Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
AF ÞORSKI
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Galsafengin hróp og köll kveða við
í hressandi hafgolunni á bryggj-
unni. „Fik du ikke haill“! er hróp-
að. Dátt er hlegið og ýmsar at-
hugasemdir fylgja í kjölfarið. Síðar
í þessari grein verður útskýrt hvað
haill er. Það er laugardagsmorgunn
og fiskimenn, konur og karlar á
ýmsum aldri í skærlitum sjófatnaði,
standa bísperrtir um borð í bátum
af öllum stærðum og gerðum sem
halda til hafs. Þarna er meira að
segja lítið víkingaskip.
Svona hefst heimsmeistara-
keppnin í sjóstangaveiði sem haldin
er á hverju ári í bænum Svolvær í
Lofoten í Norður-Noregi. Keppnin
er yfirleitt haldin í lok mars eða
byrjun apríl og keppt er um að
veiða þyngsta þorskinn. Í ár var
keppnin haldin dagana 1. og 2. apr-
íl, um 600 tóku þátt og hún laðar
að sér mikinn fjölda – bæði Norð-
menn og fólk víða að úr heiminum.
Sumir eru ástríðufullir veiðimenn
en aðrir vilja bara komast í stuðið
og stemninguna sem fylgir keppn-
inni. Greinarhöfundur er í síðar-
nefnda hópnum.
Á norsku heitir keppnin VM i
skreifiske, en þetta heiti er notað
um þorskinn þegar hann kemur að
Noregsströndum norðan úr Bar-
entshafi til að hrygna. Orðið skrei
þýðir að flakka á norsku og það
mætti þá líklega tala um flökku-
þorsk á íslensku. Um 40% þorska í
þorskstofninum við Noregsstrendur
hrygna á Lofoten-svæðinu og
stendur hrygningartímabilið yfir
frá febrúar fram í apríl. Þorskur í
þessu ástandi er jafnan stærri en
hann er annars og þykir einkar
gómsætur, enda segjast heima-
menn bíða komu flökkuþorsksins
með eftirvæntingu.
Naktir karlar í glugga
Í Svolvær búa um 5.000 manns
en þessa einu helgi á ári tvöfaldast
íbúafjöldinn. Öll hótelherbergi í
bænum eru bókuð mörgum mán-
uðum fyrr og á bílaplönum eru hús-
bílar ferðalanga. Að sögn bæjarbúa
aukast vinsældir keppninnar ár frá
ári og þykir sumum nóg um, enda
er fjöldi þátttakenda takmarkaður
og geta því ekki allir áhugasamir
heimamenn tekið þátt. En það
kemur ekki í veg fyrir að þeir taki
vel á móti gestum og undirbún-
ingur og störf við keppnina eru að
mestu unnin í sjálfboðavinnu. Þetta
er samfélagsverkefni sem allir
hagnast á.
Bæjarbúar og gestir þeirra horfa
á eftir fiskimönnunum á haf út.
Þeirra er að vænta í land um miðj-
an dag og fólk fer að tínast burt af
bryggjunni. Sumir fara heim til sín,
aðrir hafa einhverjum störfum að
gegna og enn aðrir fara í stórt há-
tíðatjald sem sett hefur verið upp
skammt frá. Blaðamaður fer þang-
að í fylgd heimamanna og á þessari
stuttu leið ber ýmislegt fyrir augu.
Nokkrir karlmenn standa hlæjandi
innan við opinn glugga á hótelher-
bergi og kalla spaugsyrði til veg-
farenda. Ekki verður betur séð en
að þeir standi þar allsnaktir. Rosk-
inn karl, klæddur einhverju sem
virðist vera þorskabúningur, hopp-
ar um. Kátir krakkar í lopapeysum
og með blöðrur. Það er karnival-
stemning í litla bænum á 68.
breiddargráðu.
Í tjaldinu hefur verið komið fyrir
borðum og bekkjum og þar er fiski-
mannanna beðið með eftirvænt-
ingu. Margir sötra einn eða jafnvel
tvo bjóra og svo skemmtilega vill
til fyrir íslenskan blaðamann að
þarna er á borðum bjór af tegund-
inni Lofotpils sem er bruggaður af
fyrirtæki í eigu Íslendingsins Þor-
varðar Gunnlaugssonar. Sérréttir
landsvæðisins, fiskisúpa og labs-
kovs, sem er kjötkássa með kart-
öflum og ýmsu grænmeti, renna
ljúflega niður í maga og margir fá
sér líka lofotenlefsu, sem er þunn
pönnukaka með kanil og smjöri.
Það er sungið, spilað og leikið á
hljóðfæri. Drykkjuvísur eru sungn-
ar og blaðamaður kemst að þeirri
niðurstöðu að þær hljóti að vera
hluti af samnorrænum menningar-
arfi því Lofoten-búar syngja sömu
vísurnar og gjarnan eru kyrjaðar á
íslenskum mannamótum. Lag sem
er næstum því eins og Kátir voru
karlar er næst á dagskrá og blaða-
maður syngur bara íslenska text-
ann með. Det var brændevin i flas-
ken er sungið a.m.k. sex sinnum og
sífellt bætist við í tjaldið.
Jæ-jæ-jibbý-jibbý-jæ. Mikið er
gaman í Lofoten.
Kaffiþorskar og aðrir þorskar
Se torsken. Se torsken. Sjáið
þorskinn. Sjáið þorskinn. Nú er
sungið hástöfum þorskinum til
dýrðar og til að heiðra hann enn
frekar er klappað og stappað. Allir
eru glaðir.
Og nú fer veiðimennina að drífa
að. Þeir koma inn í skemmu, sem
er við veislutjaldið, þar taka fisk-
matsmenn á móti þeim og vigta
fiskinn. Allir þorskar sem eru 30
kíló eða þyngri fá nafnbótina Kaffe-
torsk, eða kaffiþorskur. Þessi nafn-
gift er runnin undan rifjum dag-
blaðsins á staðnum, Lofotposten,
sem gefur hverjum þeim sem veiðir
svo þungan þorsk eitt kíló af kaffi.
Annað heiti fyrir stóran þorsk er
leiðsöguþorskur, en sagan segir að
stóru þorskarnir vísi þeim minni
veginn um ólgandi úthöfin að Nor-
egsströndum.
Sjáið þorskinn! Sjáið þorskinn!
Heimsmeistaramótið í veiði flökkuþorsks er vinsæll viðburður Íbúafjöldi lítils bæjar á 68.
breiddargráðu tvöfaldast eina helgi á ári Hvílubrögð boða heppni þegar veiði er annars vegar
Allt á fullu Eftir að fiskurnn hafði verið vigtaður var gert að honum.Aflinn Veiðimennirnir biðu eftir að röðin kæmi að þeim til að vigta fenginn.
SJÁ SÍÐU 38
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Reyktur
og grafinn
lax
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin.
• Í forréttinn
• Á veisluborðið
• Í smáréttinn
Alltaf við hæfi
Svefnsófi teg. Cube Tungu - svefnsófi teg. Mona
Opið virka daga 10 - 18
á laugardögum
11 - 15
Teg. Mary 3 – 1 – 1
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður
Sími 565 4100 - www.nyform.is
Borðstofuhúsgögn teg. Parma Veronica 3 – 1 – 1