Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 33
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
„Okkur er ekkert óviðkomandi.
Við ræðum öll mál sem koma upp
á landsvísu og hér heima og fáum
líka oft góða gesti, þingmenn og
ráðherra,“ segir Þórir N. Kjart-
ansson í Vík í Mýrdal. Hann er í
öldungaráði, óformlegum sam-
tökum heldri borgara í Vík sem
kemur saman alla virka morgna í
björgunarsveitarhúsinu.
Þeir eru oft 10 til 12. Hluti af
hópnum eru svokallaðir Fjörulall-
ar sem leggja mikið á sig til að
verja Víkurþorp fyrir ágangi sjáv-
ar, meðal annars með uppgræðslu
í samvinnu við Landgræðsluna.
Þau mál koma sterkt inn í um-
ræðuna þegar Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri mætir. „Menn
eru nú annars aðallega að segja af
sér gamlar frægðarsögur,“ segir
Þórir.
Blaðamaður kom við hjá öld-
ungaráðinu á föstudagsmorgni.
„Þú mátt geta þrisvar,“ svaraði
Reynir Ragnarsson, þegar spurt
er um aðalumræðuefni þá vikuna.
Og niðurstaðan? Jú, hún er sögð
jafn breytileg og mennirnir eru
margir. Menn eru sem sagt ekki
alveg sammála í pólitíkinni.
Stendur enginn uppúr
Annars hafa komandi forseta-
kosningar verið heitasta umræðu-
efnið síðustu daga og vikur, og
ekki dró úr því þegar forsetinn og
forsætisráðherrann hittust óvænt í
miðri atburðarásinni. „Ég stend
dálítið einn í því. Mér fannst út-
spil forsetans snilldarlegt,“ segir
Birgir Hinriksson.
Reynir Ragnarsson telur það
ágætt að Ólafur Ragnar haldi því
opnu að vera áfram, þar til vitað
sé hverjir verði í framboði. „Það
stendur enginn uppúr þegar búið
er að draga rugludallana frá. Eftir
situr fólk sem aðeins er þekkt inn-
an síns hóps,“ segir Guðgeir Sig-
urðsson. Menn voru á því að
margir frambjóðendur myndu
draga sig til baka ef Ólafur Ragn-
ar færi fram.
Blaðamaður missti af umræðum
um Davíð Oddsson ritstjóra. Á fé-
lögunum var að heyra að hann
nyti töluverðs fylgis í þessum hópi
til forsetaframboðs en það fylgdi
jafnframt sögunni að sjálfsagt
yrðu margir á móti.
Jarðgöng nauðsynleg
Af heimavígstöðvunum er mest
rætt um vegamál. Nauðsyn jarð-
ganga um Reynisfjall var þar efst
á baugi. Menn eru hjartanlega
sammála um það enda þekkja allir
á eigin skinni erfiðleikana sem
skapast geta á núverandi vegi,
sérstaklega um brattann á Gatna-
brún. Vegna aukinnar umferðar
ferðamanna hafi umferð um
Hringveginn sem nú liggur á milli
húsa í þorpinu stöðugt meiri áhrif
á íbúana.
Sífelldur niðurskurður þjónustu
við íbúana kemur einnig upp í um-
ræðunum. Vegna fjölgunar ferða-
manna allt árið þyrfti frekar að
bæta í en halda áfram niðurskurði.
Reynir segir að heilsugæslan sé
aðeins opin hálfan daginn og mest
verið að þjóna ferðamönnum. Þeir
taka það fram að þeir séu heppnir
með lækni og hjúkrunarkonu því
þau séu boðin og búin að aðstoða
íbúana, séu í raun og veru á vakt
allan sólarhringinn. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Öldungar Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri heimsótti öldungaráðið einn morguninn, f.v. Sveinn, Sigurjón Rúts-
son, Garðar Einarsson, Reynir Ragnarsson, Birgir Hinriksson, Guðgeir Sigurðsson og Þórir N. Kjartansson.
Segja af sér gaml-
ar frægðarsögur
Rætt um landsins gagn og nauðsynj-
ar í öldungaráðinu í Vík Stjórnmálin
og forsetakosningar efst á baugi
- með morgunkaffinu Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
VIÐ HÖNNUMOG TEIKNUM FYRIR ÞIG
Komdumeð eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu,
þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum,
teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu
í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.
ÞITT ER VALIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir
þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
KR
EA
TI
V
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,FRAMHLIÐUM,
KLÆÐNINGUMOGEININGUM
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
HÁGÆÐADANSKAR
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15