Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Móðir mín Guðný
lést á annan dag
páska eftir stutt en ströng veik-
indi. Hún fæddist á heimili for-
eldra sinna á Háteigi í Reykjavík
og átti heima þar næstum því alla
sína ævi.
Háteigur stendur ofarlega í
Rauðarárholtinu og á uppvaxtar-
árum hennar var þar stundaður
kúabúskapur og reyndar alveg
fram á fimmta áratug síðustu
aldar. Hún var því alin upp við al-
menn sveita- og heimilisstörf.
Faðir hennar var athafnamaður í
atvinnulífinu, skipstjóri og útgerð-
armaður og móðir hennar braut-
ryðjandi í réttindabaráttu kvenna
á sínum tíma. Á æskuheimilinu
var borin virðing fyrir hefðum og
þjóðlegum gildum og áhersla lögð
á handverk og heimilisiðnað, eink-
um vefnað. Það veganesti sem hún
hlaut í foreldrahúsum og þau gildi
sem þar var lögð áhersla á fylgdu
henni alla tíð.
Mamma var vinamörg og vina-
föst og ætíð var gestkvæmt heima
á Háteigi og oft þétt setinn bekk-
urinn við eldhúsborðið þar sem
málin voru rædd og oft sköpuðust
þar fjörugar umræður. Það voru
allir velkomnir á Háteig vinir
barna og barnabarna og gat hún
talað við alla, unga sem aldna.
Hún var hreinskiptin og lét skoð-
anir sínar óhikað í ljós. Háteigur
er sannkallað fjölskylduhús. Þar
hittist fjölskyldan öll iðulega og
átti stund saman því mamma vildi
fylgjast vel með fólkinu sínu.
Mamma var lífsglöð, kát og ákveð-
in kona. Hún var ekki mikið fyrir
að flíka tilfinningum sínum. Þegar
mest á reyndi í fjölskyldunni við
óvænt áföll eða erfið veikindi var
hún kletturinn sem við hin treyst-
um á.
Þegar ég hugsa til baka sé ég
hana fyrir mér við eldhúsborðið
skenkjandi gestum og gangandi
kaffi eða sitjandi við píanóið, en
hún spilaði ágætlega á píanó. Það
var hennar hvíld frá amstri hvers-
dagsins. Hún var mikill dýravinur
og sé ég hana fyrir mér að hugsa
um dýrin sín, Týru, Svarthvít og
Brand eða brunandi austur fyrir
fjall til dvalar í sumarbústaðnum.
Hún bjó ein á Háteigi þar til fyrir
fáeinum vikum. Þar undi hún hag
sínum vel og var í raun ekki mikið
fyrir að fara af bæ. Hún var sífellt
með hugann við viðhald og að nú
þyrfti að dytta að hér og þar og
laga til í garðinum. Þar sem nú
kíkja upp úr moldinni krókusar og
páskaliljur og fagna vorinu.
Ég er þakklát fyrir að hún er
laus við þrautirnar sem lögðust
svo þungt á hana síðustu vikurnar.
Megi hún hvíla í friði.
Guðrún Helga.
Látin er Guðný Ólafía Hall-
dórsdóttir, Dúna í Háteigi, 93 ára
höfðingskona sem mikil eftirsjá er
að.
Það er einkum af fjölskyldu-
fundum tengdum Hítardals-
bræðrum sem minningar um
Guðný
Halldórsdóttir
✝ Guðný Ó. Hall-dórsdóttir
fæddist í Reykjavík
21. febrúar 1923.
Hún lést 28. mars
2016.
Útför hennar
fórr fram frá Há-
teigskirkju 5. apríl
2016.
Dúnu blómstra og af
einkaheimsóknum
okkar hjónanna til
Dúnu og Teits í Há-
teigi.
Konan mín,
Ragnheiður Krist-
jánsdóttir, er bróð-
urdóttir Teits og
fyrstu búskaparár
okkar komum við títt
í Háteig í heimsókn-
ir og til að sitja veisl-
ur. Dúna og Teitur voru mikið fyr-
ir samneyti við annað fólk og
skiptu ættliðabil og aldursmunur
engu máli. Ættingjar voru meir en
velkomnir, þeirra var jafnvel kraf-
ist og alltaf sama rausnin sýnd.
