Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 62
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Uppþvottavélar
- framleiddar í Þýskalandi
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Ég hef alltaf stundað íþróttir af
einhverju tagi, en byrjaði að
hlaupa 2010 og kolféll svo fyrir
utanvegahlaupum fyrir fjórum ár-
um,“ segir Birgir Már Vigfússon,
þjálfari Hlaupahóps Ármanns. „Ég
valdi einmitt þennan hóp á sínum
tíma því ég vissi að innan hans
væru margir með áhuga á utan-
vegahlaupum. Nú erum við um það
bil 40 í hlaupahópnum, bæði konur
og karlar, á aldrinum 30 til 55 ára.
Þar er öll flóran, allt frá fólki sem
er að koma beint af byrjenda-
námskeiðum hjá Ármanni og yfir í
reynda hlaupara sem hafa klárað
nokkur 170 km fjallahlaup.
Síðastliðið vor efndi ég í sam-
starfi við Hlaupahóp Ármanns til
Laugavegsnámskeiðs þar sem
áherslan var á hlaupara sem
stefndu að þátttöku í Laugavegs-
hlaupinu sumarið 2015. Nám-
skeiðið heppnaðist mjög vel og í ár
erum við með nýtt námskeið á
svipuðum nótum, fyrir þá sem
kjósa að hlaupa utan vega og njóta
um leið náttúrunnar eða stefna á
þátttöku í einhverri utanvega-
hlaupakeppni. Námskeiðið stendur
í allt sumar, það er sniðið fyrir fé-
laga í Hlaupahópi Ármanns og þar
er alltaf pláss fyrir nýtt fólk.“
Mjúkt undirlag
Hvernig kviknaði áhugi þinn á
utanvegahlaupum?
„Ég er fæddur og uppalinn á
Hornafirði og stundaði ýmsar
íþróttir þegar ég var yngri. Á ung-
lingsárunum smitaðist ég af golf-
bakteríunni og spilaði mikið, en
fékk svo nóg um tvítugt. Þá þurfti
ég að finna mér nýtt áhugamál og
fyrir valinu varð þríþraut. Hún er
hins vegar afar tímafrekt sport, ég
ákvað að einfalda hlutina, hafði
mestan áhuga á hlaupum og þann-
ig leiddist ég út á þessa braut.“
Hvað heillar fólk mest við að
hlaupa utan vega?
„Sjálfum hefur mér alltaf fund-
ist utanvegahlaup ofsalega
skemmtilegt sport, ég upplifði það
mjög sterkt þegar ég prófaði það í
fyrsta sinn fyrir allnokkrum árum.
Þegar áhuginn kviknaði svo fyrir
alvöru 2012 varð ekki aftur snúið.
Það er svo ótrúlega gaman að
hlaupa á mjúku undirlaginu; í
mold, sandi, grasi og þúfum, þjóta
upp og niður skemmtilegar brekk-
ur og yfir læki og grjót.
Í utanvegahlaupum er maður
alltaf að uppgötva eitthvað nýtt í
landslaginu, jafnvel þótt maður
hlaupi oft sömu leiðina. Náttúran
er síbreytileg og það fer allt eftir
aðstæðum hverju sinni, veðri og
birtu, hvernig maður upplifir hana.
Skemmtilegast er að fara ótroðnar
slóðir, velja sífellt nýjar hlaupa-
leiðir og skoða ný svæði.“
Aukið sjálfstraust
Geta allir æft utanvegahlaup?
„Utanvegahlaup eru fyrir alla,
það þarf bara að gæta þess að
byrja rólega og komast markvisst,
hægt og bítandi, í góða æfingu.
Þetta snýst ekki um afrekshlaup.
Utanvegahlaup ganga fyrst og
fremst út á það að spretta úr spori
utan alfaraleiðar, hafa það
skemmtilegt með góðum hlaupa-
félögum og njóta náttúrunnar.“
Hver er aðaláskorunin, í byrjun?
„Mesta áskorunin er að koma
sér af stað. Fyrir fólk sem er að
byrja að hlaupa utan vega er mjög
gott að fara hægt og rólega af
stað, bæta síðan smávegis við tím-
ann eða kílómetrana og passa að
fara ekki of geyst eða vera með
háleit markmið. Smátt og smátt
eykst sjálfstraustið og maður fær
þjálfun í því að hlaupa á ójöfnu
undirlagi og bæði upp og niður
brekkur á þægilegum hraða. Í ut-
anvegahlaupum skiptir miklu máli
að vera sterkur og með gott jafn-
vægi, því eru styrktaræfingar mik-
ilvægar og hitt kemur smátt og
smátt, eftir því sem maður hleypur
meira úti í náttúrunni við ólíkar
aðstæður.“
Skór og Camelbak
Hvaða útbúnaður er nauðsyn-
legur fyrir utanvegahlaup?
