Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.03.1994, Page 16

Víkurfréttir - 03.03.1994, Page 16
16 3. MARS 1993 VÍIOMtFRÉTTIR "Mjúku" málin mikilvæg Undirritaður gefur kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, sem fram fer n.k laugardag í Fram- sóknarhúsinu í Keflavík. Þessi grein er skrifuð til að kynna helstu bar- áttumál mín fyrir íbúum Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna. Ekki er nokk- ur leið fyrir mig að gera öllum þeim málum skil, sem ég hef áhuga á, í lítilli grein sem þessari. Eg lít fyrst og fremst á mig sem fulltrúa fólks sem er með börn á leikskóla- og grunnskólaaldri. Málefni þessa hóps eru oft skilgreind sem "mjúku" mál- in eða "gæluverkefni" af þeim, sem ekki eru sjálfir að takast á við þau fjölmörgu mál sem fylgja þvt' að vera með börn á grunnskólaaldri. Eg held að þessi hópur þurfi svo sann- arlega að eiga fulltrúa í nýrri sveit- arstjórn. Atvinnumál Ekki þarf að fara mörgum orðum um atvinnuástandið á Suðurnesjum í dag. Atvinnuleysið er mikið þó eitthvað kunni að vera rofa til. Eg tel að með markvissu átaki megi snúa vörn í sókn. Hér þarf að koma á fót nýjum framleiðslufyrirtækjum og skapa ný atvinnutækifæri. Við eig- um að nýta okkur nálægðina við flugvöllinn miklu meira en gert er í dag. Ég tel einnig að miklir mögu- leikar felist í ferðaþjónustu. Þar komum við aftur að nálægðinni við flugvöllinn. Því ekki að reyna að fá eitthvað af þeim tugum eða hundruðum þúsunda farþega, sem fara hér í gegn árlega, til að staldra við hér á Suðurnesjum. Með mark- vissu uppbyggingarstarfi er ég sannfærður um að skapa megi fjölda nýrra atvinnutækifæra í ferða- þjónustu sem síðan leiða af sér enn fleiri störf í öðrum þjónustugrein- um. Þessi orð hafa heyrst áður en nú þarf að láta verkin tala. Skólamál Bygging nýs grunnskóla í Heið- arbyggð er mjög aðkallandi. Ég tel reyndar að það mál þoli enga bið. Eitthvað hefur verið unnið að því máli á þessu kjörtímabili en nú þarf að hrinda málinu í framkvæmd. Við eigum að stefna að því að allir grunnskólar í hinu nýja sveitarfélagi verði einsetnir. Það þýðir fleiri skólabyggingar. Gera þarf áætlun um byggingar grunnskóla í hinum ýmsu hverfum með þetta að leið- arljósi. Einnig tel ég brýnt að leysa hús- næðisvanda tónlistarskólanna. Það mál stendur mér þó of nærri til að ég geti tjáð mig mikið um það á þess- um vetvangi. Menningarmálin Hér á Suðurnesjum er öflugt menningarlíf. Menningarlífið hefur ekki verið, og á ekki að vera, á hönduni sveitarfélaganna. Þau geta liins vegar stutt við bakið á þvi með Kjartan Már Kjartansson því að skapa aðstöðu svo ein- staklingar og hópar geti aðhafst eitt- hvað í þessum málum. Aðstöðuleysi áhugaleikfélagana. byggðarsafnsins og þeirra sem standa fyrir tón- leikahaldi er tilfinnanlegt. Gera þarf áætlun um varanlegar úrlausnir í náinni framtíð. StefnumóTun í íþrótta-, uppeldis- og œsku- lýðsmálum. Engin heildarstefna er til í í- þrótta-, uppeldis- og æskulýðs- málum í sveitarfélaginu. Hér vinna aðilar hver í sínu horni og óþarfa árekstrar koma oft upp. Miklum fjármunum er varið í þessa mála- flokka. Með mótun heildarstefnu í þessum málum má nýta tjármuni betur, unga fólkinu og skattborg- urum til heilla. Lokaorð Nái ég kjöri í eitt af efstu sæt- unum mun ég leggja mig allan fram til að vinna að málefnum hins nýja bæjarfélags. Kjartan Már Kjartansson Frcyjuvöllum 17 Keflávík 14717 • Frá afhendingu endurlífgunarbúnaðarins. F.v. Sigurður Jónsson, Jón Hjálmarsson, Guðniundur T. Olafsson, Sigurjón Kristinsson og Sigurður Ingvarsson. Mynd: hbb. Kiwanismenn gáfu endurlífgunarbúnað í íþróttamiðstöðina í Garði: ÖRUGGARI EN MUNN VIÐ MUNN- ADFERDIN! Kiwanisklóbburinn Hof í Garði afhenti Iþróttamiðstöðinni t' Garði endurlífgunarbúnað að gjöf sl. laugardag. Þar með efndi klóbburinn loforð sem gefið var við opnun sundlaugarinnar og íþróttahússins 16. október í haust. Bónaðurinn er ætlaður til súr- efnisgjafar og er nauðsynlegur í öllum sundlaugum og í- þróttahúsum. Um er að ræða þrjár stærðir af gervilungum og tilheyrandi grímum. Búnaður þessi er notaður í staðinn fyrir „munn við munn“-aðferðina, en þessi búnaður reynist öruggari en gamla aðferðin. Endurlt'fg- unarbúnaðurinn kostaði um 50.000 krónur, en kiwanismenn í Garði afla fjár til starfsemi sinnar með flugeldasölu. Það var Sigurður Ingvarsson sem tók við gjöfinni fyrir hönd húsnefndar. Sigurður er Kiwan- ismaður eins og þeir Jón Hjálm- arsson, Sigurjón Kristinsson, Guðmundur T. Olafsson og Sig- urður Jónsson sem afhentu gjöf- Teiknaðu mig! Aðalfundur Kvenfélags Keflavíkur verður haldinn mánudaginn 7. mars í Kirkjulundi kl. 20:30. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Bingó spilað. Stjórnin í tilefni af ári fjölskyldunnar efnir íslandsbanki Keflavík til teiknimyndasamkeiipni um Georg og félaga. Ge«rg, siiariliaukur Islanisbanka, hjál|»ar bérnunum ai spara °C fianga vel um umhverfii. •II bérn á alérinum 4ra til 12 ára geta tekié éátt í samkejpninni og eru fjölskyldur hvattar til að setjast niöur og hjálpa jieim yngstu aé teikna myné af Georg. Skilafrestur er til 2f. mars veitt veréa verélaun fyrir éestu (irjár mynéirnar hjá éörnum 4ra til 6 ára, 7 til 9 ára o£ 10 til 12 ára. Teikningum skal skilaé til íslanéséanka Keflavík, Hafnargétu Si. ISLANDSBANKI Keflavík íbúar í Keflavík, Njarðvík og Höfnum KJÓSUM ÞORSTEIN í 3. SÆTI í prófkjöri Framsóknar- manna n.k. laugar- dag 5. mars 1994. Takið þátt í prófkjörinu og hafið áhrif á uppröðun listans. Stuðningsmenn

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.