Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016 AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kristján H. Johannessen Skúli Halldórsson Fjölmargir eru látnir og enn fleiri særðir eftir sprengjutilræði á tveim- ur stöðum í Brussel, höfuðborg Belg- íu, í gærmorgun. Tvær sprengjur sprungu með skömmu millibili í brottfarasal á alþjóðaflugvellinum Zaventem um klukkan 8 að staðar- tíma. Um klukkustund síðar, á há- annatíma í borginni, kvað svo þriðja sprengingin við í Maalbeek-jarðlest- arstöðinni skammt frá skrifstofum Evrópusambandsins í miðborg Brussel. Ríki íslams lýsti í gær ábyrgð sinni á árásunum. Var í gærkvöldi talið að talsvert á fjórða tug manna hefðu látið lífið í ódæðinu og um 200 til viðbótar særst. Þriggja daga þjóð- arsorg var lýst yfir í gær vegna at- burðanna. „Þetta er dagur sorgar, svartur dagur,“ sagði Charles Michel, for- sætisráðherra Belgíu, er hann ávarpaði þjóð sína í kjölfar hryðju- verkanna. „Tvær árásir voru gerðar í morgun á Zaventem-flugvelli og Maalbeek-jarðlestarstöðinni, óvænt- ar, ofsafengnar og hugleysislegar árásir.“ Vígamenn í sprengjuvestum „Karlmaður hrópaði fáein orð á arabísku og svo heyrði ég mikla sprengingu“. Þannig lýsir öryggis- vörður á flugvellinum árásinni þar í samtali við fréttaveitu AFP. Aðrir sjónarvottar í flugstöðinni segja árásarmann hafa öskrað á viðstadda orðin „Allahu Akbar“ eða „Guð er al- máttugur“. Á blaðamannafundi sem haldinn var skömmu eftir tilræðin kom fram í máli saksóknara að víga- mennirnir hafi að „öllum líkindum verið sjálfsvígssprengjumenn“ og því m.a. búnir sprengjuvestum. Þá greina fréttastofur í Belgíu frá því að skothvellir hafi einnig heyrst skömmu áður en sprengingarnar kváðu við, en AFP segir árásarriffil, af gerðinni AK-47, hafa fundist við lík árásarmanns auk þess sem ósprungið sprengjuvesti fannst einn- ig á flugvellinum. Var það gert óvirkt af sprengjusérfræðingum hersins. AP-fréttastofan segir að önnur sprengjan hafi sprungið við af- greiðsluborð þar sem fólk innritar farangur í yfirvigt en hin er sögð hafa sprungið nærri kaffihúsi í flug- stöðvarbyggingunni. Segist AP jafnframt hafa heimild- ir fyrir því að naglar hafi verið í ann- arri sprengjunni, en það er gert til þess að hámarka líkur á manntjóni. Lýsingar á áverkum fólks eru slá- andi og lágu fjölmargir slasaðir, sumir hverjir lífshættulega, á gólfi flugstöðvarinnar eftir tilræðin. Var aðstæðum þar líkt við vígvöll. „Ég sá mjög marga sem höfðu misst útlimi. Einn maður missti báða fótleggi og það lá þarna lögreglumaður sem var mjög illa særður á fæti,“ hefur AFP eftir áðurnefndum öryggisverði. Flugstöðvarbyggingin sjálf ber þess greinilega merki að sprengjur sprungu þar innandyra, en rúður eru þar flestar brotnar og hrunið hefur á sumum stöðum úr lofti hússins. Þá mátti í kjölfar sprengjutilræðanna sjá þykkan og dökkan reyk leggja frá flugstöðinni. Höggbylgja og brennisteinslykt Um klukkustund eftir voðaverkin í flugstöðinni sprakk þriðja sprengj- an á Maalbeek-jarðlestarstöðinni í hjarta Brussel með þeim afleiðing- um að tugir létust. Leifur Arnkell Skarphéðinsson, lögfræðingur hjá fjármála- og