Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 34

Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Klæðskeraskæri Stærðir 8“-12“ Verð kr. 4.980 - 8.580 kr. ÚRVAL AF GÓÐUM S ÆRUM Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is skæri í úrvali Opið virka daga frá 9- 18 lau fr á 10-1 6 Alhliða skæri kr. 4.395 Vinstri handar skæri kr. 4.395 Hárskæri kr. 5.190 Klæðskeraskæri Verð kr. 5.660 Bróderskæri Kr. 2.565 „Framtak þeirra hefur skilað miklum árangri í þessari baráttu á undanförnum árum. Þeir eru allt- af á vaktinni. Það skiptir miklu máli að grípa strax í taumana þeg- ar skörð myndast í sandvarnar- görðunum. Sandurinn dælist inn um þessi skörð,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri um sjálfboðavinnu Fjörulalla í Vík- urfjöru. Þeir félagarnir vinna ýmis störf í Víkurfjöru, meðal annars við uppgræðslu, vegagerð og stíga og lagfæringar bílastæða. Fjaran er fjölsótt af ferðafólki sem óneitan- lega skilja eftir sig ummerki. Þeir keyrðu 100 heyrúllur í fjöruna á síðasta ári til að styrkja varnirnar og reikna með að svipaður fjöldi verði fluttur þangað í haust. „Þeir afkasta miklu í sinni sjálf- boðavinnu og þekkja auk þess vel til. Við hefðum ekki næga fjár- muni til að setja í þetta, ef við þyrftum að kaupa alla vinnu að. Framlag þeirra til byggðarinnar er því gríðarlega mikið.“ Með tilkomu varnargarðs sem settur var út fyrir nokkrum árum, svokallaðs sandfangara, hefur fjaran vestan hans lengst mjög. Sveinn segir nauðsynlegt að fylgja því jafnt og þétt eftir með því að græða strax upp hið nýja land, skapa nýtt varnarbelti í stað þess sem sjórinn hefur hrifsað til sín í landbroti undanfarinna ára og áratuga. Sáð er íslensku melgresi sem reynst hefur best til að binda sandinn. Hætta á að uppgræðslan hverfi við iðnaðarhverfið Fjörulallar hafa einbeitt sér að svæðinu vestan við sandfangar- ann. Stærstu áföllin, til dæmis í ofsaveðri sem varð í stórstreymi í desember, urðu austar, við iðnaða- rsvæði Víkurþorps en þar hafa Fjörulallar ekki látið til sín taka. Þetta skapaði hættu á að upp- græðslan þar hyrfi, með tilheyr- andi auknu sandfoki inn í þorpið. Sveinn segir að Landgræðslan fagni því mjög að Vegagerðin skuli hafa ákveðið að hefja að- gerðir á því svæði á þessu ári með nýjum sandfangara. Það muni verða til þess að fjaran lengist fram í sjó og því þurfi að fylgja eftir með sáningu melgresis. Leggja mikið til byggðarinnar  Fjörulallar í Vík vinna stöðugt að vörnum þorpsins gegn landbroti Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landgræðslan telur brýnt að verja svæði í og við byggðina við Skaftá. Það sé hægt að gera með tiltölulega litlum kostnaði, með varnargörðum og uppgræðslu. Hefur Land- græðslan óskað eftir 96 milljóna króna fjárveit- ingu á þessu ári til brýnustu verk- efna. Landgræðslan hefur reynt að meta gróður- skemmdir og lagt áherslu á byggð- ina því erfitt er að ljúka könnun á afréttum vegna snjóa. Gert er ráð fyrir að gróðurskemmdir séu í landi fjölda jarða. Langverst er ástandið talið í Eldhrauni og var ekki á bæt- andi. Gert er ráð fyrir að mikið leir- og sandfok verði af þeim í sumar og á næstu árum. Jökulhlaupin og sandburður í kjölfarið hafa mikil áhrif á gróðurfar í Skaftárhreppi. Þannig er talið að sandur hafi farið yfir 3.000 hektara gróins lands á afréttum á árunum 1955 til 2010 og um 4.000 hektara í byggð. „Markmið aðgerða okkar verður að draga úr uppfoki og sandfoki með því að binda fokefnin í gróðri. Við munum sá melgresi og grasfræi á verstu sandsvæðunum, þar sem við teljum að best gagnist fyrir byggðina,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. Mikilvægt að byrja sem fyrst Hann minnir á að gera verði ráð fyrir öðru stóru jökulhlaupi innan fárra ára og aðgerðir taki mið af því. Veðurstofan er að vinna hættumat vegna þess. „Við vitum að melgresi þolir mikla eðju og aur, þegar það er komið vel á legg. Það reynist okkur alltaf best,“ segir land- græðslustjóri. Hann segir að reynt verði að styrkja þann gróður sem er við far- vegi Skaftár og Eldvatns, á svæðum sem fengið hafa minniháttar eðju yf- ir sig og stuðla þannig að því að gróðurinn þoli það áfok sem verður úr aðal-farveginum. „Við munum einbeita okkur að aðgerðum í byggð, á um 900 hektara svæði. Verkefnið á afréttunum er það stórt að ekki verður tekist á við það að sinni. Við þurfum að forgangsraða. Brýnast er að vinna í Eldhrauni og við bæi sem hafa orðið verst úti. Mikið er í húfi að gera þetta sem allra fyrst, í lok apríl eða byrjun maí. Við erum bjartsýn um að þess- ar aðgerðir muni leiða til þess að minna uppfok og sandfok verði. Ár- angurinn skilar sér meira á næsta ári og aðgerðirnar þurfa að halda áfram á næstu árum,“ segir Sveinn. Reiknað er með að brýnustu upp- græðsluverkefnin muni kosta um 50 milljónir kr. í ár og annað eins á næsta ári. Kostnaður við byggingu nýrra varnargarða og hækkun og viðhald eldri garða er litlu minni. Hreppurinn fékk fjárveitingu Skaftárhreppur fékk 30 milljóna króna aukafjárveitingu á síðasta ári til að mæta kostnaði af viðgerðum á óskráðum vegum, varnargörðum og girðingum sem eyðilögðust í hlaup- inu. Sveinn segir að sem betur fer virðist opinberir aðilar kosta að mestu viðgerðir á vegum og afar lít- ið tjón hafi orðið á girðingum. Hins vegar nemi viðgerðarkostnaður á varnargörðum mörgum tugum milljóna. Skaftárhreppur hefur beð- ið fólk að tilkynna um tjón sem get- ur flokkast undir þá liði sem fjár- veitingunni er ætlað að bæta. Brýnt að verja svæði við byggð  Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri vill binda fokefnin við Skaftá með melgresi  Kostnaður við uppgræðslu og varnargarða áætlaður 100 milljónir í ár  Þörf á áframhaldandi vinnu næstu tvö árin Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson Eldhraun Flóðið lék Eldhraun illa og mátti það þó illa við meiri skemmdum. Þar situr eftir sandur og leir sem fjúka mun yfir byggðina og Hringveginn við ákveðin veðurskilyrði næstu ár. Myndin er tekin í áttina að Árfjalli. Sveinn Runólfsson Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Gamburmosi Mesta gamburmosa- svæði landsins ber ekki sitt barr eft- ir Skaftárhlaupið í október. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ytri-Ásar Skaftárhlaupið mikla skildi eftir sig ummerki víða í landi Ásajarðanna . Hér sést yfir húsin í Ytri-Ásum og yfir Eldvatn og hluti skemmda sem urðu á uppgræðslu bóndans. Þar var iðagrænt beitiland.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.