Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 83. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Myndir af árásarmönnum birtar
2. Horft framhjá Íslandi tvisvar
3. „Það sem við óttuðumst hefur“ …
4. Staðan í Brussel í hnotskurn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Björk Guðmundsdóttir hefur verið
kynnt sem helsti listamaður listahá-
tíðarinnar Carriageworks í Sydney í
Ástralíu í ár. Kastljósinu verður beint
að ýmsum stafrænum verkefnum
Bjarkar í þriggja vikna dagskrá Vivid
Sydney dagana 27. maí til 18. júní og
3. júní mætir Björk á staðinn og þeyt-
ir skífum í sérstakri dagskrá.
Ljósmynd/Kevin Mazur
Björk skærasta
stjarnan í Sydney
Tónleikar á veg-
um Jazzklúbbsins
Múlans fara fram í
kvöld kl. 21 á
Björtuloftum í
Hörpu. Á þeim
kemur fram kvart-
ettinn Q56 og
leikur perlur Cole
Porter. Meðlimir
kvartettsins eru Steinar Sigurðarson
á saxófón, gítarleikarinn Andrés Þór
Gunnlaugsson, Þorgrímur Jónsson á
bassa og Kári I. Árnason á trommur.
Cole Porter endur-
borinn á Múlanum
Tónlistarkonan Kristín Anna Val-
týsdóttir heldur tónleika í kvöld kl.
21 í Mengi við Óðinsgötu. Hún mun
leika og syngja eigin tón-
list. Kristín hefur
sinnt tónlist á
ýmsa vegu og þá
m.a. undir lista-
mannsnafninu
Kría Brekk-
an og sem
liðsmaður
múm.
Kristín Anna Valtýs-
dóttir leikur í Mengi
Á fimmtudag Austan 8-13 m/s, en snýst í suðvestan og vestan
8-15 á sunnanverðu landinu. Rigning eða slydda sunnantil.
Á föstudag Norðaustan- og austanátt, víða 10-15 m/s. Rigning
eða slydda sunnan heiða um eða eftir hádegi. Él norðantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 3-8 og skúrir eða slydduél, en úr-
komulítið fyrir norðan og bjart með köflum. Hiti 1 til 8 stig.
VEÐUR
Í fyrsta skipti í 23 ár eða
síðan 1993 er hið sögu-
fræga kvennalið Keflavíkur
ekki með í úrslitakeppninni
á Íslandsmóti kvenna í
körfuknattleik. Í gærkvöldi
tapaði Keflavík á heimavelli
í hreinum úrslitaleik gegn
Grindavík um sæti í úrslita-
keppninni 77:84. Grindavík
náði fjórða sætinu og mætir
Haukum sem urðu deilda-
meistarar. Snæfell mætir
Val. »3
Grindavík náði
fjórða sætinu
Katrín Ómarsdóttir missir væntan-
lega af fyrsta leik tímabilsins í ensku
atvinnudeildinni í knattspyrnu, gegn
Chelsea á morgun, vegna meiðslanna
sem hún varð fyrir gegn Dönum í Al-
garve-bikarnum. Hún leikur nú með
Doncaster í deildinni, eftir að hafa
spilað með Liverpool í
þrjú ár. Katrín er hins
vegar fullviss um að
verða leikfær fyrir
Evrópuleik Íslands
gegn Hvíta-
Rússlandi 12.
apríl. »4
Katrín missir af byrjun
ensku deildarinnar
Breytingar eru í farvatninu varðandi
skipulag á Evrópukeppnum félags-
liða í körfubolta. Evrópska körfu-
knattleikssambandið, FIBA Europe,
ákvað eftir fundahöld í Frakklandi að
setja á fót Champions League. Lið
frá þrjátíu aðildarlöndum komast í
keppnina næsta haust. Næstu Ís-
landsmeistarar gætu mögulega kom-
ist í keppnina í haust. »1
Champions League
verður til í körfunni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Miklar endurbætur standa nú yfir í
byggingunum á Garðskaga með það
að markmiði að gera vitasvæðið að-
gengilegra fyrir gesti og gangandi.
Stofnað hefur verið félagið Garðskagi
ehf. um reksturinn og er Jóhann Ís-
berg framkvæmdastjóri.
Gamli Garðskagavitinn var reistur
1897 í umsjón dönsku vitamálastofn-
unarinnar og hannaður af starfs-
mönnum hennar. Hann er 11,4 m á
hæð. Axel Sveinsson verkfræðingur
hannaði nýja Garðskagavitann, sem
var byggður árið 1944 og tók þá við af
þeim eldri. Hann er 28,6 m á hæð með
ljóshúsi. Vitavarðarhús var byggt
1933 eftir teikningum Einars Er-
lendssonar arkitekts og hafði vita-
vörður þar búsetu til 1979. Byggða-
safnið á Garðskaga er starfrækt í
útihúsunum sem tilheyrðu búi vita-
varðarins. Þar eru til dæmis hlutir
sem áður tilheyrðu sveitastörfum,
heimilishaldi og daglegu lífi. Byggða-
safnið er þrískipt. Í einum hlutanum
eru meðal annars um 60 vélar, sem
Guðni Ingimundarson frá Garð-
stöðum gerði upp og eru þær allar
gangfærar.
Veitingastaður á ný
Fyrir framan safnið er báturinn
Hólmsteinn GK. Í bátnum er aðstaða
fyrir minni hópa. „Svæðið hefur verið
óbreytt lengi og einkum vegna stöð-
ugt fleiri ferðamanna var ákveðið að
ráðast í breytingar samkvæmt stefnu-
mótun sveitarfélagsins sem samþykkt
var vorið 2015,“ segir Jóhann.
Enginn veitingastaður er í Garði
fyrir utan bensínsjoppu. Jóhann segir
að þegar norðurljósatíminn sé komi
fjölmargar rútur fullar af ferðamönn-
um í Garðinn. Með það í huga hafi ver-
ið ákveðið að opna aftur veitingastað á
annarri hæð í byggðasafninu, setja
upp sérstakt norðurljósasafn í safninu
og sýna norðurljósakvikmyndir í sér-
stöku sýningarrými. Í nýja vitanum
er stefnan að að vera með þrjár sýn-
ingar opnar samtímis, meðal annars
sýningu um hvali með teikningum eft-
ir Jón Baldur Hlíðberg og sýningu um
vita á Íslandi, sögu þeirra í máli og
myndum. „Gamli vitinn er næstelsti
viti landsins á eftir gamla vitanum á
Dalatanga og honum þarf að sýna
virðingu og gera hann upp,“ segir Jó-
hann.
Eldri borgarar hafa fengið aðstöðu
til þess að selja handverk í vitavarða-
húsinu og þeim verður gert það
mögulegt í safninu sjálfu. Vitarnir
hafa að mestu verið lokaðir, en með
breytingunni verða þeir opnir al-
menningi. Jóhann segir að í stefnu-
mótuninni sé gert ráð fyrir að öll þjón-
usta verði aukin og bætt íbúunum til
hagsbóta. „Allar þessar breytingar
taka sinn tíma en stefnan er að rekst-
urinn verði kominn á fullt fyrir sum-
arið,“ segir hann.
Menningarreitur á Garðskaga
Unnið að breyt-
ingum samkvæmt
nýrri stefnumótun
Morgunblaðið/RAX
Garðskagi Jóhann Ísberg og Sigurður Þorsteinsson vinna með öðrum að endurbótum á svæðinu.
Endurbætur Jóhann og Sigurður líta björtum augum til framtíðar í nýja
Garðskagavitanum, þar sem þeir ætla að halda sýningar.