efna- hagsráðuneytinu, var þá staddur í fremsta vagni jarðlestar sem var rétt ókomin á Maalbeek-stöðina, en hann var á leið til fundar hjá fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins og ætlaði út á næstu lestarstöð á eft- ir Maalbeek-stöðinni. „Það skellur þessi höggbylgja á lestinni. Við finnum strax megna brennisteinslykt og mikill reykur kemur inn í lestina,“ segir Leifur Arnkell í samtali við Morgunblaðið, en framendi lestar hans átti þá að- eins tuttugu til þrjátíu sekúndur eft- ir fram að brautarpalli Maalbeek. Leifur Arnkell segir sprengjuna að líkindum hafa sprungið niðri í stöðinni, nálægt teinunum. Högg- bylgjan hafi verið svo öflug. Um borð í lestinni greip skelfing fljótt um sig. „Fólk hélt kannski að það væri kviknað í. Það áttuðu sig að minnsta kosti allir á því að það hefði orðið sprenging fyrir framan lestina. [...] Þegar reykurinn kemur inn í vagn- inn og lyktin sömuleiðis þá grípur um sig mikil skelfing og margir fara hreinlega að gráta,“ segir hann. Farþegar lestarinnar voru fastir í vagninum í um 15 til 20 mínútur eftir sprenginguna en þá komu vopnaðir hermenn og leiddu þá út úr lestinni að aftanverðu. „Við göngum svo alla leið á tein- unum að Arts-Loi-stöðinni. Það var lykt og reykur í göngunum en góð lýsing svo við sáum hvert við vorum að fara. Þegar við komum loks á Art- Loi þá eru þar lögreglumenn í hrönnum með byssur sem leiða okk- ur upp og út þar. Það er allt í reyk þar líka svo sprengingin hefur verið stór og öflug,“ segir hann. „Við verðum að standa saman“ Fáeinum klukkustundum eftir til- ræðin sendi Ríki íslams frá sér til- kynningu þar sem samtökin lýstu yf- ir ábyrgð sinni á ódæðunum. „Vígamenn Ríkis íslams stóðu fyr- ir röð sprenginga með sprengjuvest- um og tækjabúnaði. Skotmörkin voru flugvöllur og jarðlestarstöð í Brussel, miðborg Belgíu – ríkis sem tekur þátt í fjölþjóðlegu bandalagi gegn Ríki íslams,“ segir í tilkynn- ingu vígasamtakanna. Mörg ríki Evrópu auk Bandaríkj- anna hækkuðu í gær viðbúnaðarstig vegna hugsanlegra hryðjuverka og voru þungvopnaðir lögreglumenn víða áberandi í helstu stórborgum. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði hryðjuverkamenn aldrei koma til með að vinna. „Þetta eru erfiðir tímar og ógeðfelldir hryðjuverkamenn. En við verðum að standa saman og gera allt sem við getum til að stöðva þá og tryggja að jafnvel þótt þeir ráðist á lífshætti okkar og þau gildi sem við stöndum fyrir, þá munu þeir aldrei sigra. [...] Þetta voru árásir á Belgíu en hefðu allt eins getað verið gegn Bretlandi.“ Francois Hollande Frakklands- forseti var einnig ómyrkur í máli. „Með árásinni á Brussel er búið að ráðast á alla Evrópu,“ sagði hann. Tugir látnir eftir árás Ríkis íslams  Vígamenn stóðu fyrir sprengjutilræðum á flugvelli og lest- arstöð í hjarta Belgíu  Hundruð eru særðir og tugir látnir AFP Óvissa Þungvopnaðir lögreglumenn tryggðu m.a. öryggi á fjölmörgum lestarstöðvum eftir tilræðin og leituðu að vopnum á sumum sem þar voru. AFP Grimmd Mynd úr öryggismyndavél sýnir tilræðismennina í flugstöðinni. Hryðjuverk í Brussel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.