðin og óvar- leg meðhöndlun á sannleikanum hafa valdið honum í fortíðinni, eins og segir um myndina á vef kvik- myndahússins. Tilnefndur Guðmundur Ingi í kvikmyndinni Chasing Robert Barker. Hann er tilnefndur til bresku kvikmyndaverðlaunanna National Film Awards. Chasing Robert Barker sýnd á páskum 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár MY BIG FAT GREEK WEDDING 2 5, 8, 10:10 BATMAN V SUPERMAN 3D 6, 9(POWER) KUNG FU PANDA 3 3:55, 6 ENS.TAL KUNG FU PANDA 3 1:50, 3:55 ÍSL.TAL BROTHERS GRIMSBY 10 FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 8 ZOOTROPOLIS 2 ALVIN OG ÍKORNARNIR 1:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 21:00 TILBOÐ KL 1:50

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.