Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 11
Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016 „Hann var stór, þó að ég hafi fengið stærri þorska,“ segir Jón Ingvar Hilmarsson á bátnum Tjálfanum en hann dró 41 punds lax upp úr sjó í Berufirði í vikunni. Það kom Jóni á óvart að sjá lax í netinu enda vanari að sjá þorsk koma upp. „Ég hef aldrei áður fengið lax. Laxinn er við yfirborðið og hann hefur bara flækst í netinu. Allavega var hann það fjörugur að ég var í vandræðum með hann þegar ég náði honum um borð og þurfti að leggjast á hann til að ná honum,“ segir hann. Jón ætlar að nýta fiskinn til mat- ar yfir páskana. „Hann ætti að duga í einhverjar máltíðir. Ég er reyndar ekkert mikið fyrir lax en hann verður vonandi góður,“ segir hann fullur tilhlökkunar. Sýni til Veiðimálastofnunar Guðni Guðbergsson, fiskifræð- ingur hjá Veiðimálastofnun, segir að sýnaglas og hreisturspoki hafi verið sendur austur til að fá sýni. Hafi laxinn ekki verið slægður von- ast hann til að fá magann líka til að sjá hvað laxinn hefur verið að éta. Sýnin verði greind innan skamms en einn fiskur er ekki greindur sér heldur eru margir fiskar greindir í einu til að halda kostnaði niðri. „Það hefur gerst öðru hvoru að lax hafi veiðst í sjó við Ísland, meðal annars á þessum árstíma. Tækninni hefur fleygt fram og nú er komin sú tækni að hægt er að rekja fiska í sumum tilfellum til heimaár. Það er búið að kortleggja laxinn mjög nákvæmlega.“ benedikt@mbl.is Dró 41 punds lax úr sjó í Berufirði Ferlíkið Jón Ingvar með laxinn góða sem hann fékk í þorskanet í Berufirði. Hann var 122 sentímetrar.  „Hann ætti að duga í einhverjar máltíðir“ Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn. Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl með Thealoz dropana. Elín Björk Ragnarsdóttir Þurrkur í augum? Thealozaugndropar Fæst í öllum helstu apótekum. Vertu upplýstur! blattafram.is BREGSTU VIÐ, EF ÞÚ SÉRÐ EÐA VEIST AF OFBELDI, EÐA FINNST ÞÉR ÞÆGILEGRA AÐ LÍTA UNDAN? Kíktu á úrvalið í vefversluninni á michelsen.is/fermingar Laugavegi 15 og Kringlunni Sími 511 1900 - www.michelsen.is Fossil Riley 30.800 kr. Casio Retro 12.000 kr. Daniel Wellington Sheffield Frá 23.500 kr. Skagen Ditte 36.100 kr. Fallegar fermingar- gjafir ASA HRINGUR 9.700 kr. ASA LOKKAR 9.800 kr. ASA HÁLSMEN 9.700 kr. – fyrir stelpur Guðrún Margrét Pálsdóttir, hjúkr- unarfræðingur og einn stofnenda ABC-hjálparstarfs, tilkynnti í gær framboð sitt til forseta. Á frétta- mannafundi sem haldinn var á Grand Hotel í gær sagðist Guðrún hafa „borað fingrum í Biblíuna“, þegar hún var að velta fyrir sér framboðinu og að upp hafi komið hvert versið á fætur öðru sem stað- festi fyrir henni og sannfærði um að hún ætti að sækjast eftir embættinu. Guðrún segir að hún sjái að þjóðin geti látið gott af sér leiða með því að standa saman og sjálf hafi hún brennandi áhuga á velferð þjóðar- innar. „Ég trúi því að þetta sé eitt- hvað sem við getum gert, að við höld- um gullnu regluna í heiðri, að við stöndum saman, hugum að tungu okkar, menningu, trú og gildum og verðum sterk saman sem þjóð. Við göngum þessa hamingjuleið og vöx- um í trú von og kærleika. Þess vegna býð ég mig fram sem forseta.“ Hlakka til þessarar vegferðar Áður en Guðrún lauk ræðu sinni benti hún einmitt sérstaklega á þá hugmynd sína að koma á árlegri góð- gerðarviku þjóðarinnar. „Ég hlakka til þessarar vegferðar og vænti þess að hún endi á Bessastöðum. Guð blessi ykkur,“ sagði Guðrún. Morgunblaðið/Eggert Forsetaframbjóðandi Guðrún Margrét Pálsdóttir tilkynnir framboð sitt. Guðrún í framboð  Segist hafa borað fingrum í Biblíuna þegar hún íhugaði forsetaframboð Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma að kaupa Digranesveg eitt fyrir stjórnsýslu Kópavogs á fundi sínum í gær. Kaupverð er 585 millj- ónir króna. Bæjarstjórn samþykkti við sama tækifæri að innrétta Hressingarhælið við Kópavogstún fyrir fundi bæjarstjórnar og mót- tökur. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu sem Kópavogsbær sendi frá sér í gær. Þar segir að fram hafi komið í máli bæjarfulltrúa á fundi bæjar- stjórnar mikil ánægja með niður- stöðu í málefnum húsnæðis stjórn- sýslunnar. Bent var á að hún væri hagkvæm fjárhagslega, aðgengi að húsinu væri gott og nýtt húsnæði ætti eftir að vera til mikilla bóta fyrir starfsfólk. Ánægður með niðurstöðuna „Ég er afar ánægður með þessa niðurstöðu. Húsið hentar stjórn- sýslunni vel, staðsetningin er góð og húsið eitt af kennileitum bæj- arins. Þá kostar það minna en áætl- aðar viðgerðir á bæjarskrifstofun- um og við losnum við áhættuna sem fylgir því að gera upp gömul hús. Slíkar viðgerðir fara nær undan- tekningarlaust fram úr áætlun,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæj- arstjóri Kópavogs, í fréttatilkynn- ingunni. Selja húsnæði við Fannborg Stjórnsýsla Kópavogs mun flytja smám saman í húsið, hluti þess losnar í maí og þá mun hluti fjár- mála- og stjórnsýslusviðs flytja í húsið. Fyrirhugað er að selja nú- verandi húsnæði stjórnsýslunnar við Fannborg 2 og 4 en nýta áfram Fannborg 6 fyrir hluta hennar. Húsnæði fyrir 585 milljónir  Stjórnsýsla Kópavogsbæjar mun flytja sig um set

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.