Dúna var afburða veisluhaldari og
gestgjafi, enda má segja að hún
hafi verið lærð á því sviði. Hún var
traustur vinur vina sinna og stóð
jafnan með þeim, þó ekki án þess
að þeir vissu ef eitthvað var bogið
hjá þeim.
Segja má að heimili Dúnu og
Teits í Háteigi hafi verið stór-
heimili jafnvel þó fjölskyldan væri
bara af meðalstærð. Það grund-
vallast á gestum og gangandi og
þeirri reisn sem var yfir húsráð-
endum og húsinu sjálfu. Háteigur
var tiltölulega stórt hús á íslensk-
an mælikvarða þess tíma og virðu-
legt, bæði að ytra útliti og innri
gerð. Að ýmsu leyti finnst mér það
jafnast á við smækkaða útgáfu
ensks herraseturs. Það var því
jafnan viðburður að koma þar.
Dúna og Teitur voru höfðingjar
og fannst sjálfsagt að ættingjar og
venslafólk kæmi oft og þæði alls
konar veitingar, vinsemd og að-
stoð. Allt var það veitt á svo sjálf-
sagðan hátt að ekki kom annað til
greina en að þiggja.
Dúna var kjarkmikil og ákveðin
með hreinar skoðanir á mönnum
og málefnum, ómengaðar af því
sem ekki kom málinu við. Hún fór
ekki í grafgötur um skoðanir sín-
ar, sagði þær skýrt hver sem í hlut
átti. Þannig var margur kúrsinn
réttur af. Hún var fróð og með á
flestum nótum og því var gagn og
gaman að samvistum við hana.
Hún hafði smitandi hlátur og var
jafnan kát og í góðu skapi. Ekki
var Teitur minni gleðigjafi en
hann hafði jafnan grín og glettni
mjög ofarlega í samskiptum við
fólk. Þetta olli því að samkomur í
Háteigi voru á léttum nótum og
óþvingaðar, glaðværar en ekki há-
værar.
Þau hjónin héldu mikið upp á
Háteigshúsið og héldu því vel við.
Teitur var sífellt að laga, endur-
nýja og bæta, alltaf af stökustu
vandvirkni. Allt einkenndist það
samt af hefðinni. Háteigi var ekki
breytt svo neinu nemur til sam-
ræmis við tísku seinni tíma, þó
breytingar í lífsháttum og heim-
ilisbúnaði væru samstiga samtím-
anum. Ef mála þurfti var málað
eins og á fyrri tíð, ef smíða þurfti
nýtt umhverfis dyr eða eitthvað
annað var það gert eins og verið
hafði. Menn sem kunnu gamalt
handbragð og meðhöndlun
byggingarefna á gamlan máta
voru leitaðir uppi og þeir fengnir
til starfa, ef húsráðendur gerðu
það ekki sjálfir. Sama má segja
um garðinn umhverfis húsið. Hon-
um var vel viðhaldið og hann
snyrtur og sleginn og lagaður til
eftir þörfum. Það er því staðarlegt
að líta heim að Háteigi og tilkomu-
mikið inn að koma.
Páll Imsland.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Minningargreinar
Antík
Antíkhúsgögn og munir í úrvali.
Skoðið heimasíðuna.
Erum á Facebook.
Opið frá kl. 10 til 18 virka daga.
Þórunnartúni 6,
sími 553 0755 – antiksalan.is
Hljóðfæri
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Þægilegir dömuskór úr leðri og
skinnfóðraðir
Litir: hvítt, beige og rautt.
Stærðir: 36 - 42 Verð: 14.785.-
Stærðir 36 - 42 Verð: 14.785.-
Stærðir: 36 - 42 Verð: 14.785.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
TILBOÐ - TILBOÐ
Vandaðir dömuskór úr leðri.
Tilboðsverð aðeins 2.900.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Aðalfundur Samtaka
lungnasjúklinga Aðalfundur Samtaka
lungnasjúklinga verður haldinn
fimmtudaginn 28. apríl kl. 20:00 í
húsnæði SÍBS, Síðumúla 6.
Smáauglýsingar 569
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ!
MOGGINN Í
IPADINN
WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD