Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Söluaðilar:
Meba - Rhodium GÞ - skartgripir & úr
Georg V. Hannah, Kef. Halldór Ólafsson, Ak.
Meba Úr & Gull, Hafnarf.
Collection noemiaKATHERYN WINNICK
Deeply involved in the Arts since its early days,
RAYMOND WEIL is thrilled to count acclaimed TV
series Vikings’ leading star Katheryn Winnick as its
new Brand ambassador. Her strong personality,
natural beauty and undisputable charisma make
her the perfect match for the independent Swiss
matchmaker.
Join the discussiong using #RWKatherynWinnick
SVIÐSLJÓS
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Diamond Suites, fyrsta fimm
stjörnu hótel landsins, verður opnað
formlega í Keflavík 17. maí næst-
komandi. Hótelið er á efstu hæð
Hótel Keflavíkur, sem er fjögurra
stjörnu hótel, en sama dag og áður-
nefnd opnun fer fram fagnar hótelið
gamalkunna 30 ár afmæli sínu.
Steinþór Jónsson er eigandi og
hefur verið hótelstjóri frá upphafi.
Stofnaði hann hótelið á sínum tíma
ásamt foreldrum sínum, Jóni Willi-
am Magnússyni og Unni Ingunni
Steinþórsdóttur, en það hefur verið
rekið frá upphafi sem fjölskyldu-
fyrirtæki.
„Diamond Suites er svokallað
„lúxus boutique hótel“ með ein-
stakri hönnun og íburði sem þekkist
ekki á hótelum hér á landi,“ segir
Steinþór í samtali við Morgunblaðið
og bendir á að þar megi meðal ann-
ars finna fundaraðstöðu fyrir 6 til 60
manns, 700 fermetra líkamsrækt-
arstöð, sem er sú stærsta sem fyrir-
finnst á hóteli í Evrópu, og hágæða
veitingastað þar sem Jenný Rúnars-
dóttir, MasterChef-kokkur, ræður
ríkjum.
Rúm skreytt kristölum
Diamond Suites býður upp á
lúxussvítur eingöngu. Þær eru 30 til
280 fermetrar að stærð, en á neðri
hæðum hótelsins má finna junior-
svítur og fleiri gistirými.
„Við höfum hvergi sparað þegar
kemur að lúxus og þægindum. Öll
húsgögn, tæki og efniviður hafa ver-
ið sérinnflutt og valin eftir hæstu
stöðlum. Hvert rými er sérhannað
og engin tvö herbergi eru eins. Í
einu herberginu er t.d. rúm sem
gert er af spænskum listamanni og
tók 15 vikur að handskera úr einum
viðarbúti. Og svo er annað úr hvítu
leðri skreytt Swarovski-kristölum,“
segir Steinþór og heldur áfram: „En
í hverju herbergi er mismunandi
hönnun og upplifun um leið. Hvert
herbergi býður upp á okkar
stöðluðu þægindi, eins og nudd-
baðkör frá Duravit, hágæða sturtu-
hausa með Led-lýsingu, iMac-
borðtölvu og Bang&Olufsen-
sjónvörp og hljómflutningskerfi.“
Til stendur að reisa á næstunni
fimm stjörnu hótel við Hörpu í
Reykjavík. Spurður hvort hann ótt-
ist samkeppni kveður hann nei við.
„Þegar maður er fyrstur verður
maður að fagna samkeppni og er
það mér tilhlökkunarefni að fá fleiri
fimm stjörnu hótel á markaðinn því
í sameiningu köllum við á fleiri gesti
til landsins sem óska eftir ákveðnum
gæðum. Við getum, vegna smæðar
hótelsins, leyft okkur að fara lengra
en aðrir í gæðum,“ segir hann og
bendir á að hvert rými sé einstakt
þar sem boðið sé upp á sérhannaðar
upplifanir sem ekki sé hægt að gera
í stöðluðu ferli hjá stórum hótelum.
Í nálægð við einstakar perlur
Steinþór segir að staðsetning hót-
elsins henti fjölmörgum erlendum
gestum og vísar þá til nálægðar-
innar við Keflavíkurflugvöll, höfuð-
borgina, Bláa lónið og Reykjanesið,
sem sé einstök náttúruperla.
Aðspurður segir Steinþór bókanir
ganga afar vel og hafi þær í raun
komið nokkuð á óvart. „Þar sem
þrjú herbergi hafa verið tilbúin í
nokkurn tíma höfum við ákveðið að
taka á móti gestum í þeim fjölda
sem við ráðum við til þess að prófa
okkur áfram, sem og að þjálfa
starfsfólkið. Í endann er það þjón-
ustan sem mun skapa okkur sér-
stöðu,“ segir Steinþór og bætir við:
„Þrátt fyrir allt sem við höfum lagt í
hönnun og glæsileika ætlum við
fyrst og fremst að geta státað af
bestu þjónustu sem völ er á.“
Keflavík fyrst með 5 stjörnur
Fyrsta fimm stjörnu hótel landsins opnað formlega 17. maí næstkomandi Nuddbaðkör, Led-
lýstir sturtuhausar og rúm skreytt kristölum Höfum hvergi sparað, segir Steinþór hótelstjóri
Ljósmynd/OZZO
Afslöppun Gestir hótelsins geta t.a.m. slakað á í setustofunni eða farið út á svalir í heitan pott sem þar er.
Lúxus Steinþór Jónsson hótelstjóri segir hótel sitt hafa algjöra sérstöðu. Glæsileiki Inni á baði er m.a. að finna flísar frá Versace og nuddbaðkar.
Styrkur svifryks fór yfir sólar-
hringsheilsuverndarmörk í loft-
gæðastöðinni við Grensásveg 31.
mars og 4., 5,. og 7. apríl síðastlið-
inn, en mörkin eru 50 μg/m3. Svif-
ryk hefur farið fimm sinnum yfir
sólarhringsheilsuverndarmörkin á
þessu ári en samkvæmt reglugerð
má það aðeins fara sjö sinnum yfir
mörkin.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Reykjavíkurborg.
Hátt gildi við Grensásveg
„Samkvæmt Veðurstofu er búist
við hægum vindi og lítilli úrkomu
næstu daga og því er hætta á auk-
inni svifryksmengun. Bent skal á
að svifryksmengun er mest í ná-
grenni við miklar umferðargötur
en minni mengun er inni í íbúða-
hverfum fjær umferð. Í hægum
vindi þyrlast ryk upp af götum og
má búast við toppum í svif-
ryksmengun á umferðarálags-
tímum á morgnana, í hádeginu og í
eftirmiðdaginn,“ segir í tilkynning-
unni. Heilbrigðiseftirlit Reykjavík-
ur muni fylgjast náið með loftgæð-
um borgarinnar og senda frá sér
viðvaranir og leiðbeiningar þyki
ástæða til þess.
Í gær mældist styrkur svifryks
51,53 μg/m3 við Grensásveg.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Svifryk Hætta er talin á aukinni svifryksmengun því búist er við hægum
vindi og lítilli úrkomu. Styrkur svifryks er mestur við umferðargötur.
Hætta á aukinni
svifryksmengun
Styrkur svifryks ítrekað yfir mörkum