Víkurfréttir - 03.03.1994, Blaðsíða 1
Stœrsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum
F R E T T I R
9. tbl./l 5. árg. Fimmtudagur 3/3 - 1994
3$
LIÐVEISL
■ mm mmm mmm mmm mmh mm mmm m
Námsmannamón'
SPARISJÖÐANN..
LftNDSBC
SftFNOHú
hverfis
101 RE
Klemmdist milli
skips og bryggju
Vinnuslys varð við löndun
úr Hábergi GK í Grindavík-
urhöfn í síðustu viku. Sjó-
maður klemmdi hönd á milli
skips og bryggju þegar hann
var að teygja sig eftir band-
stroffu. Meiðsl voru þó ekki
alvarleg.
Rúðubrjótar á ferd
Rúður voru brotnar á tveim-
ur stöðum í Grindavtk um
helgina. Þrjár rúður voru
brotnar í söluturni að Víkur-
braut 62 og einnig var rúða
brotin í bensínstöð Olís.
Lögreglan í Grindavík aug-
lýsir eftir upplýsingum sem
upplýst geta skemmdar-
verkin.
• Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur gefið út
skýrslu um Eldhamars-slysið árið 1991:
Endurskoða þarf
reglur um flotbúninga
Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur sent frá sér skýrslur upp á um 300 blað-
síður vegna sjóslysa á árinu I99l. Meðal slysa sem nefndin tekur fyrir er
þegar Eldhamar GK-13 fórst við Hópsnes með fímm mönnum í nóvember
1991. Einum manni varbjargað.
I nefndaráliti sjóslysanefndar segir að orsök strandsins hafi verið óná-
kvæmni í staðarákvörðun og stýrimann hafi skort fullnægjandi þjálfun í
að staðsetja skipið. Þá telur nefndin það alvarlegan hönnunargalla á skip-
inu að ekki skuli liafa verið hægt að opna glugga á framþili stýrishúss.
Rannsóknarnefnd sjóslysa telur að endúskoða þurfi reglur um flotbún-
inga með hliðsjón af þeim niðurstöðutn rannsókna sem fyrir liggja eftir
þetta slys. Nefndin átelur vinnubrögð Siglingamálastofnunar ríkisins við
eftirlit með úrbótum vegna athugasemda við búnað skipsins og útgáfu á
haffærnisskírteini fyrir skipið. Þá telur nefndin að bæta þurft fjarskipti
björgunaraðila s.s. SVFI, Landhelgisgæslu og lögrelgu. Eina fjarskipta-
tækið sem var virkt í Eldhamri GK við strandið var farsíminn. - í næsta
blaði verða skoðuð ýmis mál úr skýrslu sjóslysanefndar er tengjast Suður-
nesjum.
♦ Eldlitimnr C.K-13 á strnndstað við Grindnvík 23. nóv-
emher 1991. Skipið strnndnði kvöldið áðtir og með því
fómst fimm menn. Mynd-.hbb
Unglingamir t Fjörhcimnm í Njarðvík breyttu tít af vananum unt
dagittn og efndu til sundlaugardiskóteks í Stindlaug Njarðvíkttr.
Þar vnr góð stemmning eitts og sést á þcssari ntynd Hilmnrs Brnga.
- Sjá nánar unglingasíðiina bls. S.
• Grindavík:
Innbrot í Háberg CK
Frystihús F&L í Þórkötlustaðarhverfi:
ALVARLEGT
VINNUSL YS
Alvarlegt vinnuslys varð utan
við frystihús F&L í Þórkötlu-
staðarhverfi í Grindavík á
föstudag. Rúmlega sextugur
maður klemmdist á milli lyft-
ara og gáms og hlaut alvarlega
áverka. Unnið var við viðgerð
á lyftaranum sem skyndilega
hrökk í gang og rann á mann-
inn.
Hann var fluttur ineð hraði á
sjúkrahús og er m.a. mjaðma-
grindarbrotinn auk þess að
hafa hlotið aðra áverka.
Brotist var inn í Háberg GK í
Grindavíkurhöfn aðfaranótt sl.
fimmtudags. Skipið lá bundið við
Eyjabakka. Þjófurinn eða þjófarnir
þurftu að gangsetja krana til að kom-
ast inn í skipið og lyfta þungri lestar-
lúgu.
Ur vistarverum skipsins var stolið
myndbandstæki, 24 myndbandsspól-
um og geisladiskum. Ekki er vitað
hverjir þarna voru að verki, en lög-
reglan biður alla sem einhverjar upp-
lýsingar geta gefið um mannaferðir á
Eyjabakka umrædda nótt að hafa
samband.
Héraðsdórhur Reykjaness:
Stúlku dæmdar
bætur vegna
föðurmissis í
eldsvoða
-stúlkan ófædd þegarfaðirinn lést í
eldsvoða um borð í Gunnjóni GK
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt útgerð Gunnjóns
GK 506 til að greiða 10 ára stúlku 1,2 milljónir með
vöxtum vegna missis framfæranda. föðurs, og röskun á
stöðu og högum hennar eftir andlát hans. Faðir
stúlkunnar lést í eldsvoða um borð í Gunnjóni GK í
júní 1983, en skipið var þá statt um 60 sjómílur norður
af Horni. Þrír menn fórust í brunanum. Stúlkan var ó-
fædd þegar slysið átti sér stað, en hún fæddist átta
niánuðum eftir að faðir hennar, sem þá var 17 ára, fórst
í brunanum.
Móðirin stefndi bæði Samábyrgð íslands á fiskiskipum
og útgerð Gunnjóns til að greiða þeim mæðgum bætur
vegna missis hins væntanlega framfæranda. Dómurinn
sýknaði fyrrnefnda aðilann en útgerðin var hins vegar
dærnd til að greiða stúlkunni 1,2 milljónir króna með
vöxtum frá árinu 1989 vegna missis hins væntanlega
framfæranda. Dómurinn féllst hins vegar ekki á kröfu
móðurinnar um bætur til hannar vegna missis hennar á
framfæranda og röskunar á stöðu og högum vegna
andláts piltsins.
Mæðgurnar höfðu fengið gjafsóknarleyfi frá dóms-
málaráðherra vegna málsins. dómurinn dæmdi útgerð-
ina til að greiða 270 þúsund í málskostnað til ríkissjóðs
en þaðan rennur upphæðin til stúlkunnar sem vann
málið.