„Utanvegaskór eru grófari en
þeir sem hlauparar nota á malbik-
inu, en það er til þess að ná betra
gripi í grófum jarðveginum. Sjálf-
ur nota ég Asics-utanvegaskó.
Fatnaður er meira smekksatriði,
aðalatriðið er að eiga góðan, hlýjan
og léttan fatnað. Við búum á Ís-
landi og hér er allra veðra von, því
er eiginlega nauðsynlegt að eiga
regn- eða vindheldan jakka og góð-
an ullarbol.
Hlaupabuxur eru til í miklu úr-
vali, mér finnst best að hlaupa í
CW-X compression buxum með
styrkingum fyrir mjóbak og kálfa.
Nauðsynlegt er að hugsa um að
innbyrða næga orku og vökva á
æfingum, sérstaklega lengri æfing-
unum og vera þá með Camelbak-
vesti eða brúsabelti til að geyma
dótið sitt í.“
Hvernig er utanvegahlaupaæf-
ingum háttað hjá Ármanni – er
hægt að bætast í hópinn?
„Utanvegahlaup er klárlega vax-
andi sport á Íslandi, ég finn fyrir
miklum áhuga hjá útivistarfólki og
það eru allir velkomnir til okkar í
Hlaupahóp Ármanns. Við hittumst
á þriðjudögum og fimmtudögum
eftir vinnu, oftast við Laugardals-
höll og hlaupum þaðan. Á mánu-
dagskvöldum er fjallaæfing, þá er
Úlfarsfellið vinsælt, og á föstudög-
um eru styrktaræfingar sem
hlauparar gera saman eða sjálfir
heima. Á laugardagsmorgnum eru
lengri utanvegaæfingar og þá hitt-
umst við fyrir utan höfuðborgar-
svæðið, oft í Heiðmörk.“
Hengill-Ultra
Stefnir hlaupahópurinn að þátt-
töku í keppnum?
„Hér á Íslandi er boðið upp á
mörg skemmtileg utanvegahlaup,
þau helstu eru Esja-Ultra, Snæ-
fellsjökulshlaupið, Laugavegurinn,
Hvítasunnuhlaupið, Hengill-Ultra,
Jökulsárhlaupið og Vesturgata.
Það er alltaf freistandi að taka
þátt í keppnum og margir æfa með
það fyrir augum, þar á meðal ég.
Hlaupahópur Ármanns hefur
undanfarin ár efnt til hópferðar í
tengslum við Laugavegshlaupið.
Enda þótt hlauparar hafi ekki
endilega sjálfir tekið þátt hafa þeir
fjölmennt á staðinn og aðstoðað
hina, keyrt þá á áfangastað og síð-
an tekið á móti þeim í Húsadal
með tilheyrandi fagnaðarlátum og
grillveislu í Básum.
Fyrir þá sem hafa áhuga á því
að fræðast nánar um utanvega-
hlaup á vegum Hlaupahóps Ár-
manns, og langar jafnvel að slást í
hópinn, er best að hafa samband
með því að senda tölvupóst á:
hlaupahopur@frjalsar.is“
Stokkið á milli steina
Hlaupahópur Ármanns stundar markvissar æfingar í utanvegahlaupum og margir stefna að þátttöku í helstu
keppnum sumarsins Þjálfari hópsins segir utanvegahlaup vera góða heilsurækt og skemmtilega áskorun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lífsgæði „Mesta áskorunin er að koma sér af stað. Fyrir fólk sem er að byrja að hlaupa utan vega er mjög gott að fara hægt og rólega af stað, bæta síðan
smávegis við tímann eða kílómetrana, og passa að fara ekki of geyst eða vera með háleit markið.“
Töfrarnir Birgir Már Vigfússon, þjálfari Hlaupahóps Ármanns: „Í utanvega-
hlaupum er maður alltaf að uppgötva eitthvað nýtt í landslaginu, jafnvel
þótt maður hlaupi oft sömu leiðina. Náttúran er síbreytileg og það fer allt
eftir aðstæðum hverju sinni, veðri og birtu, hvernig maður upplifir hana.“
ÍÞRÓTTIRog útivist